Æskan - 01.11.1975, Blaðsíða 84
NR. 211 TF-LLK
DOUGLAS DC-8F
Skráð hér 4. nóv. 1971 sem TF-LLK, eign Loftleiða hf.
Vélin var fengin frá Seaboard World Airlines (N 802SW).
Ætluð til farþega- og vöruflugs. Bar nafnið Leifur Eiríks-
son.
Hún var smíðuð árið 1965 hjá Douglas Aircraft Co., Long
Beach, Calif. Raðnúmer: 45818.
Loftleiðir notuðu þotu þessa sérstaklega mikið á leið-
um til Skandinavíu. Hún var afskráð hér 24. júlí 1973,
fékk aftur N 802 SW, og var áfram notuð af Loftleiðum
(Air Bahamas), sem síðar skiluðu henni til Seaboard World,
sem seldi hana svo Martinair í Hollandi. Flugvélin fórst
4. des. 1974 með 191 mann innanborðs á Sri Lanka
(Ceylon), er hún rakst á fjall í aðflugi.
Douglas DC-8F-55. Hreyflar: Fjórir 8.162 kg. þrýst. Pratt
& Whitney JT3D-3B. Vænghaf: 43.41 m. Lengd: 45.87 m.
Hæð: 12.91 m. Vængflötur: 266.5 m2. Farþegafjöldi: 161.
Áhöfn: 8—9. Tómaþyngd: 59.526 kg. Grunnþyngd: 60.610
kg. Hámarksflugtaksþyngd: 147.420 kg. Arðfarmur: 24.160
kg. Farflughraði 932 km/t. Flugdrægi: 9.205 km. 1. flug:
Sería 50: 20. des. 1960.
NR. 217 TF-SÝR
FOKKER FRIENDSHIP
Skráð í Japan 26. apríl 1972 sem TF-SÝR, eign Ríkis-
sjóðs íslands. Hún var keypt af C. Itoh & CO., Ltd., en
hafði áður verið í eigu All Nippon Airways (JA 8635).
Hún var hér ætluð Landhelgisgæslunni til eftirlitsflugs.
íslensk áhöfn (flugstj. Ingimar Sveinbjörnsson, Jón Péturs-
son og Steindór Jónsson) flaug henni hingað til lands.
Hún var smíðuð 1964 hjá Hinum konunglegu Hollensku
flugvélaverksmiðjum, Fokker. Smfðanúmer: 10260.
Hér var bætt í ílugvélina tækjum og búnaði vegna
gæsluflugsins. í henni eru um 20 sæti.
FOKKER F-27-200 FRIENDSHIP: Hreyflar: Tveir 2020
hha. Rolls-Royce Dart R. Da 7. Vænghaf: 29.00 m. Lengd:
23,51 m. Hæð: 8,50 m. Vængflötur: 70 m2. Áhöfn 2. Tóma-
þyngd: 11.761 kg. Grunnþyngd: 17.742 kg. Hámarksflug-
taksþyngd: 19.051 kg. FarflugPlraði: 445 km/t. Hámarks-
flughraði 740 km/t. Hámarksflughæð: 7.500 m. Þjónustu-
flughæð: 3.600 m. 1. flug 24. nóvember 1955.
LJósm. Amgrímur SlgurSsson.
82