Íslendingur - 06.02.1980, Side 7
• Messur
Akureyrarkirkja:
Messaö sunnudaginn 10.
febrúar kl. 14.00. - P.S.
Lögmannshlíöarkirkja.
Messað veröur nk. sunnudag
kl. 2 e.h. - Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. 1.30. - B.S.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður nk. sunnudag kl.
11 f.h. - öll börn velkomin. -
Sóknarprestar.
• Samkomur
Hjálpræðisherinn.
Sunnudaginn 10. febrúar kl.
13.30 sunnudagaskóli, kl. 17
samkoma. - Mánudaginn 11.
febrúar kl. 16 heimilissam-
band. Þriðjudaginn 12. febrúar
kl. 20.30 hjálparflokkur. Ath.
10.-18. febrúar BARNAVIKAN.
Barnasamkomur hvern dag kl.
17.30. Fjölbreytt dagskrá. Allir
velkomnir.
Kristniboöshúsið Zíon:
Sunnudaginn 10. febr. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. öll börn vel-
komin. Fundur í Kristniboðs-
félagi kvenna kl. 4. Allar konur
velkomnar. Samkoma kl. 20.30
Ræðumaður Reynir Hörgdal.
Allir velkomnir.
• Félagslíf
I.O.O.F. - II - 1612881/2
□ RÚN 5980267 - 1
Lionsklúbburinn Hængur.
Fundur fimmtudaginn 7. febr.
kl. 19.15 í H-100.
Lionsklúbburinn Huginn.
Fundur á Hótel KEA fimmtu-
daginn 7. febrúar kl. 12.15.
Aðalfundur N.L.F.A.
verður haldinn laugardaginn
9. febr. kl. 2 sd. í kaffistofu
Amaro. Mætið vel og takið með
ykkur nýja félaga. - Stjórnin.
Leiöbeiningarþjónusta
SAA
er í Geislagötu 5 (Búnaðar-
bankahúsinu) 3. hæð mánu-
daga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 16-18.
Síminn er 25880.
r
sma
auglýsinga
markaður
Til sölu:
Moskvits, árgerð 1972,
ekinn 25 þús. km.
Bíll í góðu lagi.
Uppl. í síma 25956.
Til sölu:
Toyota Corolla, árg. '77.
Ekinn 36 þús. km.
Upplýsingar í síma 25824
eftir kl. 7.00.
Til sölu:
Ford Bronco, árg. 1974,
6 cyl., ekinn 35.700 km.
BÍLASALAN HF.
Sími 21666.
Gætíð barnanna
Framhald af opnu.
• Margt af þessu
á ekki við í bœ
sem Akureyri
Hér að framan hef ég ýmist
komið með eigin vangaveltur
eða vitnað í sænskar rannsókn-
ir á umferð. Mér er ljóst, að
margt af þessu á ekki við í bæ á
stærð við Akureyri. Tilgangur
minn er ekki að koma með full-
unnar hugmyndir, heldur vildi
ég einungis vekja athygli á atrið-
um, sem ef til vill er vert að
ræða.
Rétt er að geta þess, að nokk-
uð virðist það mismunandi
hvernig menn vilja auka um-
ferðaröryggi. í Danmörku virð-
ist t.d. sú skoðun vera ríkjandi
nú, að þar sem aðgreining bíla
og gangandi fólks næst ekki sé
rétt að „mýkja“ umferðina.
Með þessu er átt við t.d. að
minnka umferðarhraða í íbúða-
hverfum og sjá til þess með alls
kyns hindrunum að það takist.
Hugmyndin er sú, að bíllinn fari
um á skilmálum hinna fótgang-
andi en ekki öfugt. Ef hugsað er
um hinn gífurlega þyngdar- og
hraðamun, þ.e. t.d. 20 kíló-
gramma barn á móti tveggja
tonna málmflykki, þá finnst
manni ekki ósanngjarnt, að
Davíð setji Golíat leikreglur.
Síðastliðið sumar þinguðu
norrænir umbættislæknar í
Kristiansand í Noregi. Þar var
rætt um samband umhverfis og
heilsu og bar umferðarmál
ósjálfrátt á góma þá. Borgar-
læknirinn sýndi þingheimi borg
ina. Þar hefur t.d. hámarks-
hraði verið lækkaður niður í 30
km/klst í íbúðahverfum. Til
þess að minna ökumenn á er
auk umferðarmerkja sett
„þvottabretti“ í malbikið þegar
ekið er inn í hverfin. Við þetta
fer bíllinn að titra og ökumað-
urinn hægir ósjálfrátt á sér. Auk
þessa eru settar hvilftir eða
hæðir í malbikið á hættustöð-
um eða þar sem akbrautir geta
freistað ökufanta.
Sem dæmi um, hve óttinn við
bílinn getur lagst þungt á barns-
sálina, má nefna að samkvæmt
nýlegri rannsókn, sem gerð var
á nokkur þúsund skólabörnum
í Noregi, kom í ljós að um helm-
ingur 7 ára barna er á degi
hverjum haldinn ótta við að
deyja í umferðarslysi. Þetta
kemur ekki á óvart, þegar haft
er í huga, að börnin frétta af
slysum á jafnöldrum sínum og
flest verða slysin innan við 100
metra frá heimilinu.
• „í guðanna bœn-
um gœttu þín á
bílunum“
Síðustu orð foreldra áður en
börn fara í skólann eru gjarnan:
„í guðanna bænum gættu þín á
bílunum“. Það gerði ef til vill
meira gagn, ef ökumaður fengi
eftirfarandi áminningu í hvert
skipti, sem hann sest undir stýri:
„Fyrir alla muni, vertu varkár
og gættu þín á börnunum.“
Góðir bæjarbúar. Við skul-
um leggja megináherslu á það,
að bifreiðin er dauður hlutur,
sem maðurinn á að hafa algjör-
lega á valdi sínu. Við þurfum að
útrýma þeim hugsunarhætti,
sem því miður er raunhæfur í
dag, að bílarnir séu eitthvað,
sem við þurfum sí og æ að
óttast. Við eigum ekki að þurfa
að vera með lamandi hjartslátt
eins og bráð, sem flýr undan
villidýri í frumskógi. Umferðar-
menning, þar sem farartækin
líða hægt og jafnt áfram án
ógnunar, er draumur, sem auð-
velt ætti að vera að gera að
raunveruleika hér á Akureyri.
2. febrúar 1980.
Ólafur Hergill Oddsson,
héraðslæknir.
Gott úrval af fallegum
gólfteppum
Einnig
stök teppi
baðmottusett
Það borgar sig að líta inn í
Vöruhús KEA - Teppadeild
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI
Hverja
vantar
vinnu? ■
Kerfisfræðingur
Viðskiptafræðingur
Iðnaðardeild Sambandsins Akureyri óskar eftir
að ráða sem fyrst kerfisfræðing, viðskiptafræðing
eða mann með hliðstæða menntun og.starfs-
reynslu í meðferð tölva.
Starfið er að hluta í tölvudeild, en jafnframt unnið
að ýmsum sjálfstæðum verkefnum. ,
Upplýsingargéfurstarfsmannastjóri í síma 21900.
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Iðnaðardeild - Akureyri
Starfskraftur í mötuneyti
Vegagerð ríkisins óskar eftir að ráða verkstjóra í
mötuneytið að Miðhúsavegi 1.
Umsóknum skal skila til Vegagerðar ríkisins, Mið-
húsavegi 1, Akureyri, fyrir 20. febrúar.
Upplýsingar í síma 21700.
Hittið vini og kunningja
í vistlegu umhverfi!
Fjölbreyttur
kvöldverður
ávaUt til reiðu
eftir yðar hentugleikum!
Frábœr
hljómsveit
og
þjóruista!
SJALFSTÆÐISHUSIÐ
ÍSLENDINGUR - 7