Menntamál - 01.04.1959, Blaðsíða 102
96
MENNTAMÁL
byggingarinnar fram að þessu. Af því er búið að eyða
rúmum helmingi. Á frv. til fjárlaga fyrir yfirstandandi
ár er gert ráð fyrir 1 millj. kr. fjárveitingu. Verði það
samþykkt, verður fé fyrir hendi til þess að steypa upp
fyrsta áfangann og koma honum undir þak að minnsta
kosti. Að fengnu fjárfestingarleyfi verður byrjað á því
með vorinu og því lokið í sumar.
Hvort unnt verður að gera meira á þessu ári skal ósagt
látið að sinni.
HELGl TRYGGVASON:
Bókarfregn.
Kennaraskóli íslands 1908—1958. Freysteinn Gunnars-
son tók saman. Útgefandi: ísafoldarprentsmiðja h.f. 1958.
Kennaraskóli íslands hefur nú starfað hálfa öld, eitt-
hvert mesta breytinga- og þróunarskeið í íslenzku þjóðlífi
og atvinnuháttum. Saga hans er því einn þáttur úr sögu
þjóðar vorrar og þó samsnúinn mörgum öðrum þáttum.
Saga þessa fyrsta kennaraskóla á Islandi, þessa sérstæða
alþýðumenntaskóla þjóðarinnar, er því íslandssaga með
sínum margháttuðu tilbrigðum. Sjálfstæðisbarátta þjóðar-
innar kemur þar fram, vorhugur og bjartsýni á fyrsta ára-
tug aldarinnar, síðan erfiðleikar og lamandi áhrif tveggja
heimsstyrjalda með tilheyrandi losi í hugsunarhætti í kjöl-
farið, viðhorf stjórnmálamanna til skólans, bæði til heilla
og hindrunar, breyttar menntunarkröfur með breyttum
tímum, sem mættu þó löngum tómlæti gagnvart öllum að-
búnaði skólans. Löng væri sagan, ef rituð væri ýtarlega,
og drægi drjúgt til sín. í þessari 285 bls. bók í skírnisbroti,