Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 133
MORGUNN
127
Hvernig vitið
þér þetta?
að þeix’ fari þær götur, sem þeim þykir vonlegast um að
liggi að því markmiði, sem þeir þrá að ná.
Sama hefti, er flytur erindi Gísla Sveins-
sonar sýslumanns, flytur einnig ágætt er-
indi, „Gildi kristindómsins", eftir dr.
med. Ái’na Árnason, héraðslækni. í því segir doktorinn
réttilega: „Eftir líkamsdauðann heldur hann (manns-
andinn) áfram að lifa og þroskast, og þroskamöguleikar
hans eru ótakmai'kaðir". Hvaða kenning er nú þetta?
Þetta er engan veginn hin lúterska kenning um lífið
eftir dauðann, hania finnum vér í 12. kap. í Helgakveri,
sem sumir px-estar láta börnin læra enn, og foreldrarnir
láta óátalið, þótt foreldrarnir, mundu stói'lega telja
sér misboðið ef farið væri að halda að þeim sumu því,
sem þar er kepnt. Nei, þessi ltenning urn þroskamögu-
leikana eftir dauðann er ekki hin kirkjulega kenning,
það verða menn að gera sér ljóst. Hún hefir fyrst náð út-
breiðslu og viðui’kenning hér á landi, eftir að mönnum
lærðist að hugsa um lífið eftir dauðann að hætti spirit-
ista. Þetta er engan veginn sagt lækninum til hnjóðs
fyrir hans ágætu ritgerð, en „Morgunn" getur ekki stillt
sig um að benda á þetta, til þess að sýna, hve menn eru
orðnir spii'itistiskir í hugsun sinni um þessi efni, án þess
að vita af því, eða viðurkenna það.
Hallgrímur Jónsson, fyrrum skólastjóri,
hefir þýtt lítinn bækling, sem kom út á
liðnum vetri og heitir „Englarnir og hinn nýi kynstofn“.
Þótt þar sé fai'ið nokkuð út fyrir takmöi’k þess, sem spii'-
itistar telja sannað þelckingaratriði, telur „Morgunn"
víst, að þeir muni hafa gagn og gleði af að kynnast þess-
ari litlu, fallegu bók.
Furðuieg Síðasta jólahefti Kirkjuritsins bii'tir
lækning? kafla úr einkabréfi til annars ritstjórans,
Ásm. Guðm. prófessors, frá séra Jóni
Guðjónssyni, í Holti undir Eyjafjöllum, um merkilega,
dulræna lækning, sem kona hans virðist hafa fengið.
Englarnir___