Fréttablaðið - 12.05.2011, Síða 40

Fréttablaðið - 12.05.2011, Síða 40
12. MAÍ 2011 FIMMTUDAGUR8 ● pizza ● DROTTNINGARPITSAN MARGARÍTA Ítalski bakar- inn Raffaele Esposito á heiður- inn af vinsælustu pitsusamsetn- ingu margra og ekki síst barna. Raffaele vann á pitsustaðnum Pietro...e basta cosi sem stofn- aður var 1880 og er enn starf- ræktur undir nafninu Pizzeria Brandi. Árið 1889 átti Raffaele von á Umberto I konungi og drottningu hans, Margarítu af Savoy í mat, og bakaði fyrir komu þeirra þrjár mismunandi pitsur, þar sem drottningin féll kylliflöt fyrir pitsu í ítölsku fána- litunum með áleggjunum basil (grænt), mozzarella-osti (hvítt) og tómötum (rautt). Var pitsa Raffaele því nefnd Margaríta drottningunni til heiðurs. ● PITSAN Á GRILLIÐ Að grilla pitsu gefur sérstakt bragð og verður flatbakan nánast eins og eldbökuð. Best er að nota sérstaka grill- pönnu sem kaupa má víða en hún er með götum á botninum. Deigið má ekki vera of þykkt og best að hafa pitsurnar þunn- botna og áleggið ekki of þykkt. Annars er pitsan búin til eins og venja er, sett á grillpönnu, sett á heitt grillið og því lokað. Pitsan er látin bakast þar til osturinn er gullinbrúnn. Fyrir þá sem vilja prófa eitt- hvað nýtt má nefna að með því að setja viðarbúta í álpappír og setja ofan á grillið verður til reykjarbragð af pitsunni sem er áhugavert. Nú klæðum við áleggið okkar í gull ...því það á það svo sannarlega skilið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.