Menntamál - 01.04.1959, Blaðsíða 60
54
MENNTAMÁl
gera vel við börnin, sem honum var trúað fyrir, en síðast
og fyrst þakka ég honum lífsást hans og lífsvilja.
Br. J.
í mínum huga var hann alla tíð heill og sannur, og ástúð-
legur félagi, broshýr sem mildur vordagur.
Arngrímur var kvæntur glæsilegri norskri konu, Henny
Othelie Helgesen frá Bergen. Þau áttu tvær dætur, Unni
Ingeborg og Áslaugu Helgu, sem nú eru báðar giftar.
Ég lýk svo þessari hinztu kveðju til Arngríms vinar
míns með alúðarfyllstu samúðarkveðjum frá mér og mínu
heimili, til frú Hennyjar og dætra hennar.
Við fráfall Arngríms Kristjánssonar skólastjóra er
fallinn í valinn einn af aðsópsmestu og beztu mönnum
íslenzku kennarastéttarinnar.
Jónas Jósteinsson.
Tíminn, 13. febrúar 1959.
Jafnframt varaformennsku sinni gegndi Arngrímur
ýmsum öðrum trúnaðarstörfum í þágu B. S. R. B., átti m.
a. sæti í tveim stjórnskipuðum nefndum er störfuðu á þess-
um tíma og falin var endurskoðun launalaga.
Ég var formaður bandalagsins öll þau ár er Arngrímur
gegndi þar trúnaðarstörfum, þannig að á herðum okkar
hvíldi sameiginlega sá vandi, að veita málefnum samtaka
þessara forystu. Þetta voru erfiðir tímar í kjaramálum
opinberra starfsmanna, enda eimdi enn eftir af þeim hugs-
unarhætti sem e. t. v. var skiljanlegur á kreppu- og atvinnu-
leysisárunum fyrir stríð, að starfsmenn hins opinbera væri
forréttindastétt í þjóðfélaginu, sem eðlilegt væri að lengst
allra biði eftir því að fá hækkað kaup til samræmis við sí-
hækkandi verðlag. I allri þeirri baráttu reyndist Arngrím-
ur ötull og fórnfús forystumaður, sem aldrei taldi eftir sér