Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 22
22 12. maí 2011 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR ÍS LE N SK A S IA .I S S FG 4 20 40 0 4. 20 08 S töðug fjölgun kynferðisbrota á borði lögreglu er mikið áhyggjuefni. Jafnvel þótt líklegt teljist að kynferðisbrot- um hafi í raun ekki fjölgað jafnmikið og þeim málum sem koma á borð lögreglu heldur skýrist fjölgunin að minnsta kosti að hluta af góðu heilli þverrandi umburðarlyndi í samfélaginu gagnvart slíkum brotum, eins og Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur bendir á í frétt í blaðinu í dag. Helgi bendir einnig á að vaxandi vitund borgaranna um kynferðisbrot og meiri umræða í fjölmiðlum geti skýrt fjölgun kynferðisbrotamála hjá lögreglu. Það eru út af fyrir sig góðar fréttir að hærra hlutfall þeirra sem fyrir kynferðisbrotum verða skuli fara með þau til lögreglu. Ekki er þó hægt að loka aug- unum fyrir því að sá möguleiki er vissulega fyrir hendi að um fjölgun brota sé að ræða. Eins og Helgi bendir á þá er ekki hægt að útiloka að fjölgun brotanna endurspegli sérhyggju og græðgi góðærisáranna „sem líkja má við siðrof“. Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, Björgvin Björgvinsson, sagði í frétt blaðsins í gær að kynferðisbrotamál kæmu yfirleitt í bylgjum til lögreglu en að nú væri aukningin hins vegar stöðug. Þetta sagði hann valda lög- reglunni miklum áhyggjum. „Við höfum hreinlega ekki undan,“ sagði hann. Hver sem skýringin er á fjölgun kynferðisbrotamála hjá lögreglu þá hljóta viðbrögðin að felast í að efla kynferðisbrotadeildina. Lágt hlutfall kæra í kynferðisbrotamálum og enn lægra hlutfall dóma er þekkt staðreynd. Þegar við bætist að rannsóknardeildin annar ekki málafjöldanum verður útlitið enn svartara. Því blasir við að byggja verður kynferðisbrotadeildina upp þannig að hún ekki bara anni málum heldur nái helst að auka hraðann við vinnslu þeirra. Skilvirkt starf kynferðisbrotadeildar er ekki bara lykillinn að því að fjölga ákærum og dómum í kynferðisbrotamálum heldur sjálfsögð þjónusta við þolendur afar sársaukafullra brota. Það blasir við að löng bið brotaþola eftir því að rannsóknadeild ljúki störfum sínum þannig að unnt sé að taka ákvörðum um ákæru hlýtur að taka mjög á og draga úr kjarki til að halda málinu til streitu. Sömuleiðis hlýtur vitneskja um að kynferðisbrotadeild anni illa verkefnum sínum að bera í sér fælingarmátt frá því að kæra kynferðisbrot til lögreglu. Mikill sigur felst í því að þagnarhjúpnum hefur verið svipt af kynferðisbrotum þannig að þeim þolendum kynferðisofbeldis sem bera harm sinn í hljóði fer fækkandi. Við megum ekki gleyma því að ekki er nema um það bil aldarfjórðungur síðan bæði kynferðis- brot, ekki síst gagnvart börnum, og ofbeldi í nánum samböndum lágu nánast í þagnargildi. Næsta verkefni er að bjóða þolendum kynferðisofbeldis upp á skilvirka rannsókn á málum þeirra, allt frá móttöku í kjölfar brots. Í framhaldinu væri svo eðlilegt að sjá fjölgun ákæra og dóma í kynferðisbrotamálum. Kynferðisbrotakærum rignir yfir lögreglu. Efla verður kyn- ferðisbrotadeild SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Óskhyggja Gunnar Bragi Sveinsson og þrír aðrir alþingismenn stigu í pontu í gær og lýstu yfir vanþóknun sinni og áhyggjum af málflutningi og orðfæri þingmanna. Lögðu þeir áherslu á að ef Alþingi ætli sér að vinna traust almennings á nýjan leik verði þingmenn að haga orðum sínum með siðaðri hætti. Lofsvert er að benda á þetta mein og krefjast úrbóta, en því miður er þar sennilega um óskhyggju að ræða og ólíklegt að bragarbót verði þar á. Er vísað til sögunnar í þeim efnum. Siðrof? Í umræðunum var minnst á að siðrof hefði orðið í kjölfar hrunsins. Svo má vera, en það er ekki eins og pólitískt skítkast manna á milli sé eitthvað nýtt. Ýmsir gullmolar hafa fengið að fljúga á þingi í gegnum árin, eins og „aftur- haldskommatittur“, „skítlegt eðli“, „gunga og drusla“ og þar fram eftir götunum. Sumt breytist einfaldlega ekki. Afsökunarbeiðni Í dálkinum á þriðjudag var fullyrt að úttekt Ríkisendurskoðunar hefði leitt í ljós að Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, hefði „misfarið með almannafé í áraraðir“. Slíka fullyrðingu er ekki að finna í úttekt Ríkisendurskoðunar þótt þar séu ýmsar athugasemdir gerðar við rekstur Hraðbrautar og samskipti menntamálaráðuneytisins við skólann. Orðalag í dálkinum var sömuleiðis óviðeigandi og á köflum meiðandi í garð Ólafs. Fréttablaðið biðst afsökunar á mistökunum. thorgils@frettabladid.is, ritstjorn@frettabladid.is Er hræðsla borgaryfirvalda um væntan-legar bætur ef undið væri ofan af skipulagsmistökum síðari ára á rökum reist? Brýn þörf er á að breyta deiliskipu- lagi vegna varðveislu gömlu byggðarinnar innan Hringbrautar og Snorrabrautar. Það þýðir í reynd fækkun fermetra í nýbyggingum. Er víst að það valdi ein- hverjum fjártjóni? Verða ekki fermetrar í gömlu húsi í fallegu umhverfi verðmæt- ari en í nýju húsnæði sem jafnvel treður á umhverfi sínu? Á ekki að láta reyna á „tjónið“ fyrir rétti? Í hverju tilviki þarf þá „tjónþoli“ að sýna fram á að hann hafi orðið fyrir tjóni. Það er nefnilega ekki sjálfsagt að allar breytingar á skipulagi og varðveisla húsa valdi tjóni nema síður sé. Af hverju eru t.d. Þjóðverjar að byggja upp borgarmiðjur í Dresden og Frankfurt í takt við það sem áður var? Væntanlega af því það borgar sig. Sýnt hefur verið fram á það út um allan heim ekki síst á meginlandinu og vestan- hafs að það getur verið arður af arfinum. Þarna spilar ánægja borgaranna inn í. Í hvers konar umhverfi þrífst fólk best? Hér í Reykjavík vantar skýra stefnu í hús- vernd og skipulagi innan Hringbrautar og Snorrabrautar. Á árunum 1995-1997 voru unnar tillögur að „Húsvernd Í Reykjavík“ Sú vinna varð aldrei hluti Aðalskipulags eins og nauðsynlegt er. Tók heldur ekki á Laugavegssvæðinu. Aftur voru unnar til- lögur um sama efni sem nefnist „Borgar- og húsverndarstefna Reykjavíkur, skýrsla vinnuhóps/maí 2008“. Sú skýrsla er enn að velkjast í kerfinu. Skipulagsyfirvöld segjast vera að vinna í málinu og það tengist gerð nýs aðalskipulags og Þróunaráætlunar miðborgarinnar. Ekki er enn ljóst hvað út úr því kemur. Að mínu mati á hin almenna regla að vera sú að varðveita nánast öll eldri hús á svæðinu og nýbyggingar séu vandaðar og taki fullt tillit til byggðarinnar sem fyrir er. Þetta þýðir endurskoðun á því deiliskipulagi sem í gildi er og síðan verða borgaryfir- völd að taka slaginn hvað bætur varðar ef einhverjar verða. Það voru orð í tíma töluð í leiðara Fréttablaðsins sl. mánudag þar sem segir um borgaryfirvöld: „Vilja þau halda áfram og sökkva dýpra í fen skipulagsmistaka fortíðarinnar – sem er líka dýrt – eða vilja þau höggva á þennan hnút og hlúa að að gömlu húsunum í miðbænum?“. Ef til vill er það ekki eins dýrt og menn halda. Látum á það reyna. Bótaskylda vegna breytinga Skipulagsmál Magnús Skúlason arkitekt og formaður Íbúasamtaka miðborgar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.