Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Blaðsíða 58
III.
AFSKIPTl AF EINSTÖKUM BÖRNUM.
A árinu utvegaði ncfndin 227 börnum og ungmennum
dvalarstaði, annað hvort á barnaheimilum, einkaheimilum
hér í bæ eða í sveitum. Sum þessara barna fóru aðeins til
sumardvalar, en önnur fóru til langdvalar, einkum um-
l<omulaus og vanhirt börn, sem nefndin gat útvegað fóstur.
Ástæður til þess, að börnum var komið fyrir, eru þessar:
Þjófnaður og aðrir óknytt-ir..................... 29 börn
Utivist, lausung, lauslæti ...................... 11 —
Erfiðar heimilisástæður, slæm hirða og óhollir
uppeldishættir ................................ 185 —
Samtals 227 börn
Nefndin hefur mælt með 31 ættleiðingu, og hafa mæð-
urnar í flestum tilfellum valið börnum sínum heimili með
það fyrir augum, að framtíð þeirra væri betur borgið en
ef þær önnuðust sjálfar uppeldi þeirra.
178 börn dvöldu sl. sumar á barnaheimilum, sem Reykja-
víkurdeild Rauða Kross íslands rekur í 2 mánuði á sumr-
in. Ncfndin stuðlaði að því, að þau börn, sem mesta þörf
hefðu á sumardvöl, væru látin sitja fyrir. Sömu sjónarmið
voru höfð í huga um val barna á barnaheimilið Vorboð-
ann í Rauðhólum, sem rekið er af Mæðrafélaginu, þvotta-
kvennafélaginu Freyju og verkakvennafélaginu Fram-
sókn, en þar dvöldust um 80 börn tveggja mánaða tíma.
52