Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 45
M O R G U N N
39
irinn hefði, fyrir nokkrum tíma, haft með höndum sjúkl-
ing að nafni Guðna Magnússon, er orðið hefði fyrir
meiðslum í sambandi við bíl eða bílslys og beðið bana af
beim orsökum. Og ef svo væri, þá með hvaða hætti dauða
hans hefði að borið. Að ég hafi ekki verið margorður,
niá síðar sjá á bréfi þeirra, er frúin skrifaði, þar sem
hún víkur að því — hvaðan mér geti verið komin sú litla
vitneskja um þetta, er ég hafi.
Þess skal getið, að frú Guðrún kvaðst hafa farið að
gefa sig að ,,gestinum“ þegar henni virtist Hjálmari
þykja nóg komið og hann kannaðist ekki við neitt. Því
hún mundi glöggt eftir öllum h^lztu atburðunum í þessu
sambandi. Henni virtist ,gesturinn‘ svo skýr og duglegur
í s.ambandinu, enda krafturinn mikill og góð samstilling
yfir fundinum og miðillinn ágætlega fyrirkallaður. Fleiri
atriði höfðu og líka komið fram síðar á fundi þessum,
er fólu í sér sannanir annars eðlis en þau, er hér um
ræðir.
Ég skrifaði læknisfrúnni og varð ekki lítið undr-
andi, er ég meðtók svarbréf hennar, með ítarlegustu
upplýsingum, er svara nákvæmlega, ekki að eins til
þess fáa, er um var spurt, heldur og' í samræmi við öll
hin helztu atriði, er frú Guðrún var áður búin að skýra
mér frá að gerzt hefðu á umræddum miðilsfundi.
Hér fer á eftir kaflinn úr bréfi læknisfrúarinnar, dags.
14./3. 1941, að því, er þetta mál varðar:
,,. . . . Þig mun líklega undra, að ég svara bréfi þínu
„um hæl, þú veizt að ég er allt af löt að skrifa. En
,,út af því, sem þú spurðir mig í bréfi þínu, viðvíkjandi
„slysi, vár ég beðin að skrifa sem allra fyrst og jafn-
„framt biðja um allar mögulegar upplýsingar um
„hvernig þér er komin sú litla vitneskja um þetta, er
„þú hefir og hvort þú getir sagt meira í þessu sam-
„bandi. Það er bezt að ég segi þér frá málavöxtum
„eins og þeir eru okkur hér kunnir. Hér búa hjón, sem