Fréttablaðið - 12.05.2011, Page 70

Fréttablaðið - 12.05.2011, Page 70
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR54 SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Það er byrjað klukkan sex og framleitt til tíu næstu daga til að halda dampi á lagernum. Það streymir út í verslanir snakkið,“ segir Sigurjón Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Iðnmarks, sem framleiðir Stjörnusnakk. Vinir Sjonna syngja til úrslita í Eurovision á laugardaginn eftir glæsilegan árangur í undan- úrslitum á þriðjudag. Helgin er ein sú stærsta í sölu á ýmsum partívarningi og Sigurjón segir aukninguna á sölu á snakki vera að minnsta kosti 80 prósent miðað við aðrar helgar. „Það er búið að hækka framleiðslustigið um 40 prósent,“ segir hann. „Það er partí í öðru hverju húsi og stemning í land- anum, sérstaklega vegna þess að við komumst áfram.“ A n n a M a r í a Á rnadótt ir hjá Innnes, sem flytur meðal annars inn Maarud-snakk, hefur sömu sögu að segja. Aukning á sölu snakks er á bilinu 60 til 80 pró- sent í þeirri viku sem Eurovision er á hverju ári – hvort sem um er að ræða kartöfluflög- ur eða tortillusnakk. Pitsusala eykst einnig gríðarlega um helgina. Ásdís Þrá Höskuldsdóttir, framkvæmdastjóri Dominos, segir að sérstakur viðbúnað- ur verði um helgina og starfsmenn verði fleiri en ella. „Þetta er mjög mismunandi, en aukningin getur orðið 40 til 50 prósent,“ segir hún og játar að sú staðreynd að Vinir Sjonna komust áfram gefi góð fyrirheit. „Þetta er ein af stærstu helgum ársins fyrir utan megavikurnar okkar.“ Áfengisneysla er fylgifiskur Eurovisionpartíanna sem verða haldin víða um helgina. Þrátt fyrir það segir Einar S. Einars- son, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá ÁTVR, að þessi helgi sé ekki stærri en aðrar sum- arhelgar í sölu á áfengi. „Það er margt á seyði í maí og salan teng- ist líka veðri og öðru,“ segir hann. „Það er erfitt að spá í hvað eru Eurovision-áhrif og hvað ekki.“ Árið 2009 jókst sala á áfengi um 35 prósent um Eurovision- helgina, en Einar útskýrir það þannig að sömu helgi hafi þjóðin gengið til kosninga. „Við höfum séð miklu meiri áhrif kosninga heldur en Eurovision. En það er mjög erfitt að spá í svona fyrir- fram,“ segir hann. atlifannar@frettabladid.is SIGURJÓN DAGBJARTSSON: ÞAÐ ER PARTÍ Í ÖÐRU HVERJU HÚSI Þjóðin gengur af göflunum í neyslu á snakki og pitsum 80% 50% Stendur í stað „Þeir eru í gufu. Þetta er í annað sinn í dag. Ég fór reyndar með þeim í morgun. Þeir eru farnir að líta á gufubaðið sem einhvers konar heillagrip,“ segir Þorbjörg Sif Þorsteinsdóttir, eiginkona Hreims Arnar Heimissonar. Vinir Sjonna, fulltrúar Íslands í Eurovision, hafa tekið miklu ástfóstri við gufu- baðið á Radison SAS-hótelinu sínu og sækja það grimmt, fara að minnsta kosti einu sinni á dag. Þor- björg segir ekkert skrítið við þetta nýja áhugamál bónda síns, þeir félagar slaki einfaldlega vel á í hitanum. Þorbjörg Sif var í góðum hópi með eiginkonum þeirra Pálma Sigurhjartarsonar, Matthíasar Matthíasarsonar, Benedikts Brynleifssonar og Vignis Snæs þegar kom að úrslitastund í Eurovision-höllinni á þriðjudagskvöld. Hún segir að þær hafi allar hoppað hæð sína af kæti og vart trúað sínum eigin augum þegar íslenski fáninn kom í ljós. „Við vorum eiginlega alveg jafn hissa og Norðmennirnir, vorum alveg hundrað prósent á því að Norðmenn færu áfram.“ Kvöldið var síðan undirlagt af gleði, fyrst var fagnað með fjölskyldu Sjonna Brink og svo farið á svokallaðan EuroClub og dansað fram eftir nóttu. „Við Hreimur vorum reyndar komin heim klukkan hálf fjögur en við heyrðum af einhverjum skríða heim um sex leytið.“ Í gærkvöldi tróðu strák- arnir síðan upp í veislu hjá rússneska hópnum en Þorbjörg segir það skrítið að vera þarna úti í Eurovision-landi án nokkurrar ábyrgðar. „En við njótum bara lífsins, sitjum á kaffihúsum og sötrum hvítvín.“ - fgg Gufubaðið heillagripur strákanna VINSÆLIR Alexander Rybak tekur viðtal við Vini Sjonna en árangur sexmenninganna hefur vakið mikla athygli. Margrét Blöndal, útvarpskonan góðkunna af Rás 2, hefur síðastliðna tvo mánuði unnið að gerð ævisögu Ellýjar Vilhjálms, ástsælustu dægurlagasöngkonu Íslands. Ævisaga bróð- ur Ellýjar, Vilhjálms Vilhjálmssonar, eftir Jón Ólafsson kom út fyrir tveimur árum. „Þetta er okkar fremsta og dáðasta söng- kona og þetta er þvílíkt ævintýri að takast á við,“ segir Margrét í samtali við Fréttablað- ið. Hún bætir því við að þetta sé jafnframt vandasamt því Ellý hafi alla tíð verið ákaf- lega annt um sitt einkalíf og viljað halda því útaf fyrir sig. „Og maður stekkur ekkert af stað með fólk sem hélt lífi sínu algjörlega fyrir sig.“ Margrét hefur verið að viða að sér heimildum, hefur rætt við fólk sem vann með Ellý og fær jafnframt aðganga að kössum sem synir söngkonunn- ar, Nökkvi og Máni Svavarssynir, hafa passað. „Hvað kemur upp úr þeim kössum verður síðan bara að koma í ljós.“ Ellý átti ótrúlegan feril sem söngkona og Margrét segir að hún hafi heillað fólk upp úr skónum um leið og hún steig á svið. „Hún var óskaplega fal- leg, með þessa fallegu rödd og hún varð stjarna án þess að gera nokkuð í því.“ Margrét segir stefnt að því að bókin komi út í nóvember en það er útgáfufélagið Sena sem stendur að útgáfunni. - fgg Margrét skrifar ævisögu Ellýjar EINSTÖK SÖNGKONA Margrét Blöndal skrifar nú ævisögu Ellýjar Vilhjálms, ástsælustu dægurlagasöngkonu Íslands. Ellý er fyrir miðju ásamt þeim Ragnari Bjarnasyni og Þuríði Sigurðardóttur. „Ég er mjög hrifin af gamaldags breskum hefðarmyndum eins og Downton Abbey sem er á Rúv. Ég horfði líka á Lífverðina, þeir voru algjör snilld.“ Hera Björk Þórhallsdóttir, söngkona. TVEGGJA TÍMA HLÁTURSKAST... MEÐ HLÉI Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is „Mjög vel heppnaður farsi, hraður og ótrúlega fyndinn“ – IÞ, Mbl FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA SJÓNVARP Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.