Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 122

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 122
Ævintýralegur eltingaleikur við landhelgisbrjóta Fyrir réttum 40 árum eða sunnudaginn 3. júlí 1955 var belgíski togarinn Van Dyck 0-298 tekinn að meintum ólög- legum veiðum austan við Ingólfshöfða fyrir samvinnu þriggja flugvéla og varð- skips. Takan og eftirfórin tók langan tíma og endaði með því að varðskipið Þór kom með togarann til Reykjavíkur þar sem skipstjóri togarans var sóttur til saka og dœmdur að íslenskum lögum. Eftirfarandi frásögn skráði Guð- mundur Gíslason Hagalín rithöf- undur eftir Garðari Pálssyni 1. stýri- manni á varðskipinu Ægi skömmu eftir að atburðirnir áttu sér stað: „Daginn sem varðskipið kom með togarann til Reykjavíkur“ segir Guðmundur í upphafi skrásetningar sinnar, „hitti ég á götu Garðar Pálsson, sem nú er fyrsti stýrimaður á varðskip- inu Ægi. Hann er gamall vinur minn frá Isafirði, var tíður gestur í Bókasafni Isafjarðar og nemandi minn í bók- menntasögu og notkun bókasafna í Gagnfræðaskóla ísafjarðar. - Hann er sonur Páls Hannessonar skipstjóra, en Páll er Arnfirðingur í móðurkyn og af sömu ætt og þeir skipstjórarnir Sigurður Símonarson og Markús Bjarnason fyrsti skólastjóri Stýri- mannaskólans í Reykjavík, en báðir gerðust þeir forystumenn um þil- skipasjómennsku hér syðra. Garðar er skyldur Markúsi Bjarnasyni bæði í föður- og móðurætt. Móðir Markúsar Bjarnasonar var langömmusystir móður Garðars. Ég tók Garðar Pálsson tali og vék að töku togarans, enda hafði Garðar verið aðalfulltrúi Landhelgisgæslunnar í flugvél þeirri sem lengst sveif yfir togaranum. Þar kom máli okkar að ég bað Garðar að lofa mér að skrifa eftir honum frásögn af töku togarans - og kvað hann það velkomið, og síðan skráði ég eftir Garðari þátt sem ég nefndi í lofti og á legi. Ég fékk einnig að skrifa eftir honum frásögn af viðureign við rúss- nesk síldveiðiskip, sem tekin voru í landhelgi fyrir fáum árum, og var þar aðstaða lagavarðanna ærnum frum- stæðari en þegar þreytt var við hinn belgíska þrjót í þremur flugvélum og á vel búnu varðskipi, sem skríður allt upp í 18 sjómílur. Frásögnina af töku Rússanna kallaði ég Mikið má ef vill. (Þess skal getið að þessi spennandi fráögn birtist í Sjómannadagsblaðinu á fyrra ári - innsk.) í lofti og á legi Klukkan rúmlega 11 fyrir hádegi sunnudaginn 3. júlí 1955 var farið i gæsluflug frá Reykjavík á flugvélinni Glófaxa, sem er eign Flugfélags íslands. Yfirmaður í flugvélinni af hálfu Landhelgisgæslunnar var Guð- mundur Kjærnested og honum til að- stoðar var Erling Magnússon. Guð- mundur starfar eingöngu að flug' gæslu, en Erling er annar stýrimaður a varðskipinu Ægi. Flugstjóri var Pétut Pétursson og aðstoðarflugmaður Ólaf' ur Indriðason. Flugvélin flaug austur með landi og Van Dyck að veiðum - sem sjá má eru togvírarnir úti. 122 SJÓMANNADAGSBLAPlg-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.