Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 87
MENNTAMÁL
149
nýju umhverfi verður meira nýjabrum á vinnubrögð-
um nemenda, einkum ef valin er sveit, þar sem náttúru-
skilyrði eru ólík þvi, sem þau eru lieima fyrir. Sé erfitt
að koma sér fyrir, þá má bjargast við lýðháskólana,
því að þeir starfa ekki á haustin. Þá er og liægt að koma
sér fyrir á sveitabæjum, sofa í liejdilöðum og nota tóm-
ar blöður eða útiliús sem vinnu- og setuherbergi. Þetta
hefir verið reynt og gefizt vel.
Iivert er hlutverk kennarans, sem stjórnar slikri för?
Það er óhjákvæmilegt, að kennarinn kynni sér áður
rækilega sveitina og þau verkefni, sem þar eru fyrir
hendi. Verkefnin eiga að vera þannig, að nemendur
hafi frjálsar hendur, en þó verður að sníða þeim svo
þröngan stakk, að nemendur missi ekki af heildaryfir-
sýn þeirra; heldur eklci má margbreytni mnliverfis vera
svo mikil, að allt fari í mola fyrir nemendum. Loks
verða verkefnin að vera þannig löguð, að þau bæði
veiti nemendunum starfsskilyrði og séu jafnframt til
leiðbeiningar við val á verkefnum í barnaskólum. Full-
ur árangur fæst aðeins með því, að nemandinn geri
grein fyrir athugunum sínum i velsömdum skýrslum,
er hann semur í víðavangsskólanum. Víðavangsskól-
inn verður að slanda algerlega á eigin fótum. Þegar
nemendurnir koma aftur i kennaraskólann, þá er svo
margt, sem kallar að, að ekki er unnt að semja slik-
ar skýrslur svo að vel fari.
Hvernig er svo úlilegunni háttad?
Sé veðrið gott fyrstu daga útilegunnar, þá er árið-
andi, að safna sem mestum gögnum og að fylla minnis-
bækurnar; eru menn þá við því búnir, að fá nokkurra
daga innistöðu, og geta þá unnið úr þessum gögnum
og minnisgreinum. Öllu lakara er það, þegar útileg-
an byrjar með óhagstæðu veðri, en þó verða kennar-
arnir að vera við því búnir. Má þá nota límann til nauð-
synlegrar bóklegrar fræðslu, svo sem aðferðir við korla-