Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 62

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 62
62 sem ljós kæmist í gegnum nefndu þau vatn, pappír, glugga, glas, peysu og ljósaperu, en ljósið komst ekki í gegnum borð og stól, sögðu þau eftir að hafa prófað með vasa- ljósi. í sambandi við ljós svöruðu börnin í byrjun spurningunni um hvað væri ljós þannig að það væri í ljósaperunni, í sólinni sem er eldur, í vasaljósinu og ljósi frá stjörnum. Þegar þau voru spurð hvað væri skuggi kom að þeirra sögn „myrkur að [af] manni“ og „ekkert ljós“. Börnin lærðu að gera skugga, bæði litla og stóra, en þau ræddu það lítið, gerðu þá bara. athyglisvert dæmi um það þegar barn er að byrja að skilja að ljósið ferðast var þegar ein stúlkan áttaði sig á að ljósið frá vasaljósinu endurkastaðist af speglinum á vegginn og sagði: „Það kemst ekki í gegnum spegilinn.“ Mæðurnar sem svöruðu spurningalistanum töldu margar að skilningur barna þeirra á ýmsu af því sem tekið var fyrir í Vísindaleikjunum hefði aukist. Þegar mæð- urnar voru beðnar um að taka dæmi um aukinn skilning barnanna vísuðu þær oft til þess sem þær höfðu áður sagt um það sem börnin töluðu um heima og ein nefndi að barninu hefði þótt merkilegt hvernig litir urðu til. „Þetta þroskar auðvitað barnið og gefur örugglega dýpri skilning á hlutunum þó svo þetta sé ekkert mikið rætt eftir á,“ sagði ein. önnur móðir nefndi skilning á speglun og á ljósi og skuggum. Enn önnur talaði um aukna víðsýni, skilning og aukinn áhuga á tilraunum. Þegar gögnin eru metin má segja að það séu í þeim veikar vísbendingar um að skiln- ingur sumra barnanna hafi aukist en almennt svara gögnin ekki spurningunni um áhrif Vísindaleikjanna á skilning barnanna á þeim fyrirbærum sem unnið var með. saMantEk­t og uMræð­a Reynslan af Vísindaleikjunum í leikskólanum Hamraborg var mjög góð og má leiða getum að því að viðfangsefni og kennslufræðileg nálgun sem þar var notuð geti hentað víðar í leikskólastarfi. Þarna fá börnin góðan tíma til að prófa sig áfram frjálst með ýmiss konar efnivið auk þess sem kennararnir innleiða hugtök, leiða börnin áfram í gegnum ákveðin ferli og beina athygli þeirra að eðlisfræðilegum lykilatriðum í hverju viðfangsefni. Þetta virka hlutverk kennara er í andstöðu við aðferðir kamii og DeVries (1993) en okkur virðist það vera lykilatriði. Fleer (1996) komst að sömu niðurstöðum í rannsóknum sínum í Ástralíu. Efniviðurinn höfðaði vel til barnanna. Þetta er efniviður sem hægt er að gera margt með og fellur vel að starfsháttum og menningu leikskólans. Börnin sýndu upp til hópa mikinn áhuga á að leika sér með viðfangsefnin og höfðu mjög mikla ánægju af Vísinda- leikjunum. Þetta er í samræmi við niðurstöður rannsóknar Fleer (1996) þar sem hún skoðaði árangur af eðlisfræðinámi leikskólabarna í Ástralíu. Það má síðan leiða líkum að því að þessi ánægja skapi jákvæð viðhorf gagnvart náttúrufræðum. Það markmið verkefnisins að beina athygli barnanna að eðlisfræðilegum lykilat- riðum tókst vel að okkar mati. auðvitað ekki alltaf og varðandi allt, en í grundvall- aratriðum tókst það vel. Hér má ekki gleyma mikilvægi þess að sýna þolinmæði og þörf barnanna fyrir að koma aftur og aftur að sama viðfangsefninu. Ein stund þar sem ákveðið viðfangsefni er tekið fyrir nægir ekki. Það er hins vegar einnig ljóst að Vísindaleikirnir höfðu áhrif á það hvernig börnin skoðuðu fyrirbærin í framhaldi af „He im­Ur inn er al lUr raUð­Ur“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.