Morgunn - 01.12.1920, Page 153
M 0 R G,U N N
231
ataddra eða fjarstaddra. Auðvitað er þessi kenning alt af
að linast. Það er svo margt, sem móti henni mælir. Og
þeir mennirnir, sem mest hafa við sálarrannsóknir feng-
ÍBt og af mestri vísindalegri nákvæmni, telja það hreina
og beina fásinnu að ætla fjarhrifunum slíkan mátt. En
samt sem áður eru þau aðalundirstaðan hjá andstæðing-
unum, eins og áður er sagt, þeirra er tala vilja um málið
af einhverju viti, og halda ekki fram öðrum eins fjar-
stæðum og þeim, að fyrirbrigði spíritismans séu eingöngu
svik. En nú heldur prófessor Lehmann því fram, að fjar-
hrifin séu engin til — þau séu ekkert annað en lágar
hvíslingar með vörunum. Hann hefir ferðast um alla Dan-
mörk til þess að boða þá speki. Aðhyllist andstæðingar
spíritismans þá kenniugu, þá er undirstaðan undir virkjum
þeirra hrunin. Ekki er árennilegt að skýra endurminn-
ingasannanirnar allar, og því síður önnur fyrirbrigði spíri-
tismans, með fjarhrifum frá jarðneskum mönnum. En ekki
verður auðveldara að skýra þær með hvíslingum. Þess vegna
ættu andstæðingar spiritismaus að vara sig á Lehmann.
ýmislEgt utan úr hEÍmi.
Ratleiqh lávaeðue og sik William Ceookes. — Tileaunie
CkOOKES ÚE ÖÐEUM HEIMI. -- EFLING SPÍEITISMANS Á ENGLANDI.
— Conan Dotle og Welldon biskup. — Vale Owen peestur. —
Sie Olivek Lodge í Bandaeíkjunum. — Mijatovitch geeipi. —
»Beos Guðs«.
Brezka Sálarrannsóknafélagið hélt fund 9. desember
síðastliðinn til þess að minnast tveggja, nýlega látinna,
fyrv. forseta sinna, Rayleigli lávarðar og Sir Williams
Crookes. Báðir voru þeir taldir með mestu stórmennun-
unum í hópi nútíðar-visindamanna. Tveir fyrv. forsetar