Vesturland - 24.12.1960, Page 8
8
Jón Gunnar Stefánsson:
Flateyri við Onnndarfjðrð
Jón G. Stefánsson
önundarfjörður.
önundarfjörður er í Vestur-lsa-
fjarðarsýslu miðri. í sýslunni eru
auk hans tveir firðir, þ. e. Súg-
andafjörður að norðan og Dýra-
fjörður að sunnan. Við minni
fjarðarins eru sæbrött fjöll á báða
bóga, Sauðanes að norðanverðu og
Barði að vestanverðu. Mynda fjöll
að mestu samfelldan fjallahring
umhverfis fjörðinn. Á stöku stað
skerast dalir inn í fjöllin, þó
hvergi svo að fjallabrúnin skerð-
ist verulega nema upp af Bjam-
ardal, en þar upp af er Gemlufalls-
heiði ca 300 m. á hæð. Er hún
greiðfærust vega úr firðinum og
tengir saman önundarfjörð og
Dýrafjörð.
Undirlendi er lítið framan til í
firðinum, þar til kemur á móts við
Flateyri. Þar fyrir innan vex und-
irlendið stöðugt og í fjarðarbotni
er talsvert jarðnæði.
Flateyri er um miðbik fjarðar-
ins og liggur í honum norðanverð-
um. Hefur hún hlaðist upp af
sjávarmöl. Úthafsaldan hefur átt
mestan þátt í myndun eyrarinnar.
Sjávarmölin, sem flutzt hefur ut-
an úr firðinum hefur fundið fyrir-
stöðu og orka sjávarins þá borið
hana út í fjörðinn meðfram kamb-
inum. Er eyrin í stöðugri um-
byggingu, og lengist hún stöðugt
út í f jörðinn. Jafnframt hefur bor-
ið á því, að í krikanum utanverð-
um (Bótinni), þar sem eyrin teng-
ist föstu bergi, hafi land rýrnað
mjög. Verði lítil hindrun á þeirri
þróun, má sjá þar fyrir eyðingu
eyrarinnar.
Upphaf byggðar á Flateyri.
önundur Víkingsson nam land
í önundarfirði. Nefndi hann bæ
sinn Eyri. Stóð bærinn upp af
Flateyri á svonefndum Eyrarhjöll-
um. Allt frá þeim tíma var Flat-
eyri hluti þeirrar jarðar. Útræði
hefur framan af öldum verið mikið
í önundarfirði en mest stundað
frá Kálfeyri, sem er utar í firð-
inum. Var útræði þaðan allt fram
yfir síðustu aldamót.
Upphaf byggöar á Flateyri má
rekja til þess atburðar, að verzl-
un á íslandi var gefin frjáls öll-
um þegnum Danakonungs árið
1788. Áttu Önfirðingar áður að
sækja verziun yfir Gemlufalisheiði
til Þingeyrar. Við þessa aukningu
á frjaisræði í verziun við lands-
menn fóru lausakaupmenn, eink-
um norskir, að venja komu sína til
önundarfjarðar. Varð það til þess,
að kaupmenn á Þingeyri létu reisa
hús á Flateyri og hófu þar verzl-
un. Mun það hafa verið árið 1792.
Um 1820 kom til Flateyrar kaup-
maður að nafni Svendsen. Var
hann íslenzkur og hét réttu nafni
Friðrik Jónsson. Lét hann þegar
reisa sér hús, sem enn stendur og
fékk síðar nafnið Torfahús.
Svendsen kaupmaður var um
margt merkur maður. Rak hann
útgerð á Flateyri og lét smíða þil-
skip á staðnum. Er talið að hann
hafi átt mikinn þátt í því, að Flat-
eyri var löggiltur verzlunarstaður
31. maí 1823.
Torfi Halldórsson.
Við lát Svendsen kaupmanns ár-
ið 1856 fluttist til Flateyrar Torfi
Halldórsson. Keypti hann eignir
dánarbúsins og þar með nokkum
hluta úr landi Eyrar. Torfi, sem
var sonur bóndans í Arnamesi,
kom frá ísafirði. Hafði hann
nokkru áður verið valinn til þess
að fara utan og læra sjómanna-
fræði ,svo hann gæti kennt öðrum.
Varð lítið úr kennslu hans, þar
sem efni til skólahalds reyndust
lítil. Nokkru eftir komu Torfa til
Flateyrar fékk hann í félag við sig
Hjálmar Jónsson og skyldi hann
annast verzlun á staðnum. Fékk
hann afnot af fremsta hluta eyrar-
innar (eyraroddann) og var leigu-
samningur gerður til 99 ára og ár-
gjald ákveðið 100 krónur.
Torfi starfaði mjög að eflingu
útgerðar á Flateyri, jafnframt því
sem hann annaðist verzlunina í
fjarvem Hjálmars, en hann var
jafnan ytra á vetrum. 1883 seldi
Hjálmar Ásgeiri Ásgeirssyni kaup-
manni á Isafirði, verzlunina.
Fylgdi það með í kaupunum, að
Torfi Halldórsson skyldi vera
verzlunarstjóri verzlunarinnar. Fór
það eigi eftir, því ári síðar var
honum sagt upp starfi.
Urðu þessi þáttaskil í lífi Torfa
til þess, að hann snéri sér af al-
hug að eflingu útgerðar á Flat-
eyri. Tók hann til sín unga og efni-
lega menn í firðinum, kenndi þeim
sjómannafræði og setti þá fyrir
skipum sínum. Þrátt fyrir áhuga
Torfa á eflingu útgerðar, tók hún
brátt að dragast saman. Olli því
hin mikla bylting í atvinnuháttum
Flateyringa, er varð þá verk-
smiðjurekstur hófst á Sólbakka
um 1890. Torfi Halldórsson and-
aðist á Flateyri 83 ára gamall ár-
ið 1906.
Sólbakki.
Upphaf verksmiðjureksturs á
Sólbakka, sem er innan til við
Flateyri í landi Eyrar, verður þeg-
ar norskur maður, Hans Ellefsen,
byrjar að starfrækja þar hvalveiði-
stöð 1890.
Varð það mjög fyrir atbeina
Torfa Halldórssonar og sonar
hans, Páls. Varð verksmiðjurekst-
urinn brátt mjög umfangsmikill
og dró að sér vinnuafl hvaðanæfa
af landinu. Oft voru hópar er-
lendra manna við störf í verk-
smiðjunni. Þegar mest var, voru
gerðir út frá Sólbakka 7 gufu-
knúnir hvalveiðibátar. Þrjú flutn-
ingaskip voru í ferðum landa á
milli til flutninga á afurðum verk-
smiðjunnar á erlendan markað og
til aðdráttar á rekstursvörum. Var
hið stærsta þeirra 750 tonn að
stærð.
Ekki standa nein hús eftir frá
tímum hvalveiðistöðvarinnar utan
stórt hús ofan við núverandi veg,
sem þá var íbúðarhús starfsmann-
anna. Ellefsen lét byggja sér mik-
ið hús á Sólbakka, en þar dvald-
ist hann jafnan á sumrum. örlög
þessa húss urðu þau ,að við brott-
för sína frá Sólbakka gaf hann
Hannesi Hafstein, ráðherra, hús-
ið, lét rífa það og flutti það til
Reykjavíkur. Hannes Hafstein bjó
í því og seldi síðan ríkinu húsið.
Er það nú bústaður forsætisráð-
herra við Tjarnargötu.
Verksmiðjuhúsið á Sólbakka
brann árið 1901 ,en þá hafði Ellef-
sen ákveðið að hætta starfrækslu
hvalveiðistöðwarinnar á Sólbakka,
vegna mjög minnkandi veiði út
af Vestf jörðum. Reyndar hóf hann
árið 1902 undirbúning að bygg-
ingu nýrrar stöðvar að Hólsnesi,
innar í firðinum. Byggði hann þar
skorstein, sem ennþá stendur og
flutti þangað ketil, en árið eftir
flutti hann alfarinn á brott og tók
með sér allt það lauslegt, er hann
mátti. Er talið að byggingar-
framkvæmdir Ellefsen á Hólsnesi
hafi orðið til fyrir þau skilyrði,
sem honum voru sett um útborg-
un vátryggingarfjár verksmiðj-
unnar, sem brann, að hann notaði
það til byggingar á annari verk-
smiðju í sama firði. Ellefsen reisti
Flateyrarkirkja