Íslendingur - 28.08.1975, Blaðsíða 5
Gtgefandi: íslendingur hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún Stefánsdóttir.
Auglýsingastjóri: Valgerður Benediktsdóttir
Dreifingarstjóri: Drífa Gunnarsdóttir.
Ritstjórn og afgreiðsla: Kaupvangsstræti 4, sími 21500.
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Efnahagsmál
Enginn hugsandi inaður hefur gengið þess ódulinn, að íslenska
þjóðin hefur ált við mjög mikla efnahagserfiðleika að stríða á
undanförnum misscrum. Má segja að það hafi í sívaxandi rnæli
verið eitt hið erfiðasta verkefni stjórnvalda að fást við þessi
mál og vinna að úriausnum þeirra. Oft hefur orðið að grípa til
ráðstafana sem því miður hafa leyst aðsteðjandi vanda aðeins
til skamms tíma, og hefur þeim sem að slíkum ráðstöfunum
hafa staðið verið það alveg ljóst, að hér hefur verið aðeins um
bráðabirgðalausn að ræða. Hins vegar hafa aðstæður verið með
þeim hætti, að ekki hefur gefist nægilegt ráðrúm til þess að
taka málin til þeirrar meðferðar, að um varanlegar úrbætur
gæti verið að ræða. Staðreyndin er einnig sú, að til þess, að
hægt verði að leysa þessi mál á þann veg, að komi að fullu
gagni og um endanlega lækningu á vandanum verði að ræða,
þarf fyrir utan samstöðu hlutaðeigandi stjórnvalda, einnig að
vera fyrir hendi hjá þjóðinni skilningur á þeim erfiðleikum sem
við er að etja og að endanlegar úrlausnir náist ekki, nema að
nauðsynlegum ráðstöfunum þó erfiðar kunni að reynast al-
menningi í bili, njóti fyllsta stuðnings þjóðarinnar allrar.
Um þessar mundir mun vera unnið að fjárlagagerð fyrir næsta
ár, og er hér áreiðanlega um mikið og vandasamt verkefni að
ræða. Veruleg óvissa mun vera ríkjandi um afkomu ríkissjóðs á
yfirstandandi ári, en hinsvegar er það öllum ljóst, að frumskil-
yrði þess að bati náist í efnahagslífi þjóðarinnar er að ríkissjóður
sé ekki rekinn með halla. Ráöamönnum er hér mikrll vandi á
höndum, þarfirnar fyrir opinberar frainkvæmdir og kröfurnar á
hinn sameiginlega sjóð þjóðarinnar, ríkissjóð í því sambandi eru
vægast sagt ótæmandi. Hinsvegar mun það álit allra sem um
þessi mál fjalla af raunsæi og ábyrgðartilfinningu, að lengra
verði ekki gengið á braut aukinnar almennrar skatthcimtu en
orðið er. Það liggur því ljóst fyrir, að eins og nú er ástatt í
efnahagsmáium þjóðarinnar veröur að sporna við fæti. Og sú
eina leið sem er jákvæð í því sambandi er að minnka verulega
útgjöld hins opinbcra. í því sambandi tjáir ekki að vera með
hin minnstu tilfinningasemi í sambandi við að þessi eða hin
útgjöldin séu nauðsynleg sem þáttur í menningarlegum eða fé-
lagslegum háttum þjóðarinnar. Það eitt verður að ráða stefn-
unni, að eins og nú er komið málum hjá okkur á fjárhagslega
sviöinu þá höfum við hreint og beint ekki efni á því að veita
okkur ýmsa þá hluti sem við höfum leyft okkur áður. I þessu
sambandi má benda á, að áreiðanlega má spara hundruð milljóna
með því að fresta eða stöðva algerlega í bili ýmsar framkvæmdir
sem tengdar eru nýju grunnskólalögunum. Minnka verður veru-
lega útgjöldin í sambandi við framkvæmd Almannatrygginga,
þ. e. að þjóðfélagsborgararnir verða í ríkara mæli en hingað
til að greiða fyrir þá þjónustu sem þeim er veilt. Má í því sam-
bandi benda á, að dómi margra hinna hæfustu aðila sem hafa
aðstöðu til þess að leggja rétt mat á slíka hluti, þá er hin sí-
aukna þátttaka Almannatrygginga í t. d. í greiðslum fyrir meðöl
og læknaþjónustu, höfuðorsök fyrir því að meðalaát þjóðarinnar
í heild sé orðið svo fram úr hófi, að ekki nái nokkurri átt. Rök-
rétt ályktun af slíkum viðhorfum, er að stórminnka eða afnema
alveg þáttöku hin opinbera kerfis í slíkri óhófseyðsiu. Ennfrem-
ur er sjálfsagt að taka til endurskoðunar, að það er stór hópur
þjóðarinnar, sem er þess fullfær að bera sjálfur kostnað af
almennri lækna- og heilbrigðisþjónustu og því engin ástæða til
þess, að vera meö niðurgreiðslur af opinberu fé til slíkra aðila.
Þá er það hið sívaxandi opinbera stjórnkerfi með sínum mikla
aukna kostnaði. Á því sviði er áreiðanlega hægt að spara miklar
fjárhæðir.
Krafa almennings til þings og stjórnar hlýtur að vera sú, að nú
verði alvarlega tekið til við að komast fyrir meinið með því stór-
lega að minnka útgjöld hins opinbera. Viturlegar ráðstafanir í
því efni, munu áreiðanlega mæta skilningi þjóöarinnar allrar.
- J. G. S.
Fékk 99frönskubakteríuna66 í l\IA
— og afleiðingin varð magistertitill og franskur eiginmaður -
Færeyska bílferjan Smyrill kvaddi ísland í síðasta skipti á þessu sumri á laug
ardaginn var. — Meðal farþega um borð er ung íslensk kona, sem hefur ver-
ið búsett í Frakklandi frá því 1964. Þetta er Steinunn Filippusdóttir frá
Akureyri, en hún hefur dvalið hér í tvománuði í sumar ásamt manni sínum og
tveimur börnum. Fjölskyldan kom til landsins með fyrstu ferð Smyrils og var
mjög ánægð með þessa nýju leið, sem opnaðist með Smyrli til þess að komast
milli meginlands Evrópu og íslands, jafnvel þó að ferðalagið í heild fram og
til baka taki þau um 20 daga og kostnaður verði mikill.
Nokkrum dögum áður en
Steinunn og fjölskylda henn-
ar kvöddu Akureyri heimsótti
Islendingur þau þar sem þau
bjuggu heima hjá móður henn
ar Elínbjörgu Þorsteinsdótt-
ur. Það fyrsta sem blasti við
þegar komið var inn í íbúðina
var borð hulið skeljum sem
Jacques, maður Steinunnar
hafði safnað á Tjörnesi. Hann
er náttúrufræðikennari að að-
alstarfi og því er það ekki að
undra þó hin fornu skeljalög
á Tjörnesi vektu athygli hans.
Fékk „bakteríuna“ í MA
Steinunn lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Akureyri vorið 1963 en þá um
haustið byrjaði hún í frönsku
og þýsku við HÍ. Sjálf segist
hún hafa fengið frönskubakt-
eríuna strax í menntaskóla, en
þar hafði hún hinn snjalla
frönskumann Þórarinn Björns
son sem kennara. Eftir árs-
nám við HÍ ákvað hún að fara
til Frakklands til áframhald-
andi náms í frönsku og hafði
hún þá þýsku sem aukagrein.
Hún fékk skólavist í nýjum
háskóla í Caen í Normandi og
líkaði strax dvölin mjög vel.
Skólinn var í mótun þegar
Steinunn hóf nám þar og lenti
hún í því að þurfa að skipta
þrisvar sinnum um námskerfi
vegna lagabreytinga, en
þrátt fyrir óþægindin sem það
olli henni lauk hún magisters
prófi frá þessum sama skóla
árið 1971. Síðan hún lauk
prófi hefur mestur tími henn-
ar farið í að annast uppeldi
barnanna sem eru fimm ára
og tveggja ára. En nú er hún
að hugsa um frekara nám og
langar þá að snúa sér að nor-
rænu. Stefnir hún að því að
skrifa ritgerð um upphaf
sagnaskrifa á íslandi og taka
þar sérstaklega fyrir biskupa-
sögurnar og evrópsk áhrif sem
þar gætir. Jafnframt hefur
hún áhuga á því að fá sér
stöðu þar sem hún getur not-
að menntun sína.
Ríkisreknir smábarna-
skólar
Eins og áður segir þá er
maður Steinunnar náttúru-
fræðikennari við Háskólann í
Caen, en samhliða kennslunni
vinnur hann að tímafrekum
rannsóknum, sem krefjast
mikils tíma og gera vinnutíma
hans oft langan og óregluleg-
an. Steinunn er þeirrar skoð-
unar að allar ungar konur eigi
að hafa sömu möguleika á því
að fara í langskólanám eftir
stúdentspróf og fá að nota
starfskrafta sina á sama ald-
ursskeiði og karlmenn án þess
að fyrirgera réttinum til þess
að vera eiginkona og móðir.
Við inntum Steinunni eftir
því hvaða möguleika hjón í
Frakklandi hefðu til þess að
gera slíkt mögulegt, þ. e. að
bæði hjónin vinni utan heim-
ilis.
— Frakkar hafa nokkuð
annað fyrirkomulag á stofn-
unum fyrir börn en hér er,
sagði Steinunn. — Aðalmis-
munurinn er sá að þar eru
starfræktir á vegum ríkisins
smábarnaskólar fyrir börn á
aldrinum 2i^árs—6 ára og öll
börn eiga rétt á plássum í
þeim. Skólarnir eru starfrækt
ir frá kl. 8.30 að morgninum
til kl. 12.00 og síðan frá kl.
1.30 til kl. 4.30. Þeir sem þess
óska þurfa ekki að ná í börn-
in í hádeginu og fá þau þá
mat á staðnum. Sérmenntaðir
kennarar sjá um fræðsluna og
yfirleitt er fólk mjög ánægt
Stcinunn og maður liennar Jacqucs Lc Brcton og dóttirin Sól-
veig, sem er fimm ára.
með þessa skóla og börnin una
sér vel þar. — Aftur á móti
er verr búið að kornabörnum
og erfitt er að fá pláss fyrir
þau á vöggustofum. Útivinn-
andi fólk með smábörn hefur
því oft gripið til þess ráðs að
fá gæslu fyrir þau á einka-
heimilum og það er ekki nein
um vandkvæðum bundið að
komast í þannig sambönd.
Þegar við spurðum Stein-
unni hvort það væri algengt í
Frakklandi að báðir foreldrar
ynnu utan heimilis, sagði hún,
að það færi mjög í vöxt.
— Þetta fer annars nokkuð
eftir' stéttum. Það er algeng-
ara meðal kvenna með góða
menntun að þær vinni úti, en
hins vegar vill það allt of oft
gerast að konurnar fá stöður
sem ekki geta flokkast undir
ábyrgðarstöður og karlmenn
eru síðan settir yfir þær. Kon
an í Frakklandi á enn langt í
land með að ná jafnrétti á
þessu sviði, en þar eins og
annars staðar í Evrópu er
mikil hreyfing á þessu máli
nú og stöðugt verið að hvetja
franskar konur til þess að
verða virkari í þjóðfélaginu,
m. a. með því áð taka meiri
þátt í stjórnmálastarfseminni,
sagði Steinunn.
Sömu umræðuefnin
Síðan vék Steinunn að því
að jafnréttismál væru ofar-
lega á baugi í Frakklandi og
sömu atriði til umræðu þar
eins og hér, svo sem fóstur-
eyðingar, sjálfsákvörðunar-
réttur kvenna og fl.
— Mér finnst það áberandi
hversu lítil Evrópa er orðin í
þeim skilningi, að sömu mál-
in virðast vera efst á baugi í
löndunum á sama tíma og þró
un þjóðfélagsmála svipuð. Þeg
ar ég fór út árið 1964 var
miklu meiri mismunur á þjóð
unum hvað þetta snertir en
nú er, sagði Steinunn.
Eins og áður hefur komið
fram var Steinunn allan náms
feril sinn í háskóanum í Caen
og nú er hún búsett þar ásamt
fjölskyldu sinni. Við spurðum
hana hvernig það væri fyrir
íslending að búa 1 franskri
borg, þar sem fáir' eða engir
íslendingar eru og ferðir heim
svo dýrar að þær verða lúxus
sem aðeins er hægt að leyfa
sér með margra ára fresti.
Gott að búa í Frakk-
landi
— Mér persónulega þykir
mjög gott að búa í Frakklandi.
Ég hef tekið mikilli tryggð við
Caen í Normandi. Staðurinn
er fallegur, veðurfar er gott
og landsvæðið er sögulega
tengt okkur íslendingum. Ég
held að það yrði erfitt fyrir
mig að flytja þaðan og setjast
að hér heima eftir öll þessi ár.
En því er hins vegar ekki
hægt að neita að það er alltaf
margs að sakna héðan, sér-
staklega sakna ég fjölskyldu
minnar, vina og fjallanna.
— En hvernig er afkoma
meðalfjölskyldu í Frakklandi
borið saman við það sem hér
gerist?
— Fljótt á litið held ég að
afkoma fólks sé svipuð hér og
í Frakklandi. Hér býr almenn
ingur að vísu í íburðarmeiri
húsum og hér leggur fólk líka
harðar að sér við vinnu og er
jafnvel í tvöfaldri vinnu til
þess að verða sér úti um hús-
in.
Eftir því sem ég kemst næst
þá eru beinir skattar hér mun
hærri en gerist í Frakklandi,
þar sem ríkið hefur farið
meira inn á þá braut að fá
inn fé með óbeinum sköttum.
Að mínum dómi er sú leið að
mörgu leyti farsælli en sú sem
hér er farin, sagði Steinunn.
íslenskt skip
Þegar íslendingur heimsótti
Steinunni var mjög farið að
styttast í brottförina og því
spurðum við hana hvernig það
væri að kveðja þegar hún
vissi að langt yrði þar til næst
gæti orðið af heimsókn til ís-
lands.
— Ég hlakka til að koma
heim til mín á vissan hátt en
vissulega væri léttara að
kveðja ef ég vissi að stutt
yrði í næstu heimsókn. Smyr-
ill hefur gert samgöngur milli
Evrópu og íslands auðveldari
en áður, en fyrir okkur sem
þurfum að aka tæpa 3000 km
til þess að ná að ferjustað og
heim aftur verður þetta mik-
ið fyrirtæki. Það fer langur
tími í aksturinn og þó hann sé
á vissan hátt skemmtilegur
þá er hann einnig erfiður og
ekki freistandi að endurtaka
hann. Við vonum því að þess
verði ekki langt að bíða að ís-
lenskt fyrirtæki leggi í að
gera út skip sem kæmi til
hafnar sunnar í Evrópu en
Smyrill gerir. Það myndi gera
mörgum Islandsþyrstum ferða
löngum málið einfaldara.
Að kaupa ekki „kött
inn í sekknum"
í 34. tölubl. Dags á Akureyri
kveður sér hljóðs „Sunnlend-
ingur“ á Raufarhöfn. Hann
hafði ætlað að skemmta sér
hér í hinum „landsfræga og
vinsæla ,Sjalla‘,“ en varð lít-
ið úr. Hann segir, orðrétt: „Á
föstud.kvöldið var þar hljóm-
sveit að sunnan, ásamt sunn-
lenzkum skemmtikröftum, og
aðgangseyririnn var AÐEINS
1.600 kr., en þar sem ég þyk-
ist vera svona hér um bil með
fullu viti, sneri ég frá.“ En
þeir urðu víst samt nógu marg
ir, sem inn komust, líklega
annað hvort með veilu í vit-
kvótanum eða annað mat á
aurunum og skemmtun þeirri,
sem boðið var upp á.
En það voru víst félagar
„Sunnlendings11, „skemmti-
kraftar að sunnan“, sem réðu
inngangseyri, þ. e. úr sama
landshluta.
Já, 16 hundruð krónur,
sannarlega var það meira en
nóg. En það var víst sami hóp
ur, sem næsta sunnud.kvöld
„sá fyrir fjörinu“ í Skjól-
brekku í Mývatnssveit og
voru þar líklega ennþá
skemmtilegri eða hávaða-
meiri, því að þar urðu menn
að greiða kr. 18 hundruð við
innganginn, auk þess, sem
inni var m. a. boðið upp á
„bingó“, og skyldi þar borga
kr. 300 fyrir hvert spjald!
Með smá hressingu hafa því
margir gestanna eytt nokkuð
á 3. þúsundið þarna, en
„skemmtikraftarnir að sunn-
an“ sennilega halað inn nokk-
uð á 2. milljónina það kvöld-
ið! Þeir eru víst ekki háðir
neinu verðlagseftirliti, en er
þetta ekki nokkuð langt geng-
ið? Aðgangseyrir er víst ekki
auglýstur fyrirfram, og fólk,
sem oft er langt að komið, get
ur illa snúið frá við dyrnar
(þótt með fullu viti sé), vill
heldur snúa við vösunum og
láta sinn síðasta pening, en
Framhald á bls. 2.
%
X
ý
5
x
i
i
!
!
¥
x
x
A
i
i
i
t
y
?
¥
I
¥
¥
I
¥
l
|
?
I
i
*
?
%
X
Gott í
hvers-
dagsleik-
Að áskorun Höllu Guðmunds-
dóttur og Óla Þ. Bcnedikts-
sonar koma lijónin Unnur
Björnsdóttir og Rögnvaldur
Þórliallsson hér mcð uppskrift
vikunnar.
Fiskflök með lauk og
tómötum:
V2 kg- ýsu- eða þorskflök
salt
2 stórir tómatar
1/2 dl. tómatkraftur
1—2 dl. rjómabland
smjörlíki
brauðmylsna
rifinn ostur
Skerið laukinn í sneiðar og
brúnið í smjörlíki. Látið flök-
in í smurt eldfast mót, stráið
salti yfir og látið laukinn
ofan á. Hellið rjómablandinu
og tómatkraftinum yfir og
stráið brauðmylsnunni og
rifna ostinum yfir. Bakið í
225 gráðu heitum ofni í 20—
30 mín. Þegar nýir tómatar
eru fáanlegir er gott að láta
2 niðurskorna tómata í mótið
en sleppa þá tómatkraftinum.
Gott er að bera með þessu hrá
salat og hér á eftir fylgir upp-
skrift af einu slíku:
Vetrarsalat (fyrir 4)
1/2 hvítkálshöfuð rifið
3 gulrætur
1 súrt epli
safi úr y2 sítrónu.
Rífið hvítkálið eða skerið
það smátt. Rífið gulræturnar.
Skerið eplið í bita. Blandið
öllu saman og liellið sítrónu-
safanum yfir.
Eftirréttur
Súrmjólkurbúðingur
(6—8 pers.)
5 dl. súrmjólk
6 msk. sykur
5 blöð matarlím
% dl. appelsínusafi
2 dl. rjómi
1—2 dl. rjómi til skreytingar
Blandið saman súrmjólk,
sykri og rifnu appelsínuhýði.
Leggið matarlímið í bleyti í
5 mín, Hellið vatninu af, bræð
ið ásamt appelsínusafanum í
vatnsbaði og blandið í súr-
mjólkina. Þeytið rjómann og
blandið honum í þegar búð-
ingurinn byrjar að stífna.
Hellið í skál og geymið í kæli
þar til hann er borinn fram.
Að lokum skora hjónin
Guðrúnu Kristjánsdóttur
Sigmund Magnússon að koma
með næstu uppskrift.
T
t
i
i
í
V
I:
I
x
••••:*•:•*:••:♦♦:••:•♦:*•:•
a
og
Hressingarhæli er fljótt að skila arði
Norðlendingar nær og fjær.
Eins og kunnugt er hefur Nátt
úrulækningafélag Akureyrar
nokkur undanfarin ár safnað
fé til byggingar hressingar-
hælis í landi Skjaldarvíkur
við Eyjafjörð. Öllum má ljóst
vera að slíku Grettistaki er
ekki lyft af litlum efnum og
þó að almenningur hafi reynst
félaginu vel með ýmiskonar
framlögum, er það eins og
dropi í hafið varðandi bygg-
ingarkostnað.
Jón Geir Ágústsson bygg-
ingarfulltrúi fór í vor á veg-
um Sjálfsbjargar til Noregs og
Finnlands, til að kynna sér
uppbyggingu og starfrækslu
rannsóknar- og endurhæfing-
arstöðva, því í ráði er að
byggja slíka stöð hér á vegum
þess félags á næstu árum. Jón
hóf athuganir sínar í Noregi
en hélt síðan til Finnlands því
þar mun vera starfrækt ein
fullkomnasta endurhæfingar-
stöð í Evrópu. Er þar lögð sér
stök áhersla á fyrirbyggjandi
aðgerðir, auk endurþjálfunar
til starfa. Slagorð finna í sam
bandi við stöð þessa er:
„Hjúkrun sjúkra breytt í
heilsurækt — byrjið nógu
snemma að vinna að því.“
Með hliðsjón af athugunum
Jóns Ágústssonar, má ljóst
vera, að margt er hægt að
læra af finnum í þessum efn-
um t. d. þar sem rætt er um
fyrirbyggjandi aðgerðir, sem
sagt, koma í veg fyrir að fólk
fái t. d. atvinnusjúkdóma.
Virðist mjög skynsamlegt að
sem flest félög gerðu sameig-
inlegt átak með byggingu
slíkrar stöðvar. Má þar fyrst
nefna Sjálfsbjörg, sem hefur
hug á að byggja í svipuðum
stíl og N.L.F.A. og mörg fleiri
félög mætti tilgreina, sem
þyrftu á slíkri aðstöðu að
halda.
Vegna fjárhagserfiðleika
þjóðarbúsins, virðist sjálfsagð
ur hlutur að fleiri aðilar sam
einuðust um eitt byggingar-
átak til að nýta sem best öll
tæki og læknaþjónustu. Má
einnig nefna að framlag opin-
berra aðila til slíkrar stofn-
unar nýttust betur í einu lagi,
heldur en ef skipta þyrfti í
marga staði.
Um þörf fyrir slíka stofnun
sem þessa þarf ekki að fjöl-
yrða, slíkt liggur í augum
uppi. T. d. má þó benda á
þann langa biðlista sem alltaf
er að heilsuhælinu í Hvera-
gerði.
Veigamikill þáttur málsins
er líka sá, hve fækka mætti
legudögum sjúklinga á sjúkra
húsum með því að hafa svona
hæli til að taka við sjúkling-
um þaðan og oft á tíðum með
fyrirbyggjandi aðgerðum,
koma í veg fyrir þörf á sjúkra
húsvist, en daggjald sjúkra-
húsa er margfalt hærra en á
svona heilsuhæli.
Frá þjóðhagslegu sjónar-
miði mun því stöð þessi fljótt
skila arði, þegar hún er tekin
til starfa.
Allt sem stuðlar að mann-
rækt, hvort sem er til líkama
eða sálar, er uppbygging og í
þeim anda vinnur N.L.F.A.
Við hvetjum þá sem eru sama
sinnis að koma til samstarfs.
Akureyri 19. 8. 1975.
Svanhildur Þorsteinsdóttir.
4 - ÍSLENDINGUR
ÍSLENDINGUR - 3