Æskan - 01.11.1975, Blaðsíða 57
Systurnar Ósk og Jóhanna, sem stunda nám ur. Hin fyrrnefnda fékk verðlaun og heiðurs-
viS gagnfræðaskóla í New York, dætur Arnar skjöl frá skólanum og sú síðarnefnda verðiaun
Viggóssonar og Berglindar Ósvaldsdóttur, fengu og heiðursskjal frá New York-borg fyrir hæstu
nýlega viðurkenningu fyrir frábæran námsárang- einkunnir, sem gefnar hafa verið þar í borg.
Það var hesthúsalykt af henni og hún talaði bara um
hesta. Það var því ekki erfitt að giska á hvar hún
hélt sig þegar hún var ekki í skólanum. Hún virtist
aíls ekki kunna neitt illa við sig. Og við sögðum
hvert við annað: Kannski heldur Öl frændi svo mikið
upp á Rósalindu, að hann arfleiði hana bæði að
frímerkjunum og ölgerðinni.
En það var ekki gaman heima þegar Rósalindu
vantaði, þrátt fyrir Knútta. En hann var nú svo lítill
ennþá og maður getur orðið þreyttur á þeim sem ekki
geta talað um neitt annað en módelflugvélar.
Tíminn leið og íbúð fengum við ekki, hvernig sem
við fórum að. Pabbi var oftar heima en vanalega og
maður var alltaf að detta um sýnishornatöskurnar
hans í forstofunni. Hann var að reyna að gera eitt-
hvað með síðustu uppfinninguna sína, kastrúlluna
Píp, sem hann hafði fengið einkaleyfi á, það besta
sem hann hafði nokkru sinni fundið upp. Hann var
að láta framleiða hana á einhverju litlu verkstæði.
Nú var hann að reyna að vekja áhuga einhverra ríkra
manna eða fyrirtækis á uppfinningu sinni, en það
gekk erfiðlega. Hvern eyri sem hann hafði sparað
saman hafði hann lagt í uppfinninguna og samt var
hann hræddur um að allt færi út um þúfur hjá hon-
um, svo útlitið var heldur svart.
En þið megið ekki halda að það hafi verið nokkuð
að Píp. Við notuðum hann sjálf við húshaldið. Og
mamma sagði að það væri bara eins og þessi kast-
rúlla gæti hugsað sjálf. Maður þurfti aldrei að hugsa
um hana. Hún vár þannig að það var eins og aldrei
gæti brunnið við í henni, og það sauð fyrr í henni,
heldur en nokkrum öðrum potti, og um leið og mat-
urinn var tilbúinn, flautaði hún svo kröftuglega, að
mamma missti bókina sem hún var að lesa í og lyfti
upp kastrúllunni. Pabbi hafði eiginlega fundið þetta
upp af því mamma var alltaf að lesa og gleymdi matn-
um yfir eldinum svo'hann þornaði og brann við. Og
pabba fannst viðbrenndur matur ekki góður.
Píp hafði 3 hólf hvert yfir öðru. Það var eins og
þrjár kastrúllur í einni. Því var t. d. hægt að sjóða
kjötböggla í einu hólfinu, kartöflur í öðru og epla-
mauk í því þriðja. En hann var svo ólíkur öllum öðrum
kastrúllum, að fólk hélt að hann væri eitthvað gall-
aður. Það var því ekki eins mikil eftirspurn eftir Píp
og við höfðum haldið.
(Framhald).
Upplag ÆSKUNNAR í dag er 18000 eintök
55