Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 42
42 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 á haustið! Erikurnar eru komnar í BYKO! Vnr. 55092220 Eríkur Eríkur 3 stk. fæst í BYKO Breidd, Kauptúni, Granda og Selfossi. 1.190 3 stk. í pakka Lífgaðu upp ÞEGAR hug- myndin að stofnun Klúbbsins Geysis var að þróast á árunum um og eftir 1996 voru úrræði til endurhæf- ingar geðsjúkra eftir veikindi og dvöl á geðdeildum mjög fá- breytt. Flest umræða fór fram fyrir luktum dyrum fordóma og ótta, hvort heldur var hjá fag- aðilum, sjúklingunum sem þeir áttu að annast eða aðstandendum. Þannig endurspeglaði samfélagið veruleika sem erfitt gat reynst að brjóta upp. Hin síðari ár hefur þó orðið mikil breyting til batnaðar og öll umræða orðin opnari og réttindi þeirra sem stríða við geðræn veik- indi metin til jafns við þá sem lík- amleg veikindi hrjá. Þar vegur kannski þyngst réttur hvers og eins til að taka ábyrgð á eigin lífi. Að frjálsborinn einstaklingur hafi rödd og að á hann sé hlustað á hans eigin forsendum; að geðræn veikindi séu ekki lokað hólf, heldur tækifæri sem hægt er að nýta til annarra og stærri sigra úti í sam- félaginu. Fjölmargir einstaklingar og hagsmunasamtök hafa unnið hér þarft og mikilvægt verk. Ég held þó að á engan sé hallað að nefna frumkvöðla- og hugsjónastarf Önnu S. Valdemarsdóttur iðjuþjálfa við að bæta endurhæfingarmöguleika geðsjúkra, kynna og efla hug- myndafræði Fountain House á Ís- landi og stofnun Klúbbsins Geysis árið 1997. Fljótlega myndaðist sterkur hópur félaga, hags- munaaðila og aðstandenda sem vildu taka þátt í stefnumótun, svo að draumurinn gæti orðið að veru- leika. Í framhaldi af því tók klúbb- urinn til starfa af fullum krafti árið 1999 og afmæli Geysis því miðað við það ár. Sá er hér skrifar hóf störf í Geysi haustið 2002. Þá voru mikil tímamót hjá klúbbn- um, þegar hann flutti í varanlegt húsnæði í Skipholti 29, en frá 1997 hafði hann verið í ótryggu húsnæði og flutt að minnsta kosti fjórum sinnum. Það var fyrir atorku Kiw- anishreyfingarinnar á Íslandi að landsöfnun hreyfingarinnar árið 2001 undir kjörorðinu – Gleymum ekki geð- sjúkum – skyldi meðal annars helguð framtíðarlausn á húsnæðis- málum Geysis. Það er margs að minnast frá þessum tíma, en það sem hæst ber í mínum huga eru þeir frábæru fé- lagar sem hafa sótt klúbbinn með það markmið að ná betri tökum á lífi sínu og sjúkdómum. Þeir hafa unni mikið þrekvirki og óeig- ingjarnt starf og gert Geysi að því mikilvæga endurhæfingarúrræði sem hann er geðsjúkum í dag. Fé- lagar Geysis eru og eiga að vera það afl sem mótar og heldur utan um starfið. Þar liggja ræturnar sem munu leiða Klúbbinn Geysi inn í farsæla framtíð. Í dag, 6. september, eru 10 ár síðan Klúbb- urinn Geysir var stofnaður. Til hamingju með daginn Geysisfélag- ar. Sjá nánar: kgeysir.is og icc- d.org Eftir Benedikt Gestsson Benedikt Gestsson » Félagar Geysis eru og eiga að vera það afl sem mótar og heldur utan um starfið. Þar liggja ræturnar sem munu leiða Geysi inn í farsæla framtíð Höfundur er verkefnastjóri í skrifstofudeild Klúbbsins Geysis Félagar Klúbbsins Geysis eru drifkrafturinn SÁRSAUKINN er ávallt besti kenn- arinn, en hann getur líka verið banvænn. Ég hef tekið mér nokkra daga og hug- leitt það hvaða lær- dóm við Íslendingar höfum öðlast af sárs- auka undanfarinna mánaða. Mánaða óvissu, kvíða, upp- gjafar, gjaldþrota, sjálfsmorða, fátæktar, hungurs, ráðaleysis, skilningsleysi, fólks- flutninga og ekki síst reiði. Ekki vegna þess að mig langi að dvelja í fortíðinni, það er ekki minn stíll, heldur hitt hvað verður til þess að menn eins og ritstjóri Morg- unblaðsins Ólafur Stephensen, háttvirtur fyrrverandi dóms- málaráðherra Björn Bjarnason og jafnvel frelsishetja Íslendinga Egill Helgason sjónvarpsmaður mæla með því að einkavæða örfá- ar eigur almennings á þann hátt sem OR og Magma hafa gert vegna skipunar frá AGS. Morgunblaðið lyftir Magma til hæstu hæða í skrifum sínum. Koma innherjaupplýsingar frá Glitni inn á borð ritstjórnarinnar? Hvar liggja hagsmunirnir núna og hverra eru þeir? Skrif þessara manna um inn- komu Magma að orkugeiranum hafa gert það að verkum að sárs- aukinn, frá því að Ísland hrundi, verður óbærilegur fyrir marga og framtíðin sýnist án lausna. Það breytist ekkert! Mig langar að flytja, líkt og marga aðra, með alla mína fjöl- skyldu. Burt frá siðleysinu, áróðr- inum, klíkuganginum, frjáls- hyggjugeggjuninni og pólitíkinni sem nær botninum enn eina ferð- ina. Óbærilegur málflutningur þess- ara talsmanna um mikilvægi einkavæðingar, enn eina ferðina í skjóli nætur, gegn hagsmunum komandi kynslóða er sárari en tárum tekur því ég og fleiri höfum virt þá alla sem talsmenn réttlætis. Verður það svo að í þeim sársauka sem allt tilfinningatengt fólk hefur þurft að líða sé engan lærdóm að finna? Er það svo að sér- hagsmunir fárra, eins og ritstjóra Morg- unblaðsins og fjöl- skyldu hans, verða enn eina ferðina til þess að Ísland hverfur inn í bandalag við gráðugar klíkur manna, og nú kvenna líka, með áróðri um mikilvægi þess að selja eigur þjóðar sinnar? Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna gerir þjóðarbrotum heimilt að nýta auðlindir sínar sjálfar. Burt með ykkur gráðugu karlar og kerlingar. Við eigum auðlindirnar sjálf! Er einkavæðingar- og pen- ingavændið að taka á sig nýja mynd, með nýjum áróðursmeist- urum? Misstu þeir ef til vill eng- an svefn í hruninu vegna græðgi fárra í eigur almennings, Ólafur, Björn og Egill? Kunna þeir ekki að óttast fyrir hönd annarra en sinna eigin? Ég taldi mig hafa lært það af hruninu að ég hefði átt að gala hærra, hrópa oftar og standa á torgum með minn áróður. Ég ótt- ast hinsvegar núna að sársaukinn sé banvænn og að enginn nenni að hrópa eða láta í sér heyra og til sín taka. Fólk þreytist. Fjölmiðlamenn, í skömm sinni, segja um okkur sem vöruðum við græðginni að við séum bara dómsdagsboðberar (Bogi Ágústs- son á Bylgjunni ) en eigum við þá að þegja þunnu hljóði núna? Við sem sjáum að í huga forstjóra Magma er engan Mandela að finna. Jón Sigurðsson er látinn! Ekkert heyrist í Framsókn, flokknum sem ég treysti að hefði endurnýjast úr spilltri klíku OR, REI, Kaupþingsmanna, Glitn- ismanna, Landsbankamanna og CO. Afla sem léku sér sem einn maður væri að því að flengja þjóðina í nafni lyginnar, það er stjórnmálamanna og útrásar, for- setans og fjölmiðla. Sigmundur Davíð, hverra er- inda „þegir“ þú núna? Ég get ekki galað lengur. Aths. ritstj. Vegna þeirra dylgna, sem Jón- ína Benediktsdóttir setur fram í grein sinni um ritstjóra Morg- unblaðsins og fjölskyldu hans, er rétt að taka eftirfarandi fram. Eiginkona ritstjóra Morgunblaðs- ins starfar á útibúasviði Íslands- banka. Hún býr ekki yfir neinum innherjaupplýsingum um Magma Energy eða annað það, sem greinarhöfundur gerir að umfjöll- unarefni. Ritstjórinn og fjölskylda hans eiga engra hagsmuna að gæta. Vangaveltur Jónínu um slíkt eiga sér enga stoð í veru- leikanum. Sigmundur Davíð! Hverra erinda „þegir“ þú? Eftir Jónínu Bene- diktsdóttur » Skrif þessara manna um innkomu Magma að orkugeiranum hafa gert það að verkum að sársaukinn, frá því að Ísland hrundi, verður óbærilegur... Jónína Benediktsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri detox.is. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyr- irtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Form- ið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá not- andasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gef- in er upp fyrir hvern efn- isþátt en boðið er upp á birt- ingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.