Menntamál - 01.04.1969, Page 106
100
MENNTAMÁL
erindi um verkkennslu í skólum. Að því loknu hófust um-
ræður um erindi og álit nefnda. Kl. 15,30 fór þingheimur í
heimsókn í Kennaraskóla íslands. Vegna mikilla umræðna
og skamms tíma var ákveðið að slíta þinginu í Kennaraskól-
anum að lokinni heimsókn þar. Skólastjórinn dr. Broddi
Jóhannesson bauð fulltrúa velkomna með stuttri ræðu, en
síðan drukku gestir kaffi í boði skólastjórahjónanna. Að því
loknu var skólinn skoðaður undir leiðsögn skólastjórans og
Guðmundar I. Guðjónssonar, yfirkennara. Þeir lýstu einnig
í fáum dráttum starfsemi og helztu nýjungum í starfi skól-
ans. Jón Hjálmarsson 2. forseti þingsins þakkaði móttölcur.
Kl. 17,15 var svo þingfundur settur að nýju og var störfum
þingsins lokið kl. 18.00, og sleit þá Ólafur S. Ólafsson for-
maður LSFK þinginu með stuttri ræðu. Erindin þrjú, sem
flutt voru vöktu mikla athygli. Gert er ráð fyrir, að þau
verði birt í tímariti kennarasamtakanna „Menntamálum."
Þingið sótti að jafnaði 70-80 manns og þegar flest var
120.
Ályktanir uppeldismálaþings 1969
Ráðgjafar- og sálfrœðiþjónusta.
Uppeldismálaþingið telur brýna nauðsyn, að skipulegri
ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu verði komið á sem fyrst í
skólum landsins. Sett verði ákvæði um þetta í skólakostn-
aðarlögin og ný fræðslulög.
Um leið og þingið treystir því, að hraðað verði eftir föng-
um undirbúningi slíkrar þjónustu fyrir allt landið, vonar
það, að Sálfræðideild skóla í Reykjavík og hliðstæð starf-
semi annarra sveitarfélaga verði stórlega efld, svo fljótt sem
verða má.