Fríkirkjan - 01.01.1899, Síða 6

Fríkirkjan - 01.01.1899, Síða 6
2 Guðs heilaga hjörð, ei hentar þér vald eða upphefð á jörð. í auðmýkt og sannleik er upphefðin þín, sem æðra og fegurra’ en purpuri skín; og vald þitt er fóigið, sem forðum var skráð, í frelsarans náð. Því höfuð þitt hef, og heiminum lengur ei dýrðina gef; hans vald sé þér hégómi’, hans vinátta gall. hans vernd er þér ánauð, hans stuðningur fall. „Hin himneska Zíon“, þess minnumst vér rnáls, „vor móðir, er frjáls.“ Inngangsorð. —0--- All-lengi hef eg haft hug á að gefa ut kristilegt tímarit, þó að það hafi farist fyrir af ýmsum orsökum. Ávallt síðan eg varð að leggja niður embætti mitt í þjóð- kirkjunni fyrir þær sakir einar, að eg fylgdi ekki í öllu hinum tíðkanlegu reglum við guðsþjónustu og kirkjulegar athafnir, hef eg fundið til þess, hve nauðsynlegt væri að leitast við að leiðrétta skoðanir manna á öllum slíkurn tilskipunum, og sýna fram á, livaða gildi þær liafa samkvæmt orði guðs. far við bættist að eg gjörðist þá forstöðumaður híns fyrsta frjálsa kristna safnaðar hér á landi, og þá að sjálfsögðu um leið einn af forvígismönnum hinnar nýbyrjuðu baráttu fyrir fríkirkjumálinu. Eg ritaði þá allmargar greinar í flest eða öll hin verald- legu blöð vor. Þá var ekkert kirkjulegt tímarit geflð út á ís- lenzku. í greinum þessum var eg mestmegnis að bera hönd fyrir höfuð sjálfum mér og söfnuði mínum gegn ómildum dómum í blöðunum, en þó meðfram að benda á þær megin- regíur kristilegs frelsis, sem báðar þessar hreifingar styddust við, mín gegn helgisiðaokinu og safnaðarins gegn veitingar-

x

Fríkirkjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.