Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 211
Prestafélagsritiö. Kirkjulegt starf meSal sjómanna. 201
Séra Friðrik, sem með ljúflyndi sínu og kærleika laðar
alla að sér, var þeim öllum eins og bezti faðir, og vakti yfir
velferð þeirra. Og enn þá eru þeir margir, sem geyma hug-
ljúfar minningar frá sjómannastofu K. F. U. M. í þá daga,
og fyllast þakklæti í hvert sinn, er þeir minnast þess, hvers
þeir nutu þar.
Þessu starfi var haldið uppi í 5 ár, eða til 1906. Aðsókn
að stofunni var jafnan afar mikil, til dæmis voru þar eitt árið
skrifuð 5000 bréf.
Árið 1907 fluttist félagið í nýtt hús, er það hafði látið reisa
við Amtmannsstíg, lagðist þá þetta starf niður, því að lengra
var nú frá höfninni; þess var saknað mjög af sjómönnum.
Síðan hefir margt breyzt. — Seglskipin eru horfin, en í
þeirra stað komnir togarar, línubátar og vélbátar. Slík útgerð
eykst hér á landi ár frá ári. — Höfn hefir verið bygð í Reykja-
vík, og fer sigling vaxandi með ári hverju. — íbúatala höf-
uðstaðarins hefir aukist úr tæpum 9 þúsundum upp í nær
26 þúsundir. — Miklar og merkilegar framkvæmdir hafa átt
sér stað og margar stórar byggingar verið reistar. — Þessu
veldur að mestu velgengni útgerðarinnar, og dáðrikt starf
sjómannastéttarinnar. — Þó vantar eina byggingu enn — sjó-
mannaheimili við höfnina.
Árið 1921 kom atvik fyrir, sem sýnir glögt, hve eðlilegt
og sjálfsagt nágrannaþjóðunum finst, að það megi ekki vanta.
Þá um vorið gisti landið fyrsta sinni konungur vor Kristján X.
— Eitt sinn er hann var á gangi í Reykjavík, fór hann niður
að höfn til þess að leita uppi sjómannaheimili, en fann ekki.
Hann hafði orð á þessu við einhvern, og var honum þá sagt,
að það væri ekki til. — Konungur lætur sér ekki þetta lynda,
og þegar hann kemur heim, færir hann þetta í tal við Fenger
prófast, formann sjómannastarfsins í Danmörku. — Það verður
til þess, að prófasturinn skrifar lil séra Bjarna Jónssonar
dómkirkjuprests í Reykjavík. Skiftust þeir og Storm prestur
bréfum á um þettg málefni, en það leiddi til þess, að vorið
1923 kom til Reykjavíkur V. Rasch framkvæmdastjóri inn-
lenda sjómannastarfsins danska.