Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 74

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 74
74 göngunnar og hvernig þau sjá muninn á leikskólanum og grunnskólanum benda til þess að börnin sjái upphaf grunnskólagöngunnar sem stórt skref í lífi sínu. Þau reikna með að tímar alvöru séu í nánd og leikur og frjálsræði sé á undanhaldi. í rannsókn á hugmyndum reykvískra barna um leikskólann og grunnskólann kom fram að börnin höfðu myndað sér nokkuð hefðbundnar skoðanir á því hvað börn læra og gera í grunn- skólum. Þau töldu að í grunnskólanum sætu börn þegjandi og prúð við borð og lærðu að lesa, skrifa og reikna. Þó börnin nefndu fjölbreytta hluti sem þau höfðu gert og lært í leikskólanum héldu þau því fram að þeim hefði ekkert verið kennt þar, þau hefðu lært hlutina sjálf í leikskólanum (Jóhanna Einarsdóttir, 2003). Þetta er sambærilegt við niðurstöður Ingrid Pramling Samuelsson og félaga í Sví- þjóð (Pramling Samuelsson og Willams-Graneld, 1993; Pramling, klerfelt og Graneld, 2001), en börnin í rannsóknum þeirra töldu meginmuninn á grunnskólanum og leik- skólanum vera þann að þau þyrftu að sitja á stólum, læra að lesa skrifa og reikna í grunnskólanum, en í leikskólanum fengju þau að velja og leika sér. Þau skilgreindu leik sem viðfangsefni sem þau skipulögðu og veldu sjálf. Þó þau væru að vinna að svipuðum viðfangsefnum í grunnskólanum, sem voru skipulögð af kennaranum, töldu þau það ekki vera leik. Þau töldu að allt væri flóknara og erfiðara í grunnskól- anum og þar væri í raun og veru verið að læra á réttan hátt. Börnin höfðu blendnar tilfinningar gagnvart skólanum. Það sem þau töldu jákvætt var að þau væru að læra nýja hluti, umhverfið væri nýtt og þau eignuðust nýja vini. En sum voru áhyggju- full vegna krafna grunnskólans, höfðu áhyggjur af því að verða einmana, áhyggjur af því óþekkta, af því að gera mistök og af því að fá lágar einkunnir. Þau tóku báðar stofnanir sem gefnar og settu ekki spurningamerki við það sem þar fór fram. Norsk rannsókn með sex­ ára börnum sýnir einnig að börnin höfðu nokkuð hefðbundna og staðlaða mynd af grunnskólanum. Þau höfðu skýra mynd af því hvað skilur að leik og viðfangsefni grunnskólans og höfðu myndað sér skoðanir byggðar á upplýsingum sem þau fengu aðallega frá eldri börnum. Mörg börnin nefndu að í skólanum þyrftu þau að þekkja ákveðnar reglur, svo sem að einungis megi leika sér í frímínútum. Eins og íslensku og sænsku börnin tóku þau þessar reglur sem gefnar og spurðu einskis (Eide og Winger, 1994). Rannsóknir þar sem börnum hefur verið fylgt frá leikskólanum í grunnskólann sýna einnig að börn gera skýran greinarmun á starfsemi leikskóla og grunnskóla. Rannsókn Corsaro og Molinari (2000) með ítölskum börnum sýnir að leikskólabörnin litu svo á að í grunnskólanum væri meiri vinna en leikur og fleiri reglur og að þar myndu þau sitja hljóð við borð. Börnin litu á hæfni sína til að lesa og skrifa sem mikilvægan þátt í væntanlegri grunnskólagöngu. Þegar þau komu í fyrsta bekk fannst þeim tíminn vera skipulagðari og honum skipt niður í tímabil sem væru afmörkuð með hringingu. Corsaro og Molinari (2000) töldu að leikskólinn ætti sinn þátt í að móta skoðanir barn- anna á því sem búast mætti við í grunnskólanum með því að undirbúa þau fyrir það sem koma skyldi. Niðurstöður Griebel og Niesel (2002) með þýskum börnum sýna svipaðar niður- stöður. Börnin töldu muninn á leikskólanum og grunnskólanum vera þann helstan að í leikskólanum hefðu þau val um hvað þau vildu gera en í grunnskólanum yrðu l e iks­kó­l inn frÁ s­ jó­narHó­l i Barna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.