Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 266
262
þess, að koma á og leiðbeina i þessum kynbótatilraunum,
hafi jafnt árskaup og hinir fastráðnu ráðanautar fólagsins,
ef hann jafnt sem þeir vinna þau verk, er stjórnin leggur
fyrir hann.
9. liður.
Til mjaltakenslu leggjum við til að sé lagt jafnt hæði
árin, 400 kr., ineð tilliti til þess, að kensla komist á sem
víðast í landinu smátt og smátt. Auk þess ætti að sjá um,
að á öllum búnaðarskólum færi fram slík kensla.
10. liður.
Yið leggjum ekki til að breyting sé gerð á þessum lið.
En út af umsóknum þeim um utanfararstyrki, sem fyrir
liggja, viljum við sérstaklega mæla með að þeir Bergur
Helgason og Stefán Marzson séu styrktir til frama í verk-
legum búnaði; sömuleiðis Hallgrímur Þorbergsson úr Þing-
eyjarsýslu, ef hann ræðst i að afla sér þekkingar á sauð-
fjárrækt erlendis og hefir áunnið sér þar góð meðmæli.
Út af umsókn jungfrú Sigríðar Sigurðardóttur um styrk
til að fara á hússtjórnarskóla í útlöndum viljum við taka
það fram, að rétt er að stuðla að slíkri utanför og styrkja
að eiuhverju leyti, ef kona sú, er í hlut ú, vili taka að sór
kenslu í húsmóðurstörfum hér á landi og virðist vel hæf til
þess. En um slíka hæfileika hjá þessum umsækjanda
treystum við okkur ekki að dæma og verður að fela það
stjórn félagsins.
Nefndin leggur enn fremur til, að þegar einhver af
hinum áætluðu gjaldliðum eigi er uuninn upp, þá hafi fó-
lagsstjórnin heimild til umframveitinga á öðrum liðum, ef
sérstök nauðsyn eða ákvarðanir búnaðarþingsins krefjaþess,
enda leggist slíkar umframveitingar fyrir næsta búnaðar-
þing á eftir til samþykkis.
Samkvæmt framanskrifuðu gerum við þessar
Breytingartillögur:
1. Við gjaldlið 4. Pyrir 1400 lcr. hvort árið komi 1500 kr.
2. --------5., 6. og 7. Eyrir þessa liði komi einn