Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Page 54

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Page 54
ÁRIÐ 1 9 5 2. II. EFTIRLIT MEÐ HEIMILUM. Árið 1952 hefur nefndin haft eftirlit með 117 heimilum, sem börn dvöldust á hér í Reykjavík. Sum þessara heimila hafa verið undir eftirliti nefndarinnar árum saman vegna alls konar óreglu, vanhirðu, fátæktar og vandræða. Hér með eru ekki talin afskipti nefndarinnar af heimilum vegna afbrota eða óknytta, barna og unglinga. Ástæður til afskipta nefndarinnar af heimilum flokk- ast þannig: 1. Veikindi .............................. 19 heimili 2. Húsnæðisvandræði ....................... 9 — 3. Fátækt ................................. 9 — 4. Vanhirða af ýmsum ástæðum.............. 33 — 5. Deila um umráðarétt og dvalarstað barna 4 — 6. Ósamlyndi, vont heimilislíf............. 5 — 7. Drykkjuskapur ......................... 38 — Samtals 117 heimili Nefndinni bárust nokkrar kærur á heimili um vanrækslu á uppeldi barna, sem við athugun reyndust ástæðulausar. Þá hefur nefndin haft afskipti af allmörgum heimilum til leiðbeiningar og aðstoðar. Með mörgum þessara heimila hefur hjúkrunarkona nefndarinnar stöðugt eftirlit. III. AFSKIPTI AF EINSTÖKUM BÖRNUM. Nefndin hefur útvegað 210 börnum og ungmennum dvalarstað annað hvort á barnaheimilum, einkaheimilum hér í bæ eða í sveitum. Sum þessara barna hafa aðeins far- ið til sumardvalar, en önnur til langdvalar, einkum um- komulaus eða vanhirt börn, sem nefndin hefur getað út- vegað fóstur. 48

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.