Æskan - 01.11.1975, Blaðsíða 81
sín eigin landamerki, þótt þar standi
ekki landamæraverðir, líkt og í kon-
ungsríkjunum úti í heimi.
Góður bóndi verður að vera vökull
og sívinnandi að búi sínu. Að vorlagi
þarf hann að huga vel að lambfénu,
koma nýbornum ám í hús með lömb
sín, ef gerir vont veður. Hann þarf að
fylgjast með þvf, hvort nýfæddu lömb-
in „komist á spena“ og ósjaldan þarf
hann að vaka yfir kúm sínum f fjósinu,
þegar þær eru komnar að burði, þ. e.
a. s. eiga kálfa. Stundum þarf hann að
sækja dýralækninn.
Góður bóndi er dýravinur og lætur
sér annt um, að skepnum hans |íði
vel, enda er það hlutur, sem borgar sig.
Vel meðfamar skepnur gefa meiri af-
rakstur, tekjur búsins verða meiri.
Ef til vill er það þessi fjölbreytilega
samvinna við móður náttúru og móður
jörð, sem gerir bústörfin svo heillandi,
þótt hinu sé ekki að neita, að oft er
vinnudagurinn langur við búskapinn og
oft þarf bóndinn að leggja riótt við dag
við vinnu sína ef vel á að fara. Hins
vegar eru ánægjustundirnar einnig
margar, þegar sól skín f heiði og vel
gengur vinnan.
Gott er það fyrir drengi í kaupstöð-
um og borgum, sem langar til þess
að verða bændur, að vera á sveita-
bæ og kynnast störfunum þar. Þeim
tíma er ekki á glæ kastað, verið vissir
um það.
Sá, sem byrja vill búskap, þarf eng-
in sérstök próf eða skólagöngu. Oft
er það svo, að bóndasonurinn tekur
við búi föður síns, að honum látnum
eða hættum búskap fyrir aldurs sakir.
Hinu er ekki að neita, að ágætt mun
það vera fyrir bændaefni að fara á
bændaskóla. Þeir eru tveir hér á landi,
annar á Hvanneyri í Borgarfirði, en
hinn að Hólum í Skagafirði.
Hvanneyrarskólinn var stofnaður
1889, og hefur starfað óslitið síðan.
[ fyrstu var hann í tveimur deildum og
var verklegt nám mjög verulegur þátt-
ur í námi því er skólinn veitti. Með
aukinni verkþekkingu og bættri náms-
aðstöðu hefur námið smám saman
breyst, þannig að f dag er skóiinn
hreinn fagskóli.
Árið 1947 var stofnað til framhalds-
menntunar við skólann og er það eina
framhaldsmenntunin, sem unnt er að
afla sér hérlendis f landbúnaðarfræð-
um.
Skólinn starfar nú í þremur deildum:
1. Búfræðideild.
2. Undirbúningsdeild, sem veitir und-
irbúningsnám undir framhalds-
menntun á Hvanneyri, fyrir þá nem-
endur sem ekki hafa stúdentspróf.
Námstími er ca. 40 vikur.
3. Búvísindadeild.
BÚFRÆÐINÁM Á HVANNEYRI
Bændadeild skólans útskrifar nem-
endur sem búfræðinga eftir eins vetr-
ar nám. Námstímabil er frá 1. október
til 15. maf. Að jafnaði eru um 60—60
nemendur í deildinni.
Skilyrði fyrir skólavist eru:
1. Nemandinn sé fullra 17 ára, með
óflekkað mannorð og ekki haldinn
næmum sjúkdómum.
2. Nemandinn hafi lokið gagnfræða-
prófi eða landsprófi miðskóla.
3. Nemandinn hafi unnið við landbún-
að minnst eitt ár eftir fermingu.
4. Nemandinn hafi ábyrgð fuilveðja
manns fyrir allri greiðslu á þeim
kostnaði, er stafar af dvö| hans f
skólanum.
Námið skiptist f eftirfarandi svið:
A. Líffræði (líffæra- og Iffeðlisfræði,
efnafræði, erfðafræði og gerla-
fræði).
B. Búfjárrækt (kynbótafræði, mjólkur-
fræði og almenn búfjárfræði).
79