Morgunn - 01.12.1989, Page 57
MORGUNN
LEIÐTOGAR BANDAMANNA
anum í nóv. 1945 til Maurice Barbanell stofnanda blaðsins. 1
bréfinu skrifar hann. „Ég sé aldrei nægilega eftir því að hafa
misst af tækifærinu og ánægjunni af að hitta þig í nýlegri heim-
sókn minni til London.
Mackenzie King lést árið 1950. Hann sneri aftur á óundir-
búnum fundi á heimili Helen Duncan í Glasgow. Maurice
Barbanell og Hannen Swaffer, blaðamaður voru viðstödd.
Leiðbeinandi Helen minntist á að Hr. King væri viðstaddur og
þá lét forsætisráðherrann fyrrverandi ánægju sína í ljós yfir því
að vera fær um að tala.
Hann hafði fundið heiminn fyrir handan og tilvera hans var
honum sönnuð, stórfenglegri en hann hafði gert sér grein fyrir.
Hann hafði einnig hitt þá sem hann unni.
Árið 1951 heyrðist rödd herra Kings af hundruðum áheyr-
enda. Rödd hans kom í gegn um séra James J. Laughton, radd-
miðil í Champ, Chesterfield, Indíana.
„Það er kominn tími til að þið gerið ykkur grein fyrir að
landinu er ógnað af kommúnisma,“ sagði hann við áheyrend-
ur.
Herra King spjallaði einnig við vin sinn sem var meðal
áheyrenda. Hann hafði haldið fundi fyrir King á meðan hann
var á lífi.
Á raddmiðilsfundi tveimur árum seinna talaði Hr. King við
Ermest Mann, starfsmann í kandadíska spíritistasambandinu.
Röddin að handan sem var tekin upp á segulband, svaraði
einnig spurningum.
Jósep Stalín stjórnaði þjóðinni í næstum 30 ár. Ásamt Win-
ston Churchill og Franklín D. Roosevelt var hann einn af
„Þrenningunni miklu”, leiðtogum bandamanna í heimsstyrj-
öldinni síðari.
Stalín fæddist 1879 og var fimm árum yngri en Winston
Churcill.Það var ekki fyrr en eftir dauða hans 1953 sem heim-
urinn vissi hvernig hann hélt þjóð sinni í heljargreipum
Eftir dauða Leníns, höfundar rússnesku byltingarinnar varð
Stalín leiðtogi landsins. Hann kom á herstjórn gegn innrás
Þýskalands um mitt ár 1941.
55