Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1989, Blaðsíða 32

Æskan - 01.04.1989, Blaðsíða 32
Tölvur Koma á kynnum Börn í íslenskum grunnskólum kynnast dönskum nemendum með aðstoð tölvutækni Nokkrir áhugasamir nemendur í Hjallaskóla, ásamt Kristínu Steinarsdóttur kerfisfræð- ingi hjá IBM, við tækjabúnaðinn sem skólinn hlaut að gjöf frá IBM á íslandi - /' tengslum við íslenskt-danskt samskiptaverkefni. Hjallaskóli, Foldaskóli, Grunnskólinn í Þorláks- höfn og Hallormsstaðaskóli tengjast beint við erlendar námsstofnanir með þessum tölvubúnaði. Tæknin gerir okkur ýmislegt ótrúlegt kleift. Núna geta krakkar í fjórum íslensk- um grunnskólum „talað við“ jafnaldra sína í Danmörku gegnum tölvur. Með þessu komast krakkarnir í náið samband hverjir við aðra þó að fjarlægðin á milli landa þeirra sé mikil. Þeir kynnast áhugamálum og starfi danskra skólabarna og siðum og venj- um fólks í Danmörku. íslensku nemend- urnir fá líka tækifæri til að bæta dönsku- kunnáttu sína og reyna kannski að kenna dönskum félögum sínum nokkur vel valin orð í íslensku. Það var IBM á íslandi sem í janúar sl. gaf Hjallaskóla í Kópavogi, Foldaskóla í Reykjavík, Grunnskólanum í Þorlákshöfn og Hallormsstaðaskóla tölvu og annan bún- að til að gera þessi samskipti möguleg. Nemendur í 6.-9. bekk í þessum skólum hafa tekið upp samband við nemendur í Danmörku. Einnig geta skólarnir fjórir haft samband sín á milli og byggt upp íslensk „tölvuvináttusambönd". Með IBM tölvun- um í grunnskólunum fjórum fá nemendur og kennarar tækifæri til að kynnast saman kostum og möguleikum tölvunnar við kennslu. Ánægður nemendahópur Það var mjög ánægður hópur nemenda og kennara við Hjallaskóla sem tók form- lega við þessari góðu gjöf frá IBM. Við- staddir afhendinguna voru einnig fuiltrúar hinna skólana og fylgdust allir viðstaddir áhugasamir með tölvuskjánum þegar nem- endur Hjallaskóla töluðu við jafnaldra sína í Hallormsstaðaskóla um daginn og veginn. Tölvur eiga ótvírætt erindi inn í grunn- skóla landsins. Flestir sjá í þeim hagnýt vinnutæki fyrir kennara og stjórnendur skóla en færri gera sér grein fyrir að þar er á ferðinni öflugt hjálpartæki fyrir nemendur. „Hermilíkön" eru nýtt tölvunámsefni Um leið og IBM afhenti tölvurnar var kynnt nýtt tölvunámsefni sem komið er á markaðinn. Er það kennsluforritið „hermi- Iíkön“ sem sýnir með aðstoð tölvu hvernig hægt er að líkja eftir vissum aðstæðum. Líkön eru notuð alls staðar í kringum okk- ur. Þegar við notum landakort eða kort af götum borgarinnar erum við að nota líkan af raunveruleikanum. Teikning af húsi er einnig líkan. Með hermilíkani er hægt að láta tölvuna líkja eftir breytingum á mann- fjölda á íslandi langt fram í tímann. Við getum t.d. séð hve margir krakkar verða á skólaaldri á íslandi árið 2030. Eins er hægj að láta tölvuna líkja eftir ferli sjúkdóma, 11 að mynda er hægt að láta hana líkja eftir m- flúensufaraldri í skólabekk. Hermilíkön geta sýnt margt, marg1 fleira. En þegar við notum þau til að líkla eftir einhverju úr daglega lífinu getur töh'- an ekki gefið svör svo að engu skeiki. Þegaf raunveruleikinn er annars vegar getum V1 sjaldan fengið alveg óyggjandi svör. Engu að síður geta hermilíkön verið mjög gagnleg og oft líka skemmtileg. í bókinni Hermilíkön er lýst notkun seX hermiforrita; ævilengd íslendinga, ntann þöldaspá, aðstæðum úr umferðinni, biðro um við afgreiðslukassa í stórmörkuðunt; smithættu í skólabekk og „rúllettu“. 32ÆSKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.