Skírnir - 01.06.1919, Blaðsíða 91
Skirnir]
Sannfræði íslenskra aagna.
185'
ættu konúng (o: Svein), er bæði væri h a 11 u r og ragur«..
Hvers vegna bregður hún Sveini um helti'? Nema af
því að hann hafi verið haltur. Engum sögumanni á ís-
landi á 12. eða 13. öld hefði dottið í hug að skrifa slíkt
ef enginn fótur hefði verið fyrir því. Hver, sem trúir á
þessa frásögn, verður því að halda, að Sveinn hafi haltrað'
— en þess er annars hvergi getið. Norskur sagnfræðing-
ur hefur lýst alla þessa sögu um flótta Sveins og atburði
þá sem henni fylgja »skáldskap« — þ. e. síðari tíma til-
búning.
En alveg um sama leyti fór fram visindaleg rannsókn
á beinum (beinagrind) Sveins konúngs, er geymd hafa
verið í holri súlu í Hróarskeldu dómkirkju; var hún fram-
in af bestu sjerfræðingum (læknum) Dana (próf. Fr. C. C-
Hansen). Kom það þá uþp, að önnur mjöðmin í Sveini
hafði haft dálitið óreglulega lögun eða afstöðu við hin
beinin, svo litla skekkju, er hlaut að valda þvi, að Sveinn
haltraði dálítið, einkum er hann gekk með hraðara móti.
Hjer var þá fengin full sönnun fyrir því, að orðið »haltur«
i frásögninni svaraði til þess, sein verið hafði í raun og
veru; en er þá nokkur ástæða til að halda, að orðið sje
tilbúningur á 12. eða 13. öld, sem i sjáUu sjer er, eins og
getið var, harla ólíklegt En ef orðið styðst við fiásögn
írá þeim tímum, sem jeg hygg sjálfsagt vera, þá er líka
uieira satt í frásögninni en þetta eina orð. Jeg álykta:
Þá er sagan að öllum líkindum sönn í öllu verulegu.
Jeg hef áður í ritgjörðum sýnt fram á, hve rjettar
staðalýsingar eru, t. d. í frásögn Snorra, ekki af, því,
að Snorri hafi komið á staðina og lýst þeim eftir eigin
sjón og reynslu, heldur þ r á 11 fyrir það að hann liefur
e k k i komið á þá. Það er munnmælasagan, sem hefur
geymt hið ijetta; það er hún, sem hefur reynst sönn, að
mestu að minsta kosti. Jeg vísa lika til greinar minnar
um hinn síðasta bardaga þeirra Gunnlaugs og Hrafus (í
Skírni 1915).
Andmæli gegn sannfræði sagnanna gæti sýnst rjettmæt-
ust og nærri því sjálfsögð, þegar um atburði og menn er