Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 102

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 102
102 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ hér enn ef hann kunningi minn verður ekki búinn að ná í mig — og þá get- um við spjallað svolítið lengur. Hann lokaði skápnum, skorðaði flöskuna af og brá sér í úlpu. Rokið skall á honum um leið og hann var kominn út fyrir dyrnar. Hann leit upp í bæinn — allt var dimmt, sums stað- ar mataði í grátt. Ljósin uppi í bænum sýndust á stöðugu iði eins og þau spegluðust í ókyrru vatni. Uti á höfn- inni sá hann ljós á smábáti sem stefn- di út og hann furðaði sig á hvaða er- indi menn ættu á sjó í svona veðri. Hann ákvað að fara upp á kaffistofuna sem blasti við ofan bryggjunnar og hringja þaðan á sjúkrahúsið. Hann þreifaði í vösunum eftir peningum, en fann ekki nema eldspýtustokk og bil- aða kúlulegu, sem hann hafði vafið inn í tvíblöðung með guðsorði sem sjómannatrúboð dreifði í báta: „Vertu óhræddur, Jósef!“ Til allarar ham- ingju dró hann þúsundkrónaseðil upp úr síðasta vasanum sem hann leitaði í. Hann stóð úti á þilfarinu og létti á sér í sjóinn, reyndi að láta bununa hæfa tóma olíutunnu sem rak fram með bátnum en tókst ekki því það var straumur og hana rak hratt hjá. Hann hafði ekkert úr, en uppi í bænum var búið að gangsetja háværa vél svo það hlaut að vera kominn morgun... Þegar hann leit til hægri sá hann hvar þetta erlenda flutningaskip gnæfði yfir bát- inn — Pacific Blossom — Monrovia, stóð letrað hvítum stöfum á dökk- rauðan skutinn. Tveir menn í þykkum úlpum með skinnbryddingu framan á hettunni stóðu við lunninguna og sýndust vera að virða bátinn fyrir sér. Þrátt fyrir dimmuna sá hann ekki bet- ur en að þeir væru svertingjar. Á kaffistofunni Hafnarskálanum fékk hann nýtt kakó sem sprautaðist úr rauðgljáandi vél með þrumandi gný. Það var af því gúmmíbragð, en samt var gott að fá eitthvað heitt og með hverjum sopa var eins og hann fyndi meira af sínu eiginlega sjálfi. Hér hafði verið opnað útvarp og það færðist yfir hann værð svo honum fannst hann geta sofnað aftur við klið- inn í því. Þeir sögðu fréttir af olíu- skipi sem stóð í björtu báli á Miðjarð- arhafi og unglingi í Alabama sem átti að hengja eftir þrjá klukkutíma. Hann myrti gamalmenni með hamri. Sam- tök andstæðinga dauðarefsinga höfðu efnt til mótmæla... Osjálfrátt skimaði hann eftir klukku á veggnum en hér var engin klukka. Þess í stað sá hann gullmálaðan greniköngul fyrir ofan höfuðið á afgreiðslumanninum. Það voru að koma jól, já, rétt var það og þama var líka mynd af rjóðri telpu með jólasveinahúfu að súpa á ölflösku. Myndin af telpunni minnti hann á telpu sem hann þekkti, nei faðmlag, heitt eins og kakóið, enn heitara því gamlan yl þess náði að leggja um brjóstið og fram í sára fing- urnar, enn sárari eftir gönguna í kuld- anum neðan frá bryggjunum. Hún sat í fangi honum og hann var að segja henni sögu af fugli sem kom um borð lengst úti á sjó. Sá var nú skrýtinn, sat á hnénu á honum og drakk vatn úr könnu. Hvað svo? Það var ekkert meira, hann hresstist og flaug burt eft- ir fáeina daga. En hann var með gult höfuð og mjög einkennilegt nef... Hann fór um mitt sumar. Þær voru að þvo og telpan horfði á eftir honum úr þvottahúsglugganum sem var þakinn móðu. Hún hafði gert blett með lófan- um og hann mundi grátt andlitið og vatnslit augun sem skulfu eins og hlaup bak við flóð bleytunnar á gler- inu. Hann fann að hann hefði átt að reyna að muna fleiri sögur. En það varð aldrei nema þessi þarna um fugl- inn og sjálfur hvarf hann burtu eins og þessi fugl, vegvilltur gestur sem kvaddi eftir að hafa kastað mæðinni. Við borðið við hliðina á honum sat maður og var eini gesturinn hér auk hans. Hann var klæddur þykkum, hnésíðum frakka með tveimur trosn- uðum gullborðum á ermunum — greinilega einhver yfirmaður af þessu erlenda skipi. Hann virti hann ósjálf- rátt fyrir sér meðan hann hringdi á sjúkrahúsið og beið drykklanga stund eftir að einhver aðili fyndist sem svar- að gæti erindi hans. Maðurinn þarna við borðið virtist hafa kynnst ýmsu um dagana, meðal annars virtist hann hafa nefbrotnað í það minnsta tvíveg- is. Hendurnar voru dökkar og úlnlið- irnir sverir og það var einbeitni í smá- um, dökkbláum augunum sem störðu niður í kaffikönnuna fyrir framan hann. Hann hélt á logandi sígarettu og öðru hvoru dró hann að sér reykinn með djúpum sogum. Loks kom hjúkr- unarkona í símann. Hún spurði fá- einna spurninga um Jóhannes og lof- aði síðan að sjúkrabifreið kæmi og sækti hann klukkan ellefu. Hann spurði veitingamanninn hvað klukkan væri og þar sem hún var að- eins hálf tíu og ákvað hann af fá sér aðra krukku af kakaóinu sem bragð- aðist eins og gúmmí. Hann var á leið með það að borðinu þegar maðurinn í frakkanum brosti skyndilega til hans og gerði honum bendingu um að setj- ast hjá sér. Honum fannst ástæðulaust og næstum dónalegt og neita og hann settist. Þetta virtist ekki óviðkunnan- legur maður, mjög þrekinn um bol og herðar, sennilega um sextugsaldur. Hann reyndist vera finnskur. Þeir tóku upp slitróttar samræður á ensku sem hvorugur talaði vel, en Finninn þó betur. „Bad weather, “ sagði sá finnski. „Icelandic weather, “ svaraði hann og fann að þetta var aðeins einn þeir- ra orðaleppa sem landinn grípur svo oft til þegar hann hittir útlendinga. „1 have seen it worse — Indian Ocean for instance. “ Samræðurnar gengu hægt en þeim tókst þó að ná megininntakinu í því sem hvor um sig sagði. Hann komst að því að maðurinn var stýrimaður og að flutningaskipið var að koma frá Portúgal og færi þangað að nýju þeg- ar það héldi frá íslandi. Hvað þá tæki við hafi Finninn ekki hugmynd um. Hann hafði verið í siglingum í mörg ár og í þrjú ár á þessu skipi. Hann bjó í Kotka en hafði ekki komið heim til sín í tvö ár. Samt sagðist hann eiga konu og böm og sem til staðfestingar rak hann upp sveran baugfingur hægri handar og sýndi honum giftingarhring sem var eins og gróinn inn í holdið og næðist örugglega ekki af nema með járnsög. Þegar Maríus spurði hvort konunni leiddist ekki biðin svaraði hann engu, en fitlaði hugsandi við hvíta einkennishúfu með gullborðum sem voru jafnsnjáðir og borðarnir á ermunum. Annars hafði hann lengst af orðið, enda virtist hann langa til að tala. Maríus var ekki viss um nema hann fyndi dálítinn áfengisþef af hon- um. Hann talaði um lífið á sjónum og ræddi af lítilvirðingu um skipsfélaga sína — „ them coloured guys. “ Hann sagði að þeir væm latir, svikulir og til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.