Æskan - 01.11.1979, Blaðsíða 92
SPILAREGLUR:
4. Þú ferð aukaferð í blöðruhringekjunni, svo að þú
verður að bíða eina umferð.
10. Þú komst í „káta eldhúsið" og hittir einn diskinn.
Þú færist fram á nr. 14.
16. Lífvörðurinn íTívolí gengur um spilandi, og hann er
svo glæsilegur á að líta, að þú hinkrar við, uns þú
færð tvo eða fjóra.
21. Þú horfir á látbragðsleikinn og einhver hrópar
„húrra fyrir Pjerrot“. Pjerrot segir, að þú megir
varpa teningnum einu sinni enn.
25. Nú ertu í skriðbrautinni, en þú áttir ekki að standa
upp þar, því að það er bannað og hættulegt að auki.
„Að launum“ færðu að byrja upp á nýtt.
31. Þú kannt að skjóta bangsa, svo að þú færist fimm
reiti fram.
37. Tívolí-ferðin endar í speglasalnum. Það er skrítið,
hvað ég varð lítill og feitur í siðasta speglinum,
hugsar þú. Það er erfitt að finna útganginn, og hann
finnur þú ekki fyrr en einn kemur upp!
Það geta allir tekið þátt í þessu spili. Keppendur fá sér
mislitar tölur, nota tening til að kasta upp og færa fram
jafnmarga reiti og „augun" á teningnum sýna. Stundum
græða menn á mislitu reitunum, stundum tapa þeir,
stundum jafnvel svo, að þeir verða að hefja leikinn að
nýju. Góða skemmtun!
86