Morgunblaðið - 02.10.2009, Síða 23
Ávextir eru ekki aðeins hollir og góðir á bragðið heldur
má einnig nýta þá útvortis. Eins og sagt var frá í síðustu
viku er hægt að búa til maska úr bláberjum til að við-
halda réttu rakastigi í húðinni og setja tómatsneiðar á
andlitið til að draga úr bólum. Þar með var ekki öll sagan
sögð því jarðarber, ferskjur og avókadó koma líka að góð-
um notum, hvort heldur er í andlitið, á allan líkamann eða
í hárið og á neglurnar.
Stinnari húð
Maðurinn er ein fárra dýrategunda sem eru ekki færar um að framleiða
sjálfar c-vítamín (askorbínsýru) svo við verðum að fá það úr fæðu, t.d. kart-
öflum, sítrusávöxtum og berjum. Jarðarber eru full af c-vítamíni og er
hægt að nota þau til að búa til andlitsmaska sem minnkar svitaholurnar.
Maukið handfylli af jarðarberjum og bætið við safa úr einni sítrónu og hálf-
um bolla af sojajógurt. Geymið í ísskáp í hálftíma og berið svo á andlit.
Skolið af hálftíma síðar. Notist á nokkurra vikna fresti.
Mýkri kroppur
A-vítamín fæst t.a.m. úr ávöxtum og grænmeti og er virkt á mjög
mörgum sviðum, er t.d. mikilvægt fyrir nætursjónina og bragðskyn,
auk þess að hamla vexti óæskilegra baktería og vinna á móti húð-
þurrki. Hægt er að búa til gott skrúbb til að bera á líkamann úr
ferskjum. Maukið tvær ferskjur sem búið er að taka kjarnann úr.
Bætið við maukið einni matskeið af ólífuolíu og nægum púðursykri
til að blandan verði þykk. Nuddið blöndunni létt yfir líkamann og
látið standa í nokkrar mínútur áður en þið skolið hana burt með
volgu vatni.
Betra hár og neglur
Ómega-fitusýrur eru taldar lífsnauðsylegar heilsu fólks til að
viðhalda heilbrigðri líkams-
starfsemi og að auki
styrkja þær neglur
og hár og viðhalda réttu raka- og olíujafnvægi í húðinni.
Hægt er að búa til maska fyrir hár og neglur úr avó-
kadó sem er ríkt af fitusýrunum. Maukið einn avó-
kadó og blandið saman við hann einni eggjarauðu og
hálfri teskeið af ólífuolíu. Berið í rakt hár og skiljið
eftir í hálftíma. Þvoið svo hárið með sjampói. Einnig
er hægt að búa til blöndu til að setja á neglur og
naglabönd. Blandið saman einum fjórða úr avókadó,
einni eggjahvítu, tveimur matskeiðum af haframjöli
og einni teskeið af ferskum sítrónusafa. Skiljið eftir
á nöglunum og naglaböndunum í 20 mínútur og
skolið því næst af.
Ávaxtamaskar og -skrúbb
Daglegt líf 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
Það hafa flestir einhvern tímann
smakkað, eða a.m.k. séð í tímaritum
eða sjónvarpinu, litlar súkkulaði-
kökur sem eru þéttar að utan en svo
blautar að innan að þegar skorið er í
þær lekur heitt og ljúffengt súkku-
laðideig úr þeim. Það er ekki flókið
að búa til slíkar kökur, eina sem þarf
(fyrir utan hráefnið) eru formin.
Sums staðar er hægt að kaupa muff-
ins-form í stærri kantinum úr áli en
einnig fást í flestum búsáhaldaversl-
unum bakkar sérsniðnir fyrir þessar
kökur.
160 g af 70% súkkulaði
165 g af smjöri
3 egg
3 eggjarauður
85 g af sykri
75 g af hveiti
Forhitaðu ofninn í 180°C (blást-
ur). Smyrðu formin með smjöri og
stráðu smá hveiti yfir.
Bræddu súkkulaði og smjör sam-
an yfir vatnsbaði, láttu blönduna
kólna aðeins. Blandaðu saman í
hrærivél eggjum, eggjarauðum og
sykri í um 10 mín. Smám saman á að
minnka hraðann á vélinni og bæta
við hveiti og loks súkkulaðismjör-
blöndunni og hræra saman í um 5
mínútur.
Að því loknu á að hella blöndunni í
formin (nánast fylla þau) og baka í
12-14 mínútur eða þangað til yfir-
borðið er orðið frekar stökkt en
miðjan enn blaut (kakan hristist að-
eins þegar ýtt er í formið).
Það er sniðugt að stinga pinna inn
í kökuna til að athuga með miðjuna.
Farið svo varlega þegar þið fjar-
lægið kökurnar úr formunum.
Gott að bera fram með ís og fersk-
um niðurskornum ávöxtum.
Syndsamlega góð
og bráðnar í munni
ÓMETANLEGUR
STUÐNINGUR!
Edda Heiðrún Backman og
Hollvinir Grensásdeildar
vilja þakka þeim sem lögðu lið
átakinu Á RÁS FYRIR GRENSÁS
Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar lögðust á eitt síðastliðið
föstudagskvöld. Rausnarlegur stuðningur ykkar gerir okkur kleift
að hefja bráðnauðsynlegt uppbyggingarstarf á Grensásdeild.
Hjartans þakkir