Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2002, Side 28

Bjarmi - 01.12.2002, Side 28
um. Það sem gildir í samfélagi gildir einnig í fjölskyldulífi og þjóðfélaginu almennt. Aó fyrirgefa og biðjast fyrirgefningar eru nauð- synlegir þættir í sérhverju sambandi manna sem byggir á kristnum gildum og trausti, er boóskapur Maríusystra. A 6. og 7. áratugnum leitaðist Móðir Basí- lea við að ná tengslum vió kristið fólk í öðr- um samfélögum og af öðrum þjóóernum. Hún er þeirrar skoóunar aó: „Því nær sem við stöndum kærleiksríku hjarta Guðs því meir nálgumst vió hvert annað.” Innan systrafélagsins, sem var stofnað innan þýsku evangelísku mótmælendakirkj- unnar, eru konur úrýmsum kirkjum, einkum lúterskum kirkjum og öðrum siðbótarkirkj- um, en systrafélagið hefur mikil tengsl við aóra trúaða, svo sem fólk úr kaþólsku kirkj- unni, rétttrúnaóarkirkjunni og koptísku kirkjunni. Að stríóinu loknu sameinaði Móðir Basí- lea sig sekt þjóðar sinnar með því að heim- sækja þá staði í nágrannalöndunum - þar sem nasistar höfóu framió grimmdarverk - til að ná sáttum við Tékka, Pólverja og fleiri, einkum gyóinga. A stjórnarárum Hitlers hafói Móðir Basílea hafnaó stefnu nasista þess efnis að gyðingar mættu hvorki vera starfsmenn kirkna né opinberir starfsmenn (aríska ákvæóið) á þeim tíma þegar hún var forseti kvennadeildar Kristilegra náms- mannasamtaka Þýskalands. Sem þegn lands síns þráói hún að bæta fýrir syndir fortíðarinnar í þeim anda sem fjallað er um í 9. kafla Daníelsbókar og finna leiðir til að láta í Ijós kærleika sinn til Guðs útvöldu þjóðar. Þetta varó til þess árið 1961 að opnaó var lítió gestaheimili í Jerúsalem handa þeim sem höfðu lifaó Helförina. Við vígslu hússins sagði fýrrverandi borgarstjóri Jerúsalems: „Við viljum gleyma öllu öðru smám saman og horfa aðeins til þeirrar sátt- ar og kærleika sem þú hefur fært okkur...” Aukin boðun Arin lióu og ýmsar leióir opnuóust fj/rir boð- skap Kanaans sem byggður er á Biblíunni. Þegar eftirspurnin jókst dugói Ijósritunarvél- in ekki lengur. Var þá stofnuó prentsmiðja og útgáfufyrirtæki. Móðir Basílea hefur samió fleiri en 100 rit - auk marga söngva - sem hafa verió þýdd á fleiri en 60 tungumál. Sökum þekkingar hennar á viðburðum nútímans hefur hún verið nefnd spámaður þessarar kynslóóar. Bréffráýmsum löndum vitna um líf marga manna sem hafa snúist til trúar á Krist eftir að hafa lesið rit hennar. Hvetjandi stuttir textar, undirritaðir MB, eru fáanlegir á fleiri en 80 tungumálum og boða fólki í öllum menningarheimum fagnaðarer- indið. Hljóóver var reist til útvarpssendinga og síóar myndver til sjónvarpssendinga. Brátt var farið að senda út hljóósnældur og mynd- bönd og boóun Kanaans barst land úr landi. Lofgjörðarskiltum með biblíu- og sálmavers- um hefur verið komið fyrir á eftirsóttum ferðamannastöðum - í Miklagljúfri í Banda- ríkjunum, í Himalajafjöllum, á Kilimanjaro- fjalli í Afríku og Jungfrau-fjalli í Sviss - þar sem athygli er vakin á skaparanum. í tveim kapellum, sem reistarvoru í svissnesku Ölp- unum, ergestum boóið að lofa Guð. „Óttist Guó og gefió honum dýrð“ Opb 14.7. er boóskapur handa samtímanum. A mörgum helgum stöðum í Israel eru skilti sem vekja ekki aóeins athygli á löngu liðnum atburóum heldur hvetja þau feróa- menn til aó helga sig Guði. Systurnar hafa um árabil sinnt pílagrímum á Olíufjallinu. Síóar hafa verið opnaðar deildir víós vegar um heim, og sums staðar jafnvel lítil Kana- ans-lönd. Reglan I kjölfar heimsóknar Móður Basíleu til Sínaí- fjalls 1963 varð til svonefnd Kanaans-regla þar sem sameinaður er boðskapur Boðorð- anna tíu og Fjallræóunnar. (Sjá „Thejoy of My Heart”). „Kærleikur, fýrirgefning, jöfnuð- ur, að bjóóa hinn vangann, trú á Guð við all- ar aóstæóur" - allt eru þetta lögmál sem Guð setti fýrir himnaríki. Og þau verka. Þeg- ar hópur fólks fer eftir þeim í kærleiksríkri hlýðni þá dvelur hann meóal þeirra eins og hann hét (Jh 14.23). Kanaans-fjölskyldan Kanaan er ekki aðeins heimili Maríusystra, sem eru af ýmsu þjóðerni, heldur einnig heimili Þyrnikórónusystra (sem hafa verið kallaðar síðar á ævinni) og síðan 1967 heimili Fransiskusarbræðra Kanaans. Tengsl vió Kanaan hafa Þyrnisystur og Kanaansvin- ir - fólk sem hefur sömu andlegu markmió og Kanaan en hefur verið kallað til starfa fýr- ir Drottin annars staðar, vegna fjölskyldu, atvinnu eða í öðrum kirkjudeildum. lórun - gleóiríkt líf Nú á dögum koma gestir hvaóanæva úr heiminum til að biðjast fýrir í Boóberakirkj- unni. A nýársdag, páskum og allt sumarió eru haldnar hátíðir og fagnaðarsamkomur undirýmsum heitum með söng, bænum og boðun orðsins. Kanaan er land Guðs og bæn Maríusystra er sú aó allir fái augum lit- ið hjarta Guðs þegar þeir hafa reynt sjálfir raunveruleika iðrunar - gleðiríkt li'f: Daglega bregðumst við, daglega getum við nálgast krossjesú Krists, daglega fáum við að reyna að okkar himneski faðir býóur okkur vel- komin, eins og sagt er frá í dæmisögunni um týnda soninn. Þá fáum við forsmekkinn af þeirri Paradís sem Jesús hét hinum iðrandi syndara á krossinum: „í dag skaltu vera með mér í Paradís." Lk 23.43 er boðskapurinn sem hljómar frá Kanaanlandi. Maríusystur hafa heimsótt Island nokkrum sinnum og talaó í nokkrum kirkjum þ.á.m. hjá íslensku Kristskirkjunni og á samkomum hjá KFUM og K og Hjálpræðishernum. Ómar Kristjánsson er framkvœmdastjórí. 28

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.