Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1989, Blaðsíða 39

Æskan - 01.04.1989, Blaðsíða 39
skoðunar á rokkhljómplötur. Þau vildu láta banna sölu á bárujárns- rokkplötum til fólks undir 18 ára aldri. Sömuleiðis kröfðust þau þess að rokkplötur væru merktar aðvörun- armiðum á borð við: „Varúð! Djöfla- dýrkun!" - „Varúð! Klám!“ - „Var- úð! Ofbeldi!“ - o.s.frv. Samtökin fóru í harða áróðursherferð gegn bárujárnsrokki og reyndu að sann- færa almenning um að bárujárnsrokk stuðlaði að sjálfsmorðum og ofbeldi. Herferð Verndarsamtakanna kom af stað háværri umræðu í Bandaríkj- unum og víðar um bárujárnsrokk. Afleiðingin varð sú að nú er báru- járnsrokkið vinsælasti músíkstíllinn í Bandarkjunum. Kiss-kvartettinn naut góðs af þessari umræðu eins og aðrar bárujárnsrokksveitir. Kiss hef- ur endurheimt fyrri vinsældir, rétt eins og Ozzy Osborne, Def Leppard, Whitesnake og fleiri þungarokkarar. Eftir Kiss liggja um tveir tugir platna. Duran Duran Kæra Popphólf Æskunnar! Mér datt í hug að gefa ykkur upplýsing- ar um Duran Duran. Flestir vita líklega um það sem á daga hljómsvcitarinnar dreif þcgar hún var sem vinsælust. Ég er því ekkert að tíunda það. En ég vil benda á bók um Duran sem bókaútgáfan Forlag- ið gaf út 1988. Það væri líka gaman að fá veggmynd með hljómsveitinni. Hér koma upplýsingarnar: Duran-Duran-ævintýrið hefst 1981. Fá kom fyrsta DD-platan á markað, sam- nefnd hljómsveitinni. Nokkur lög af henni náðu efstu sætum evrópskra vin- sældalista. DD-kvintettinn kom fram á sjónarsvið- ið á besta tíma. Spandau Ballett, Ultravox °- fl- höfðu komið inn á nýbylgjumarkað- tnn breska með poppað og aðgcngilegt cn þó ferskt afbrigði af þýsku tölvupoppi. Afbrigðið kallaðist nýrómantík vegna þeirrar ofuráherslu scm flytjcndurnir lögðu á útlitið. Víð og vönduð jakkaföt, hárliðunarvökvar, hárlitir, strípur og jafn- Vcl andlitsfarði virtust skipta jafnmiklu máii og sjálf músíkin. Músíkmyndbönd voru að ryðja sér til rúms. Þau gáfu sjón- rænni hlið poppvettvangsins mciri athygli en nokkru öðru. DD-kvintettinn markaði sér strax braut innan nýrómantíkurinnar. Vönduð myndbönd DD opnuðu hljóm- sveitinni fljótlega lcið út fyrir Evrópu- markaðinn. Á hljómleikum DD var komið fyrir risastórum sjónvarpsskermum til að ná myndbandsímyndinni sem bcst. Auk þcss var söngvari DD Símon Le Bon, lærður dansari (og leikari). Það kom sér bctur í nýrómantíkinni en miklir sönghæfileikar. Satt að segja vantaði nokkuð upp á það að Símon væri góður söngvari. DD var með fyrstu poppurum til að gefa út löng myndbönd, sérstaklega ætluð til sölu í hljómplötuverslunum. sældakosningum Æskunnar. Það væri gaman að fá Duran til íslands og að sjá mcira skrifað um hljómsveitina í Æsk- unni. Kær kveðja, Duran-addáandi. Svar: Kærar þakkir fyrir upplýsingarnar. Því miður varð að stytta pistilinn en hann ætti þó að gefa lesendum mynd af þcssari vel kynntú nýrómantísku sveit frá Englandi. Ef margir biðja um veggmynd er næsta víst að orðið verður við þeirri bón. 1985 var DD-kvintcttinn fcnginn til að semja titillag James Bond-kvikmyndar- innar „A Vicw To a Kill“. Þcir DD-piltar sömdu fleiri lög fyrir kvikmyndina. Þau lög voru flutt af sinfóníuhljómsveit. Allt um síauknar vinsældir var komin viss þreyta í samstarf fimm-menninganna. Til að komast út úr þeirri stöðnun, sem þreytunni fyigdi, var DD skipt í tvær hljómsveitir, Powcr Station og Arcadia. Hvorug sveitin náði sömu vinsældum og DD naut. 1986 var rcynt að sameina DD á nýjan leik. En Roger Taylor (úr Arcadia) og Andy Taylor (úr Power Station) voru búnir að missa áhugann. Símon, Nick Rhodes og John Taylor hafa þó starfað saman undir Duran-nafninu. Reyndar er nafn tríósins nú skrifað sem eitt orð, Dur- anduran. Tríóið hefur ekki haldið vin- sældum kvintettsins í Evrópu. En í Bandaríkjunum og Japan njóta þeir óskertra vinsælda. Plötulisti: Duran Duran 1981 - Rio 1982 - 7 & The Ragget Tiger 1983 - Arena 1984 - A View To a Kill 1985 - Notorius 1986 - Big Thing 1988. DD-kvintcttinn kom oft vel út úr vin- R.E.M. Kæra Popphólf! Getið þið birt vcggmynd og upplýsingar um hljómsveitina R.E.M.? R.E.M.- aðdáandi Svar: R.E.M.-kvartcttinn var stofnaður sem menntaskólahljómsveit í Athens í Banda- ríkjunum 1981. 1 upphaft lék kvartcttinn lög eftir breskar pönksveitir, á borð við Sex Pistols, og bandaríska þjóðlagarokk- ara, s.s. Sonny & Cher og Byrds. Þegar R.E.M.-piltarnir fóru að flytja eigin söng- lög virðast Byrds-lögin hafa skilið mest eftir. Áhrif frá bresku pönkbylgjunni eru líka greinanleg. Fyrir bragðið var músík- stíll R.E.M. kallaður kántrí- (sveita-) pönk í fyrstu en á síðari árum er oftast rætt um R.E.M. sem forystusvcit banda- rískra gítar-nýrokksveita. Sú skilgreining táknar að (frckar lítið rafmagnaður) gít- arleikur sé aðalatriði, hljómborð aðeins í aukahlutvcrki (ef þau eru á annað borð með í lciknum), áhrif frá þjóðlagastíl Woodys Guthries séu sterk en flutningur að öðru leyti all-hrár og óheflaður. Af öðr- um kunnum bandarískum gítar-nýrokk- ÆSKAJST 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.