Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 46
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR30 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Vísindaveisla fyrir alla ald- urshópa verður á Höfn í Hornafirði dagana 13. og 14. maí næstkomandi þegar Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Hornafirði tekur á móti Háskólalestinni. Ferð Háskólalestarinnar vítt og breitt um landið er þáttur í hátíðarhöldum Háskóla Íslands vegna ald- arafmælis skólans en rík áhersla hefur verið lögð á víðtækt samstarf við heima- menn. Á Höfn býðst nemendum í 7. til 10. bekk grunnskólans að sækja valin námskeið úr hinum vinsæla Háskóla unga fólksins á föstudag- inn. Þar kynnast nemendur ýmsu, allt frá stjörnufræði og latínu til táknmálsfræði. Á laugardaginn býðst gestum á öllum aldri að taka þátt í dagskrá Háskólalest- arinnar í Nýheimum. Þar má meðal annars finna sýningu félaga úr Sprengjugenginu, eldorgelið mun óma, stjörnu- tjald verður opið, gest- ir kynnast sýnitilraunum, teiknirólu, syngjandi skál, tækjum, tólum og japanskri menningu, svo eitthvað sé nefnt. Heimamenn leggja hönd á plóg til að gera helgina skemmtilega. Menningar- miðstöð Hornafjarðar stendur fyrir frumsýningu myndbands um Hornafjörð, Jöklasýningin verður öllum opin, ungar hornfirskar hljómsveitir munu opna hljómsveitaraðstöðu sína og margt fleira. Þá stendur Tónskólinn fyrir opnu húsi. Ríki Vatnajökuls stendur fyrir Heimamarkaði í Pakk- húsinu þar sem öllu því besta sem svæðið hefur upp á að bjóða í framleidd- um afurðum verður tjaldað til. Meðal þess sem verð- ur á boðstólum er reykt- ur makríll, villibráð, hum- arsoð, sauðaostur, beikon, jöklaís, nautakjöt, kartöflur, sulta, handverk úr hand- verkshúsinu Handraðanum og margt fleira. Heimamarkaður og háskólalest ÁHUGAVERT Háskóli unga fólks- ins verður á Höfn um helgina. ALLT UNNIÐ AF HEIMAMÖNNUM Meðal þess sem kaupa má á heima- markaðnum er villibráð, humarsoð, sauðaostur, jöklaís og beikon. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Halldór Kristinn Magnússon Vesturgötu 19, Akranesi, lést að kvöldi sunnudagsins 8. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 16. maí kl. 13.00. Ásta Ágústa Halldórsdóttir Jóhanna Halldórsdóttir Sigurður Teitur Halldórsson Watinee Chompoopetch barnabörn, langafabörn og langalangafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Benedikta Þorsteinsdóttir sem lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 6. maí sl., verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 13. maí nk. kl. 13.00. Kristján Sæmundsson Vigdís Aðalsteinsdóttir Sverrir Sæmundsson Erna Vilbergsdóttir Sigríður Sæmundsdóttir Jón Örn Marinósson Viktor Smári Sæmundsson Ingibjörg Hafstað barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Jónsdóttir „Sigga frá Molastöðum“ Lækjarbakka 9, Steinsstaðabyggð, Skagafirði, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 14. maí kl. 14. Jarðsett verður í Reykjakirkjugarði. Kristján Kristjánsson Rósa S. Eiríksdóttir Guðmundur Pálsson Valdimar Eiríksson Selma Guðjónsdóttir Helga G. Eiríksdóttir Einar Erlingsson Jón Eiríksson Jóhanna Valgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Aron Jónsson húsasmíðameistari og fyrrv. bygginga- fulltrúi, Frostafold 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Parkinsonsamtökin njóta þess. Sigurrós Kr. Sigurðardóttir Inda Sigrún Gunnarsdóttir Ólafur Sveinsson Jón Ingi Gunnarsson Guðrún Haraldsdóttir Sigurður Rúnar Gunnarsson Arndís Guðmundsdóttir Guðfinna Unnur Gunnarsdóttir Kristján B. Haraldsson Gunnar Hlíðdal Gunnarsson Inga Rós Karlsdóttir Gunnur Rós, Ólafur Rúnar, Hekla Lind, Gunnar Aron, Guðmundur Aron, Stefán Már, Sigurður Arnar, Aron Gauti, Ástrós, Björn Henry, Kristján Hlíðdal, óskírður Gunnarsson, Sigurður Karl og Hlynur Ingi. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Sveinbjörg Jónsdóttir Þjóttuseli 5, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugardaginn 7. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða umönnun og hlýju. Jón Helgason Stefanía G. Björnsdóttir Björg Gísladóttir Berglind Reynisdóttir Samson Magnússon Sveinbjörg Jónsdóttir Sigurður Óli Hákonarson Stefán Helgi Jónsson Guðbjörg S. Bergsdóttir Rannveig Jónsdóttir og barnabarnabörn Hjartans þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð, virðingu og stuðning við útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sjafnar Gestsdóttur áður til heimilis að Sólvallagötu 31. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- heimilisins Markar fyrir frábæra umönnun, umhyggju, fagmennsku og persónuleg kynni. Gestur Þorsteinsson Gunnvör Braga Björnsdóttir Svava Þorsteinsdóttir Sigurgeir Guðmundsson Ragnar Þorsteinsson Hólmfríður Kristjánsdóttir Ársæll Þorsteinsson Katla Steinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Svava Engilbertsdóttir Grænugötu 2, Akureyri, andaðist að heimili sínu umvafin ástvinum miðvikudaginn 4. maí. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 16. maí kl. 13.30. Gunnar Árnason Elísabet Björg Gunnarsdóttir Sigurgeir Vagnsson Björgvin Árni Gunnarsson Patcharee Srikongkaew Gunnar Viðar Gunnarsson Kristín Ólafsdóttir ömmu- og langömmubörn Elskulegur sonur minn og bróðir, Theódór Ásgeir Jónsson andaðist 3. maí síðastliðinn. Útförin fer fram föstudaginn 13. maí kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Sigríður Jóhannsdóttir frá Valbjarnarvöllum Steinunn Magnúsdóttir Ísleifur Jónsson Jóhanna Magnúsdóttir Alda Haraldsdóttir Guðmundur Sveinsson Róbert Guðmundsson Mjólkursamsalan hélt í vetur nafnasamkeppni meðal barna tólf ára og yngri um nafn á mjólkur- kúna sem prýðir litlu mjólk- urfernurnar. Mikill áhugi var meðal barna en tæplega átta þúsund tillögur bárust. Dómnefnd barna tók þátt í að velja álitlegustu nöfnin en þeirra á meðal voru gæða- nöfn á borð við Buna, Drop- hildur, Klaufey, Mía muu og Ísabella. Það nafn sem þótti þó bera af var Skvetta og mun kýrin heita það í fram- tíðinni. Kristófer Logi Ell- ertsson úr Hafnarfirði var einn af 21 sem valdi þetta nafn. Hann varð hlutskarp- astur þegar dregið var úr hópnum. Hann hlaut í verð- laun iPod nano og árskort í Húsdýragarðinn. Skvetta bar sigur úr býtum KRISTÓFER LOGI ELLERTSSON Vinningshafinn í nafnasam- keppni MS.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.