Dvöl - 01.07.1941, Side 4

Dvöl - 01.07.1941, Side 4
162 D VÖL trébekkir stóðu við gafl. Þarna var nálægt 80 manns saman komið. Allir voru í beztu sunnudagafötun- um. Stúlkurnar höfðu skreytt kjól- ana meö blúndum og blómum, eft- ir því, sem takmörkuð efni leyfðu. Fólkið var í veizluskapi, og það fór að dansa eins og það ætti lífið að leysa. Brúðguminn og brúðurin veifuðu höndunum til gestanna og ungu stúlkurnar svöruðu í kór með „ah — ah“ og „óh — óh“. Þær horfðu glampandi augum á ungu mennina, og þó var meiri hrein- leiki og sakleysi í svipnum en í hinu dulbúna augnaráði sumra stallsystra þeirra, sem hærra eru settar. Gleðiblær samkomunnar, fábreytinn og óþvingaður, greip mig undarlegum tökum. En veizlan, gestirnir og giftingin eru lítill hluti af þessari sögu. Það er í mesta lagi forgrunnur mynd- arinnar. En forgrunnur er líka nauðsynlegur í hverri mynd. Reyndu að gera þér í hugarlund vírikrána, vínþefinn og gleðiópin. Þú ert mitt í glaðværð þessa fá- tæka fólks, fólks á öllum aldri. Það er lúið og lotið, það er ungt og óbeygt, og það hefir látið eftir sér að njóta einnar nætur í áhyggju- lausri gleði. Þriggja manna hljómsveit lék fyrir dansinum. Þeir voru allir frá blindrahæli. Einn lék á fiðlu, annar á flautu og þriðji á eins konar lúður. Þeir buðu hvorki upp á lög eftir Beethoven né Rossini, en þeir léku af beztu getu og eins og þeim var eiginlegast. Hljóðfæra- leikararnir vöktu strax athygli mína, þótt ekki væri fyrir ann- að en það, hve óþyrmilega tónar hljóðfæra þeirra herjuðu á hljóð- himnurnar. Þeir stóðu úti í hálf- myrkvuðum gluggaskansinum, og andlit þeirra sáust óglöggt. Af ein- hverjum ástæðum komst ég fljót- lega í nálægð þeirra, þótt það hefði raunar verið ætlunin að halda mig sem fjærst. Eftir það gleymdi ég dansinum, glaðværðinni og brúðkaupinu, og það var eins og sál mín hyrfi inn í líkama gamla lúðurþeytarans. Hinir tveir vöktu enga sérstaka eftirtekt. Þeir höfðu venjulegt svipbragð blindra manna; hrein- skilið, athugult og alvarlegt. Allt öðru máli gengdi með lúðurþeytar- ann, félaga þeirra. Andlit hans hlaut að vekja eftirtekt, hvar sem hann fór. Hugsaðu þér höggmynd af Dante, baðaða fölbleiku ljósi. Silfurhvítar hærur yfir hvelfdu enni. — Blindan jók á svipbrigði sorgar og lífsgremju á stórbrotinni ásjónu. Gegnum dauð augu rofaði í sál þessa manns eins og falinn eld. Gamli maðurinn þeytti lúðurinn, án þess að skeyta neitt um tíma eða tónfall. Fingurnir hvörfluðu vél- rænt yfir slitnar nótur, og dans- fólkið kærði sig kollótt um hljóm- rof og falska tóna. Það var einhver hálf týndur höfðingsblær, eða jafnvel harð- stjórasvipur, á þessum gamla Hó-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.