Nýjar kvöldvökur - 01.07.1951, Blaðsíða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1951, Blaðsíða 8
82 EYGLÓ N. Kv. í skólanum, sem hún ætlaði í, væru látnar ganga úti claglega, og liélt það ,,ekki úr vegi að temja sér það.“ Einu sinni spurði ég hana svo að enginn heyrði: „Hvert fer þú annars daglega?“ ,,Að Tóftum," svaraði hún brosandi. Tóftir voru eyðibýli góðan spöl frá öðrum bæjum undir skógivöxnum ási, og náði skógurinn nú orðið alveg lieim að bænum, sem verið hafði. Þar var sögð djúp og tær tjörn í túninu. Menn sögðu þar fallegt, en aldrei hafði ég komið þangað, og ekki vissi ég, hvort Guðrúnu var það spaug eða alvara, að hún færi þangað; alltaf var hún glaðleg er hún kom af göngu, og móð- ur sinni sagði hún, að nú væri hún aldrei löt, síðan hún hefði farið að ganga úti. Þeg- ar þrír dagar voru eftir til burtfarar hennar, fór hún út að vanda, en kom rétt strax aft- ur, og mér brá að sjá, hve hnuggin hún var. Móðir hennar tók eftir því líka. „Er þér illt, Gunna?" sagði hún þurrlega. „Já, mér er illt í höfðiun, ég ætla að leggja mig.“ „Það er ekki von á öðru með þessu útirápi; það er sitt af hverju, sem fólk finnur upp á nú á tímum og allt er það vitlaust." Hún gekk snúðugt út og skellti hurðinni. Ég læddist til Guðrúnar og spurði lágt: „Get ég nokk- uð gert?“ Hún lagði lrandlegginn yfir háls mér og grét. „Nei, vina mín, aðeins að láta mig eina.“ Og mér fannst lnin léggja mik- inn þunga í seinasta orðið. Hún var fálát þessa daga, sem hún átt* eftir að vera heima, og sagðist vera lasin, og aldrei fór hún í skemmtigöngu. Hún skrifaði aðeins eitt bréf fyrri part vetrarins og lét af því, að sér liði vel og hún kynni vel við sig. Snemma á útmánuðum var ég stödd hjá móður hennar. Fékk hún þá bréf með stimpli skólans, en ekki hönd Guðrúnar á því. Hún las það, og ég sá, að hún varð for- viða. Svo rétti hún mér bréfið þegjandi og ég las: „Heiðraða húsfrú! Ég tel mér jrað skylt að láta yður vita um breytingu á högum dótt- ur yðar, sem veldur því, að ég sendi hana lieim til yðar bráðlega. Svo er mál með vexti, að hún er barnshafandi. Þó legg ég henni jrað ekki til lýta, því að hún hefur komið hér mjög vel fram, og mér líkar ágætlega við hana. Barnsfaðir hennar er Jón bróðir minn, skólaráðsmaðnr, og er mér óliætt að segja, að samdráttur þeirra byrjaði um leið og hún kom, en karlmönnum ligg- ur nú alltaf svo mikið á, og býst ég við, að bróðir minn sé því engin undantekning. Ég hélt stofubrúðkaúp þeirra í gær, svo að dótt- ir yðar er nú gilt kona; en að ég sendi hana heim kemur til af því, að ég vil engan glundroða gera í skólanum, sem yrði óhjá- kvæmilegur, ef barn fæddist jrar, því að eins víst er, að það komi nokkru fyrir tíma hjá konu í fyrst sinn. Ég býst við, að dóttir yð- ar verði svo hjá ykkur foreldrum sínum, jrangað til þau ungu hjónin byrja búskap sinn. Bróðir minn er búinn að segja lausri ráðsmannsstöðunni og tekur jörð til ábúðár, er við eigum liér í grennd. Með virðingu. N. N. Eg óska ekki svars, því að hjónin leggja af stað að tveimur eða jrremur dögum liðn- um.“ Undirskrift sri sama, skólastýrunnar. Ég leit á dagsetninguna á bréfinu. „Hún gæti jrá komið á morgun eða hinn daginn." „fá, Jretta er nú ljóta klandrið," sagði htis- freyja, „að fara strax að eiga krakka." Sag- an endurtekur sig,“ sagði ég kímin; „Cruð- rún fæddist tvefmur mánuðum áður en júð giftust. En hvað heldurðu, að pabbi hennar segi?“ „Segi, ég held hann segi ekki mikið, honnm jrykir víst allt gott, sem Guðrún ger- ir, hvaða bölvuð vitleysa, sem henni dettur í hug að gera.“ Við skildum talið, en ég var dálítið undr- andi og hálfgröm. Hvernig var jretta allt saman. Víst hafði ástarævintýri hennar, senr enginn vissi um nerna ég, skyndilega endað. En hvernig gat hún jrá svo bráðlega elskað annan rnann? Það var allt leyndar-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.