Menntamál - 01.08.1966, Side 56

Menntamál - 01.08.1966, Side 56
142 MENNTAMÁL hina eiginlegu ritþjálfun barna. Auðvitað verður forþjálf- un þessi að miðast við reynslu og skilningsgetu barnanna; með „góðum bókmenntum“ á ég auðvitað við góðar sögur og ljóð við barna hæfi. Enn er þó mikilvægur þáttur ótalinn. Á ég þar við tal og umrœður milli barnanna sjálfra eða með þátttöku kenn- arans. Þótt slíkar talæfingar, bæði frjálsar og bundnar eða skipulagðar, heyri til forþjálfunarstiginu í ríkum mæli, eru þær engu síður nauðsynlegar síðar meir, því að stöðugt þarf að leggja áherzlu á samband munnlegrar og skriflegrar tjáningar. Óþvinguð og frjáls munnleg tjáning barns í sinn hóp er yfirleitt nauðsynleg forsenda þess, að það geti tekið á sig þá ábyrgð, sem því fylgir að setja fram og verja skoð- anir sínar og fullyrðingar í skipulegri umræðu. Talæfingum má skipta í tvo flokka: frjálsar og bundnar talæfingar. Einkenni frjálsra talæfinga er margbreytileiki umræðuefna eftir því sem talið berst hverju sinni og lítil þátttaka kennarans, nema til þess að halda uppi nauðsyn- legum aga og fitja upp á nýju umræðuefni, ef í strand rekur. Frjálsar talæfingar hafa einkum sálfræðilegt gildi fyrir nemendur, þær hjálpa til að losa um hömlur á tján- ingarvilja óframfærinna nemenda, kynna börnin betur hvert öðru og skapa félagsanda innan bekkjarins. Að sjálf- sögðu verður kennarinn að fylgjast vandlega með því, að enginn nemandi verði afskiptur í frjálsum talæfingum. Bundnar talæfingar eða skipulagðar eru annars eðlis. Þær eru sniðfastari og meir undir stjórn kennarans en frjálsar talæfingar. Geta bundnar talæfingar verið með ýmsu móti. Ég get hér stuttlega nokkurra, sem ef til vill gætu komið að gagni. 1. Tvö börn snúa bökum saman, meðan annað þeirra gefur hinu munnleg fyrirmæli um, hvernig það skuli leysa af hendi eitthvert létt verk í höndunum, t. d. þræða nál eða binda sérstakan hnút. Hinir í bekknum horfa á og gagnrýna mistök.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.