Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Síða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Síða 38
1 fyrrnefnda dóminum segir m.a.: „ . .. þykir sýnt, að orsök slyssins sé að rekja til þess, að stefn- andi fór rangt að. Á hinn bóginn er á það að líta, að starf þetta er mjög hættulegt, en jafnframt afar þýðingarmikið, þar sem „virk“ tundurdufl, sem reka á fjörur, eru stórhættuleg lífi manna og eignum, en einungis á færi örfárra manna hér á landi að gera slík rekdufl skaðlaus. Virðist því eðlilegast, að stefndi bæti stefn- anda tjón hans að nokkru.“ 1 síðari dóminum er hlutlæg ábyrgð rökstudd á þessa leið: „Stefnandi var ein á vakt, er framangreindur sjúklingur veittist að henni og veitti lienni þann áverka, er leiddi til varanlegrar ör- orku. Lítur rétturinn svo á, að bótaábyrgð á slysi stefnanda eigi að ráðast samkvæmt grundvallarreglum skaðabótaréttarins um „hættulega starfsemi“. Þar sem stefnandi varð fyrir tjóninu af völdum hættueiginleika þessa starfs og ekkert bendir til að hún eigi sjálf sök, þá verður að telja stefnda bera óskoraða fébóta- ábyrgð á nefndu slysi .. . “. Engu skal spáð um, hvort Hæstiréttur muni beita ólögfestri hlut- lægri bótareglu í ríkari mæli en hann hefur gert. Til dæmis um athafna- svið, þar sem slík ábyrgð kemur til greina, má nefna meðferð kjarn- orku og mjög eldfimra efna (t.d. framleiðslu flugelda), vörslu villi- dýra, meiri háttar grunngröft, jarðgangnagerð og hættulegar heræfing- ar (ríkissjóður gæti borið ábyrgð á æfingum liðs Bandaríkj anna, sbr. lög nr. 110/1951). Einnig er svo víðtæk ábyrgð hugsanleg vegna mann- virkja, sem valdið geta mjög alvarlegum og umfangsmiklum slysum eða eignatjóni, t.d. stíflugarðar við orkuver. Hér hefur eingöngu verið talin starfræksla, sem telja má sérstaklega hættulega, en ekki er loku fyrir það skotið, að hlutlæg ábyrgð verði lögð á menn í öðrum tilvik- um, þótt settri lagareglu sé ekki til að dreifa. Einkum er líklegt, að hlutlæg ábyrgð verði ofan á í málum um tjón af völdum skaðlegra eiginleika framleiðslu- eða söluvöru.05 5. EFNI I STUTTU MÁLI Nokkur ákvæði eru í settun lögum um hreina (eða algerlega) hlut- læga bótaábyrgð, en einnig eru dæmi til, að íslenskir dómstólar leggi slíka ábyrgð á menn án beinnar heimildar í settum rétti. Nokkur nú- gildandi lagaákvæði um hlutlæga ábyrgð vegna tjóns, sem dýr valda, G5 Um hlutlæga ábyrgð vegna þess háttar tjóns sjá Magnús Þ. Torfason, bls. 469-471. 32

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.