Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Blaðsíða 54
ÁRIÐ 1 9 5 2.
II.
EFTIRLIT MEÐ HEIMILUM.
Árið 1952 hefur nefndin haft eftirlit með 117 heimilum,
sem börn dvöldust á hér í Reykjavík. Sum þessara heimila
hafa verið undir eftirliti nefndarinnar árum saman vegna
alls konar óreglu, vanhirðu, fátæktar og vandræða. Hér
með eru ekki talin afskipti nefndarinnar af heimilum
vegna afbrota eða óknytta, barna og unglinga.
Ástæður til afskipta nefndarinnar af heimilum flokk-
ast þannig:
1. Veikindi .............................. 19 heimili
2. Húsnæðisvandræði ....................... 9 —
3. Fátækt ................................. 9 —
4. Vanhirða af ýmsum ástæðum.............. 33 —
5. Deila um umráðarétt og dvalarstað barna 4 —
6. Ósamlyndi, vont heimilislíf............. 5 —
7. Drykkjuskapur ......................... 38 —
Samtals 117 heimili
Nefndinni bárust nokkrar kærur á heimili um vanrækslu
á uppeldi barna, sem við athugun reyndust ástæðulausar.
Þá hefur nefndin haft afskipti af allmörgum heimilum til
leiðbeiningar og aðstoðar. Með mörgum þessara heimila
hefur hjúkrunarkona nefndarinnar stöðugt eftirlit.
III.
AFSKIPTI AF EINSTÖKUM BÖRNUM.
Nefndin hefur útvegað 210 börnum og ungmennum
dvalarstað annað hvort á barnaheimilum, einkaheimilum
hér í bæ eða í sveitum. Sum þessara barna hafa aðeins far-
ið til sumardvalar, en önnur til langdvalar, einkum um-
komulaus eða vanhirt börn, sem nefndin hefur getað út-
vegað fóstur.
48