Fréttablaðið - 12.05.2011, Side 31

Fréttablaðið - 12.05.2011, Side 31
FIMMTUDAGUR 12. maí 2011 ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá Nice Í sumar er eins gott að veðrið verði gott, að minnsta kosti fyrir herrana, þó vorið hafi farið hægt af stað heima á Fróni. Herratískan er fáguð en frjálsleg og karlarnir verða mjög herralegir hvað varðar stílinn. En fyrst og fremst verða fötin létt, úr þunnum, mjúkum efnum. Líkt og stuttbuxur fyrir konur eru bermúda stuttbuxurnar enn og aftur ómissandi í klæðaskáp herranna þó auðvitað geti það farið eftir hitastigi hvort hægt er að spóka sig um með kríkana bera án þess að stofna heilsu sinni í hættu. Það er hins vegar áhugavert að sjá að jakka- föt með stuttum buxum eru að skapa sér varanlegan sess í herratískunni sem eins konar sumarútgáfa af jakka- fötum. Og af hverju skyldu herrar ekki breyta síddinni á buxum sínum yfir sumarið líkt og konur sem klæðast styttri pilsum? Fyrir einum fimm- tán, tuttugu árum man ég eftir Maríusi Sverrissyni söngvara í jakkafötum með ber- múdabuxum, sem þá þótti auðvitað afskap- lega skrítið. En nú eru aðrir tímar og tuttugu árum seinna er þetta aðal málið. Reyndar er fleira sumarlegt á komandi mánuðum eins og skyrtur og jakkar sem oft eru úr hör eða bómull. Gamli góði pólóbolurinn stendur fyrir sínu í sumar og sannar að aldrei á að henda neinu sem er í heilu lagi og sæmilega nothæft því tískan fer alltaf í hringi og það sem var úti í gær er inni í dag. Litirnir eru ljósari en oft áður fyrir herrana, hvítt er ómiss- andi, bæði í buxum og jökkum og hvítur blazer ómissandi í öllum fataskápum sem hægt er að nota með hvítum eða drapp- litum buxum, bermúdabuxum eða gallabuxum. Annars er mikið um ljósa beige-liti eða fölgrátt. Í sumar er bleika æðið sem einkenndi síðustu sumur algjörlega horfið en fyrir þá sem myndu segja að litirnir séu fölir og óspenn- andi í sumar þá eru háls klútar í ýmsum sterkum litum notaðir til að hressa upp á yfirbragðið og þá í staðinn fyrir bindið. Sömuleiðis geta þeir verið ágætir til að halda á sér hita þegar vindur er napur þannig að tísk- an getur stundum verið parktísk. Hafi leðursandalar oft verið í sumartísk- unni þá held ég að þeir hafi aldrei sést eins mikið og í eins mörgum útgáfum og í sumar. Þeir geta verið með mörgum bönd- um úr leðri, bundnir um ökkla, opnir með aðeins tveimur leður- böndum sem fara í kross yfir ristina eða þá með leður- bandi á milli stóru- tánnar og hinna (tongs). Og þá er bara að óska körlum landsins þægilegs hitastigs til að geta notið fjölbreytni tískunnar. bergb75@free.fr Á stuttum buxum á löngum sumardögum Hönnuðurinn Sruli Recht mun hanna fimm nýjar vörulínur fyrir bandaríska fylgihluta- fyrirtækið Nooka. „Við fáum frjálsar hendur til að endurhanna formin frá grunni,“ segir Sruli Recht en bandaríska hönnunarfyrirtækið Nooka hefur fengið hann til að hanna fyrir sig fimm nýjar vörulínur í takmörkuðu upplagi. Nooka var stofnað árið 2005 og er þekktast fyrir framúrstefnuleg armbandsúr í skærum litum, þar sem tíminn er settur fram á óhefð- bundinn hátt. Hönnuðir á borð við Karim Rashid og John Fluevog hafa hannað úr fyrir Nooka. Aðspurður segist Sruli þegar búinn að ákveða hvernig hann nálgist verkefnið. Hann vill þó ekk- ert gefa upp um hvernig vörurnar muni líta út, vinnan sé enn á frum- stigi og ekki sé ákveðið hvenær þær komi á markaðinn. - rat Hannar fyrir Nooka Sruli Recht mun hanna fimm nýjar vörulínur fyrir fylgihlutafyrirtækið Nooka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Töff föt fyrir sumarið Kyn ni ng VORSPRENGJA Í MÖST C Suðurlandsbraut 50 20-80% afsláttur af öllum vörum BASIC PLUS Háholt 13-15 Mos Kjóll 18.990 BELLADONNA Skeifunni 8 Kjóll blár/rauður verð 13.980 www.belladonna.is TÖSKU OG HANSKABÚÐIN Skólavörðustíg 7 www.th.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.