Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 65
MORGUNN
59
l&ginu leyfði, ól önn fyrir syni sínum, sem var við nám,
og tók miðilsstarf sitt þannig, að hún lifði að öllu leyti
eðlilegu og heilbrigðu lífi.
Miðilsgáfa „Margery“ hófst með lítilfjörlegum högg-
um á borð, en hún hafði þroskazt upp í það, að sýna
allar hliðar miðilsgáfunnar, sem voru þá þekktar — og
jafnvel hliðar, sem ekki þekktust áður — að undan-
teknu því, að aldrei höfðu komið fram hjá henni full-
skapaðir líkamningar, þeim hafði raunar verið lofað, en
mér vitanlega tókst aldrei að fá þá fram. Hjá ,,Margery“
kom í ljós transgáfa, skrift á ýmis konar tungumálum,
þar á meðal hin mjög umrædda kínverska skrift, ósjálf-
ráð skrift, leikið var á ýmis konar hljóðfæri, sem ekki
voru til í húsinu, og þar var ekkert útvarpstæki,
alls konar sálræn Ijósafyrirbrigði, teleplasma í alls
konar myndum, litum og þéttleika, það var sýnilegt í
góðu, rauðu ljósi og var ljósmyndað svo hundruðum
skipti við margs konar skilyrði, ectoplasma-strengur,
hendur með nöglum, beinum og hörundi, sem hreyfðust
um herbergið, sjálfstæð rödd, sem hófst með lítilfjör-
legu hvísli, sem varð að dynjandi karlmannsrödd, al-
gerlega óháðri miðlinum og án þess nokkur hljóðauki
væri notaður, hlutir voru fluttir að inn í tilraunaherberg-
ið og einnig burt þaðan, ,,piarafin“-hanzkar fengust úr
vaxi, líkir þeim, sem þekktust hjá Kluski í Varsjá, fing-
urmót ósýnilegra handa fengust í vax, þar á meðal þum-
alfingurmótin, sem geisilegt umtal og athygli vöktu,
merkileg víxlskeyti fengust við aðra, sem voru í fjar-
lægð og fjölmargar telepatískar tilraunir — fjarhrifa-
tilraunir — voru gerðar.
Aðal vitsmunaveran í sambandinu var Walter Stinson,
ungur bróðir ,,Margery“, sem farizt hafði nokkrum ár-
um áður af slysi. Persónuleiki hans, eins og hann kom
fram í samband'jnu, var þróttmikill, karlmannlegur,
ráðríkur, óþolinmóður, stundum óvandaður um málfar
sitt, en gáfaður, kjarkmikill og ákveðinn í að koma fyr-