Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1964, Síða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1964, Síða 21
miklar takmarkanir, sem settar hafa verið veiðiréttind- um manna, þótt þróunin liafi hins vegar gengið í þá átt, að láta bætur koma fyrir, ef takmarkanir eru mjög þungbærar. Dæmi um takmarkanir, sem á sínum tíma hafa hlotið að koma mjög hart niður, eru t. d. bann veiðilaga við veiði með ádrætti og kistum og við veið- um í tilteknum ósum. Bann það við jarðraski og við- tæk heimild fyrir ráðherra til að banna sand- og malar- töku, sem var í 1. nr. 123/1940, réttlætist sjálfsagt sömu- leiðis einkum af verndartilgangi. í náttúruverndarlög- um er ekki gert ráð fyrir að bætur komi jafnan fvrir friðlýsingar, þótt af þeim leiði fjárhagslegt tjón. Má gera ráð fyrir, að þar ráði verndarmarkmiðið nokkru, þótt önnur sjónarmið séu e. t. v. fyrst og fremst höfð í huga. Þá liggja sjálfsagt svipuð verndarsjónarmið til grundvallar bótalausum takmörkunum skv. skógrækt- ar- og sandgræðslulögum. 3. Anders Vinding Kruse hefur í Tidsskrift for Retts- vitenskap árið 1947 tekið undir þá skoðun, að mörkin milli eignarnáms og takmarkana á eignarrétti ráðist fyrst og fremst af því, hvort um yfirfærslu eignarheim- ilda sé að ræða eða ekki. Telur hann sömuleiðis, að sú skoðun eigi sér stoð í orðalagi umrædds stjórnarskrár- ákvæðis.16) Höfundur viðurkennir þó, að sérhver skerð- ing á eignarrétti eins aðila hljóti yfirleitt að liafa í för með sér meira eða minna hagræði fyrir aðra aðila, fleiri eða færri, og skipti þar ekki máli, hvort um sé að ræða afnám eða yfirfærslu réttinda. Þetta leiði til þess, að í takmarkatilfellum geti orðið erfitt að skera úr því, hvort hagræði það, sem menn hafi þannig öðlazt, sé til komið fyrir yfirfærslu réttinda eða beri aðeins að skoða sem afleiðingu af afnámi réttinda. Höfundur telur þó unnt að ráða fram úr þessum vanda. Hann telur, að því aðeins sé um yfirfærslu að ræða, að liags- munir þeir, sem aðrir öðlizt við skerðinguna, svari til þeirra réttinda, sem skert voru. Séu hagsmunirnir hins Tímarit lögfræðina 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.