Vikan


Vikan - 17.02.1944, Blaðsíða 7

Vikan - 17.02.1944, Blaðsíða 7
VIKAN, nr. 7, 1944 7 ípróttasambandið. Framliald af bls. 3. bergið. Myndir af íþróttamönnmn og flokk- um prýða veggina, margskonar gripir, hag- anlega gerðir og hinir eigulegustu, eru í hverjum krók og kima og fánar og fána- stengur. Þarna er og bókasafn Sambands- ins. Mikill áhugi er fyrir því, að 1. S. í. fái sérstakan framkvæmdastjóra og mun það embætti stofnað strax og fé er til fram- kvæmda og er brýn nauðsyn á því. Verkefni í. S. 1. hafa verið og eru geysi mörg. Það hefir unnið ósleitilega að því að koma á íþrótta- og leikfimikennslu í skól- um landsins og mjög barist fyrir sund- hallar- og sundlaugabyggingum. Það liefir gefið út furðumikið af bókum og ritling- um um íþróttir, þegar þess er gætt, hve lítið hefir verið fyrir hendi til slíkra hluta, t. d. Glímubók, Sundbók, Knattspyrnubók, Heilsufræði handa íþróttamönnum, Skíða- handbók, Lög og leikreglur 1. S. I., ýmsar reglugerðir um íþróttamál o. fl. Samband- ið hafði á síðastliðnu ári 25 þús. kr. styrk frá íþróttanefnd ríkisins, þar af 3 þús. til bókaútgáfu og hrekkur það auðvitað skammt. Sendikennarar I. S. í., í knatt- spyrnu, glímu, sundi og frjálsum íþrótt- um, hafa nú farið um allt landið og haldið námskeið og erindi og leiðbeint við íþrótta- mót. Það hefir gefið út Iþróttablaðið, en nú hefir verið stofnað um það hlutafélag og er Þorsteinn Jósepsson blaðamaður rit- stjóri. I. S. I. hefir séð um þátttöku í Ólympiuleikum. 1912 voru þeir haldnir í Stokkhólmi og þá fóru héðan tólf menn. 1920 voru leikarnir í Antverpen og voru þá sendir tveir menn, Ólafur Sveinsson vél- setjari og Ben. G. Waage, til þess að kynna sér skipulag íþróttamála. 1936 voru leik- arnir í Berlín og þangað fóru héðan 50 manns, að íþróttakennurum meðtöldum. I. S. I. er meðlimur ýmsra alheimsíþrótta- sambanda, en það gefur Islendingum rétt til þátttöku í mótum á erlendum vettvangi. Árið 1930 var fimleikahópsýning á Þingvöllum og Islandsglíma, 3 úrvals fim- leikaflokkar sýndu, 2 frá Reykjavík og 1 frá Akureyri og þóttu þær íþróttasýning- ar vel takast. I. S. I. vill láta gera íþrótta- leikvang, sem allra fyrst, á Þingvöllum, svo að hægt sé að halda þar íþróttahátíð- ir, þegar þörf þykir. Stjórn I. S. I. og íþróttafulltrúi ríkisins eru sammála um, að leikvanginum sé valinn staður undan Fang- brekku, á svipuðum slóðum og fornmenn þreyttu íþróttir sínar. Það eru um 10 ár síðan að kvikmynda- starfsemi I. S. I. hófst og hafa margar íþróttakvikmyndir verið teknar á þessu tímabili, og þykja þær. mjög fróðlegar og skemmtilegar, ekki síst litmyndirnar. Mjög merkileg starfsemi er læknisskoð- un sú á íþróttamönnum, sem I. S. I. hefir komið á. Hún hefir verið starfrækt undan- farin 10 ár og hefir bæjarstjórn Reykja- víkur stutt læknisskoðunina öll árin með f járframlögum.. Óskar Þórðarson er íþróttalæknir I. S. I. Á síðasta ári voru skoðaðir 497 manns, en skoðanirnar alls 794, því að margir voru skoðaðir oftar en einu sinni. Eitt af aðaláhugamálum I. S. I. er að koma upp íþróttaheimili í höfuðstaðnum, sem verði miðstöð og griðastaður íþrótta- hreyfingarinnar í landinu. Síðasta Alþingi heimilaði ríkisstjórninni að veita I. S. I. ókeypis lóð undir væntanlegt íþróttaheim- ili. Lóðin liggur milli Sölvhólsgötu og Lind- argötu og er 390 fermetrar að stærð. Á afmælisfundi Sambandsins 28. janúar var samþykkt eftirfarandi áskorun til sam- bandsfélaga: „Afmælisfundur I. S. I., haldinn 28. jan. 1944 1 Reykjavík sam- þykkir að skora á öll sambandsfélög I. S. I. að auka og efla virðingu æskulýðsins fyrir íslenzka fánanum, með því að hafa hann við hún á öllum hátíðisdögum sínum, íþróttamótum og félagsfundum.“ Ævifélagar I. S. I. eru 275, en ævigjald- ið er aðeins 50 krónur. Framkvæmdastjórn I. S. I. skipa: Ben. G. Waage, forseti, Jón J. Kaldal, vara- forseti, Frímann Helgason, ritari, Brand- ur Brynjólfsson skjalavörður, Kristján L. Gestsson gjaldkeri. En meðstjórnendur Höfðingjar með forfeðrum vorum. Eftirfarandi smákafli er úr hinni gagnmerku bók „Iþróttir fornmanna“, eftir dr. Björn Bjarnason t'rá Viðfirði. Lítilsvirður er sá höfðingi, er skortir þrek eða vilja til að efna loforð sín, ein- mana og fyrirlitinn sá maður, er eigi má treysta. — Og örlát er hún hin norræna hetja. Hún liggur ekki sem ormur á auð- legð þeirri, er hún hefir aflað sér og þolað til sár og raunir — enda var það ekki fégirnd, er knúði hana til vinningsins, heldur göfuglát framalöngun. Ágirnd og nízka eru einkenni bleyðimannsins, er skortir hvatleik til að fylla þurð þann, er eru: Jóhannes Stefánsson, Norðfirði, Sig- urður Greipsson, Haukadal, Þorgeir Svein- bjarnarson, Laugum og Þorgils Guðmunds- son, Reykholti. — Allir þessir menn vinna mikið og óeigingjarnt starf kauplaust. Ben. G. Waage er fæddur 14. júní 1889 í Rvík, sonur Guðjóns Einarssonar prent- ara í Reykjavík og Guðrúnar Benedikts- dóttur Waage. Ólzt hann upp í Reykjavík og lagði snemma stund á verzlunarstörf, var um skeið í Thomsensmagasíni, síðar hjá Th. Thorsteinsson og loks hjá Heildv. Garðars Gíslasonar, þangað til hann byrjaði á sjálfstæðum verzlunarrekstri og rekur hann nú verzlunina Áfram á Lauga- vegi 18 í Reykjavík. Lærði að synda um aldamótin hjá Páli Erlingssyni og tók síðan þátt í fimleikum, glímu, knattspyrnu, f jallgöngum, ferðalögum og sundi. Sund- kappi Islands 1911. Var kjörinn í stjórn I. S. I. 1915 og hefir átt sæti í henni síðan, fyrst sem gjaldkeri, en forseti frá 1926. Var þátttakandi í mörgum íþróttafélög- mn og hefir farið mjög oft utan með íþróttaflokkum eða sem fulltrúi 1. S. I. Hann hefir verið sæmdur ýmsum heiðurs- merkjum, m. a. Fálkaorðunni og Olympíu- orðunni. örlát hönd lætur eptir sig í sjóðnum. Göf- ugmennið neytir f járins til að varpa glæst- um ljóma á sig og sveit sína. Vinur deili vini. Höfðinginn sæmir menn sína gulli og glæsilegum búnaði, og þiggur að launum hollustu þeirra og hraustmannlega fylgd. Því örlátari sem hann er, því fjölmenn- ara kappaval flykkist um hann og eykur honum traust, því að „meira lið miklu fær mildr en glöggr til hildar.“ Hann er þá hinn ,,manngöfgi“ mæringur, sem er þess umkominn að vinna stórfengleg hervirki. Enn eru ótalin þau einkenni göfugrar hetju, að vera háttprúður í hversdagsfari sínu, hófsamur um alla hluti, stórlátur og þó alþýðlegur við menn, margspakur og unnandi kveðskap og sagnafróðleik. Skáld og fræðimenn skipa heiðurssæti í höllum tiginna höfðingja, því að þeir kunnu að- lypta minningu ágætra afreksverka yfir lönd og lýði, svo að leiðarljós þeirra mætti skína á æfibrautir komandi kynslóða og hvetja þær til atorku.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.