Menntamál - 01.04.1965, Blaðsíða 12
6
MENNTAMÁL
Menntaskóli Norðmanna var 5 ára skóli með samræmdu
námsefni um allt land og var í miklu áliti. Eftir 2. árið í
menntaskólunum var liægt að velja milli menntadeifdar,
sem lauk með stúdentsprófi að 3 árum liðnum, og gagn-
fræðadeildar, sem lauk með gagnfræðaprófi að 1 ári liðnu.
Sífellt fleiri foreldrar kröfðust inngöngu í menntaskól-
ana fyrir börn sín, og í sumum borgum fór u. þ. b. 80%
barnafjöldans í menntaskólana. Þessi skóli var afbragð fyr-
ir börn með hæfileika til bóknáms — e. t. v. 30—40% barna-
fjöldans. Aðrir framhaldsskólar, sem höfðu breytilegan
námstíma, allt frá 18 vikum til 2ja ára, reyndu áður fyrr
að veita úrlausn í Jressu efni, en Jxtð var ógjörningur að
gera þessa skóla jafna og samræma námsefni þeirra um
land allt.
A sama tíma var orðið aðkallandi, sérstaklega í dreiibýl-
inu, að treysta og efla barnaskólann.
Núverandi skólakerfi stefnir að:
a) 9 ára samræmdum skyldunámsskóla um allt land með
sundurgreiningu síðustu 2 árin í þeim tilgangi að gefa
börnunum möguleika á að þroskast í samræmi við hæfi-
leika sína, og
b) skólakerfi, þar sem níu ára skyldunámsskólinn er
grundvöllur alls frekara náms.
Það er enginn mismunur á námsefni fyrstu 7 árin. Enska
er skyldunámsgrein frá 5. bekk, og það er hægt að velja
um 2 námsskrár í ensku í 7. bekk. 1 aðalkennslugreinun-
um (norsku og stærðfræði) og ensku eru 3 mismunandi
námsskrár tvo síðustu veturna. Námsskrá nr. 1 er auðveld-
ust og nr. 3 þyngst. í eðlis- og efnafræði eru tvær námsskrár
(sömuleiðis í Jrýzku fyrir nemendur, sem kjósa annað erlent
tungumál til viðbótar).
Nemendur geta valið námsefni við hæfi í hverri þessara
námsgreina, sem vera skal. og þeir hafa möguleika á að
breyta um námsskrá. íðskóli getur byggt á blandaðri náms-
skrá, t. d. námsskrá nr. 3 í norsku og ensku og nr. 1 í stærð-