Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 39

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 39
3 virkaði vel, ísinn hafði verið brotinn. í viðtölunum við starfsfólk kom fram að aukin kynni og samskipti við erlendu foreldrana hafa sýnt starfsfólki fram á að foreldrar eru einstaklingar, ólíkir hver öðrum. Leikskólakennari sagði: …auðvitað eru foreldrar [erlendra barna] líka ofsalega ólíkir eins og bara allir aðrir foreldrar og það hefur líka komið á óvart. Maður hefur kannski flokkað fólk meira. Um leið og maður fer að nálgast fólk þá finnur maður að það er eins ólíkt og það er margt, alveg jafnt fólk af erlendu bergi brotið og íslendingar. Þannig að það þýðir ekkert að flokka fólk niður eftir þjóðerni. annar leikskólakennari tók í sama streng og sagði að ekki þyrfti mikið að leggja á sig til að fá góð viðbrögð frá foreldrum, en „með suma þarf maður að vinna dálítið vel, þannig að það er bara spurning hvað fólk vill leggja á sig.“ En þrátt fyrir viðleitni gat verið erfitt að mynda tengsl. Leikskólakennari sagði: Já, sko eins og með [foreldra] Emmu, þau koma ekkert mikið til að tala og þegar hún [móðirin] kemur þá fór ég oft fram bara til að spjalla og reyna … að segja henni hvað[Emma] hefði verið að gera og hvort þau vildu spyrja um eitthvað. Mér fannst þau ekki þora beint að spyrja … já þau standa í dyrunum og ég [segi] já, komdu … í miklu fleiri tilvikum gengur þó vel og foreldrar staldra lengur við í leikskólanum og spjalla við starfsfólk. í hópviðtölunum við starfsfólk kom skýrt fram hve það gladdist yfir meiri og betri samskiptum við erlenda foreldra: „Mér finnst alltaf voða gaman þegar foreldrarnir verða virkir og vilja koma inn og kíkja.“ annar þáttur í þróunarverkefninu var að fyrsta viðtal við foreldra var endurbætt. ítarlegar upplýsingar um barnið, uppruna þess, móðurmál, áhuga og sterkar hliðar og viðhorf foreldra til ýmissa mála eru skráðar á sérstök blöð. Leikskólastjóri eða að- stoðarleikskólastjóri ásamt þeim starfsmanni sem á að sjá um aðlögun barnsins taka viðtalið. Markmiðið er að strax­ í fyrsta viðtali finni foreldrar fyrir áhuga leikskólans á þeim og barninu þeirra. Upphaflega fóru þessi viðtöl fram í leikskólanum en síðar var farið að bjóða foreldrum, jafnt íslenskum sem erlendum, að leikskólastarfsfólkið kæmi heim og tæki viðtalið á heimili viðkomandi. í fyrstu þáðu fáir foreldrar boðið en nú fara mörg fyrstu viðtöl fram á heimilum barnanna og er mikil ánægja með þetta fyrir- komulag hjá foreldrum og starfsfólki. Með þessu fá leikskólakennararnir innsýn í líf barnsins innan fjölskyldunnar sem auðveldar þeim að skilja og bregðast við þörfum þess. Leikskólakennararnir lýstu ánægju sinni með þetta fyrirkomulag og fannst það auðvelda samskipti við foreldrana. MacBeath, Mearns og Smith (1986) hafa fjallað um valdamuninn í tengslum foreldra og kennara í skólanum annars vegar og á heimilum foreldranna hins vegar. Heimilið er yfirráðasvæði foreldranna og þar eru kennararnir gestir. í hefðbundnu viðtali innan leikskólans eru foreldrarnir hins vegar á yfirráða- svæði leikskólans og kennarans. Nauðsynlegt er fyrir foreldra að þekkja út á hvað leikskólastarf gengur og vita hvað börnin eru að fást við dags daglega. Það er forsenda þess að leikskólakennarar og foreldrar verði samherjar í uppeldi barnanna. Því miður hefur oft gengið illa að koma upplýsingum um leikskólastarfið til erlendra foreldra og stundum hafa þeir anna ÞorBjörg ingó­lfs­dó­ttir, els­a s­igríð­Ur jó­ns­dó­ttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.