Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 253
Prestafélsgsritiö.
Frumvörp kirkjumálanefndar.
241
nevtið ásamt tiilögum sínum, og getur ráðherra veitt umsækjanda leyfið,
ef hann fullnægir eflirfarandi skilyrðum:
a. Seíur hæfilegt veð fyrir því, að hann reisi, í tæka tíð, trausta og vand-
aða girðingu um reitinn samkvæmt uppdrætti.
b. Leggur hæfilega fjárhæð, að dómi ráðuneytisins, þó aldrei minna en
600 kr., í legstaðasjóð sóknarkirkjugarðsins, grafreitnum til viðhalds,
endurnýjunar og eftirlits.
c. Greiðir öll gjöld til kirkjugarðs sóknar sinnar, svo sem aðrir menn í
sókninni.
Ef menn vilja athuga erindisbréf kirkjumálanefndarinnar, sjá menn, að
þótt nefndin hafi int af hendi mikið og gott starf með frumvörpum þeim,
sem nefnd hafa verið, hefir hún þó ekki tekið fyrir nærri öll þau mál,
er henni voru falin til úrlausnar.
Meðal þeirra mála, sem óútkljáð eru enn hjá nefndinni, eru tvö stóru
málin, sem mestu skiftir, hvernig fer um í þinginu: Stærð og skipun
prestakalla — og launamál presta.
Um fyrra málið vísasl fil erindis 6Óra Asmundar Guðmundssonar:
Framtíð þjóðkirkjunnar, sem prentað er í þessu riti og vonast er fil, að
margir lesi með athygli.
Er áríðandi, að kirkjunnar menn standi saman um að reyna að hlynna
að kirkjunnar málum, og beiti einnig áhrifum sínum í þá áit, að fjár-
málum presta verði komið í það horf, að þeir fái notið sín sem bezt í
verkahring sínum. S. P. S
NORRÆNN STÚDENTAFÖNDUR
UM KRISTNIDOÐSMÁL.
Dagana 28.—31. jan. þ. á. var í Lundi í Svíþjóð haldinn fundur
norrænna stúdenta um krisfniboðsmál.
Til fundarins var boðað af „Nordiska akademiska missionsrádet", en
það var stofnað í Kaupmannahöfn árið 1926 á samskonar fundi og þess-
um. í ráðinu eiga sæti 13 fulllrúar frá Norðurlöndunum fjórum: Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi; ísland er enn sem komið er ekki
með. Formaður þess er Edv. Rodhe, biskup í Lundi. Ráðinu er ætlað
að stuðla að því meðal norrænna stúdenta, að þeir kynni sér kristni-
16