Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 35

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 35
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 35 Þetta eru Saurakot, fjárhús og Saurar þar sem Kristján fœddist. Húsin eyðilögðust í snjóflóðinu 1994. feiknamikla rostungshausa með fer- legum tönnum og stóðu þessir kynja- gripir á torfveggnum við gamla Súða- víkurbæinn. Þá er mér minnisstæður gamall maður, Sigurður Bjarnason, sem bjó inni á Langeyri og var snillingsjárn- smiður. Hann var af Ströndum og hafði lært hjá Þorsteini í Kjörvogi. Handbragðið hans var ekkert fúsk. Einu sinni hafði bilað armur frá olíu- dælunni í henni Möggu, en þessi arm- ur var eiginlega það eina sem bilaði í Alfa-vélunum. Við fengum gert við þetta úti á Isafirði, en armurinn brotn- aði aftur á leiðinni inn í Súðavík. Þá Leikir og skólaganga Þú spyrð um bernskuleiki okkar krakkanna. Aðallega var það nú „slagbolti“ sem kallaður var og fólst í því að litlum bolta eða teningi sleng- du krakkarnir á milli sín með priki. Þarna voru tvö mörk og þetta var mjög spennandi. Þegar boltinn hafði verið sleginn reyndu andstæðingarnir að grípa hann, en sá sem boltann hafði slegið átti að hlaupa í það mark sem næst var. Næðu hinir boltanum, þá áttu þeir að reyna að hitta þann sem slegið hafði þegar hann hljóp í markið. Þá var leikið sér í „sto“ sem flestir krakkar hafa iðkað fram til þessa og oftast var farið í „sto“ við gamla skólann. Af skólagöngunni er það að segja að auðvitað var kennt í gamla skóla- Magga litla við fjöruna í Álftafirði. Hún var fyrsti hvalveiðibáturinn í eigu Islendinga með nútíma útbúnaði. Þorlákur faðir Kristjáns skaut fyrstu hrefimna 1914. húsinu sem byggt hafði verið fyrir aldamót. Kennari okkar var Friðrik Guðjónsson, mikill indælismaður, kvæntur stúlku úr Súðavík, Daðínu Hjaltadóttur. Fyrst í stað var hann eini kennarinn en síðar voru meðal kenn- ara nrinna Ólafur heitinn Jónsson mágur minn og Björn Jóhannsson, Dýrfirðingur að ætt. Bjöm minnir mig að hafi kennt frá 1922 til 1928 þegar hann flutti til Hafnarfjarðar að ég held. Skólinn hófst í október og var kennt fram í apríllok. Kennt var dag- lega og vanalega frá klukkan átta til klukkan fjögur eða fimm, en börnin byrjuðu tíu ára að sækja skólann. Kennslugreinarnar voru reikningur, lestur, skrift, landafræði og náttúru- fræði og dálítil eðlisfræði. Af mennt- un minni er það annars að segja að ég fór á vélstjóranámskeið á ísafirði árið 1931. Þá fór ég í Héraðsskólann á Reykjum í Hrútafirði 1935 og var þar einn vetur. Þaðan lauk ég fullnaðar- prófi. Merkiskarlar Oft ræddum við krakkarnir við gamla fólkið sem sumt hafði gaman af að segja okkur sögur frá liðinni tíð. Þeirra á meðal var Jón Valgeir Her- mannsson sem búið hafði í Skjaldar- bjarnarvík á Ströndum en flust á ní- unda áratug fyrri aldar til Súðavíkur. A Ströndum lá hann oft fyrir tófu úti á hafísnum sem rak að landi og oft heyrði hann bjamdýr öskra úti á ísn- um og felldi sjálfur bjarndýr eitt sinn. Þetta hafði verið kjarnakarl. Hann hafði með sér frá Ströndum tvo Skotið á stórhveli. Kristján hleypir af hvalabyssunni með miklum hvelli. var farið með þetta til Sigurðar sem hristi höfuðið. „Nei, svona dugar ekki,“ sagði hann og spýtti þá mikið, en hann var einhver mesti munntó- baksmaður sem ég hef þekkt. Hann gerði við stykkið með því að setja hólk utan um arminn og það þurfti ekki að hafa áhyggjur af honum upp frá því. Sigurður var afskaplega skemmtilegur maður og kunni mikið af sögum og pabbi fór oft að hitta hann, því þeir voru miklir vinir.“ Grímuböll og tombólur „Helstu skemmtanir fólks í Alfta- firði í æsku minni voru þau að ein- staka sinnum voru haldin böll. Til dæmis var á hverju ári haldið grímu- ball, oftast í febrúar. Þau voru haldin í gamla stúkuhúsinu við Traðargilið, en þetta hús er nú búið að rífa. Á þessum tíma voru margir bæir við Álftafjörð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.