Vörður - 01.11.1917, Síða 8
i6
VÖRÐUR
Skólar.
Haskólinn, mentaskólinn, kvennaskólinn, sjómanria-
skólinn, verslunarskólinn, vélskólinn, iönskólinn ogf
barnaskólinn starfa í vetur.
Barnaskóli Reykjavikur er stærsti skóli landsins. Nú
eru í honum 1200 nemendur.
Auk skólastjóra starfa viö skólann 34 kennarar.
Þessar námsgreinar eru kendar: íslenska, danska,
enska, kristin fræöi, íslandssaga, almenn saga, reikn-
ingur, náttúrufræöi, landafræöi, skrift, teikning, handa-
vinna, matreiösla, leikfimi og söngur.
Skólanum er skift í 8 bekki. í ár er 1. bekkur þrí-
skiftur, 2. bekkur fjórskiftur, 3. bekkur sexskiftur, 4.
bekkur nískiftur, 5. bekkur sjöskiftur, 6. bekkur sjöskift-
ur, 7. bekkur þrísiftur og 8. bekkur óskiftur. ,
Eins og í sögu.
Ungur skólastjóri í smákauptúni á Vesturlandi skrifar:
„Eg fékk 5 eint. Varöar í dag meö póstinum. Þótti
mér það in besta sending. Eg fór á stúfana, kom út 4
eint., og eitt hefi eg sjálfur. Hér með sendist borgunin.
Við látum okkur farast vel viö okkar eigiö lilaö.“ —
Vörður kemur út einu sinni í mánuði. Verð árgangsins er
2 kr. Gjalddagi í janúar. — Ritstjóri Varðar er til viðtals kl. 5
—6 á Grundarstíg 17.
Afgreiðsla Varðar er á Grundarstíg 17.
Ritstjóri: Hallgrímur Jónsson.
Prentsmiðjan Rún.