Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Blaðsíða 59
IÐUNN
Mannúðin í Vesiurheimi.
53
þátttöku í verklýðsstarfsemi eða aðrar álíka sakir, og:
þannig mætti lengi telja sakarefni.
Þá er mikill fjöldi barna dæmdur til langrar fang-
elsisvistar. Þessi dómfeldu börn eiga að vinna stranga
vinnu í stofnunum ríkisins.
Julian Leavitt, kunnur maður af rannsóknum sínum.
á þrælkun fanga, hefir skýrt frá því, að fyrir nokkrum
árum hafi 200 börn í barnahælinu Greendale House of
Reform í Kentucky verið leigð út fyrir 3 cent um
klukkustund til félagsins Kentucky Furniture Co. Lög-
skipuð rannsóknarnefnd í Tennessee komst að raun um,
að börn úr vandræðabarnahælum voru leigð út til ein-
stakra manna eða félaga til þrælkunar. Salant & Salant
Mfg. Co. eða skyrtugerðarfélagið í New York hafði í
áþján flestalla fanga í fangelsunum State Agricultural
og Training School for Boys í Nashville.
Baðmull, sem er ræktuð í fangabúinu í Kilby í Ala-
bama, er kembd og ofin af föngum, og fangarnir sauma
skyrtur úr dúkunum, alt í þágu auðfélagsins Reliance
Mfg. Co. í Chicago. Félagið National Federation of
Women’s Clubs áætlaði 1926, að 41% af öllum vinnu-
stökkum og 35% af öllum vinnubuxum væri unnið af
föngum. Eitt einasta „fangavinnufélag" fékk búnar til
16 000 000 af skyrtum í 17 fangelsum árið 1923, og
samkvæmt beztu heimildum, þar sem er A. F. Allison
frá International Association, hefir vinnufatagerðin í
fangelsunum aukist stöðugt síðast liðin 10 ár.
Vörur, sem fangar í fangelsum Bandaríkjanna unnu
á árinu 1930, voru 100 000 000 dollara virði. En
fangavinnan er miklu meiri en þessu nemur. Auk fang-
elsa alríkisins og fangelsa einstakra ríkja er til sægur
annara fangelsa, sem eru eign einstakra héraða eða
borga. Dr. Hastings H. Hart — maður, sem er tekinn