Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 1
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
íþróttir
Snorri Steinn Nýtur þess að spila með einu besta handboltaliði heims. Veit ekkert um hvort
hann fær nýjan samning í vor. Hefur náð mjög góðum bata eftir erfið meiðsli. 2
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Stanz FH-ingar taka vel á Guðrúnu Erlu Bjarnadóttur, leikmanni HK, í viðureign liðanna í úrvalsdeildinni í handbolta. FH vann öruggan sigur og
hefur farið vel af stað í deildinni í vetur en Hafnarfjarðarstúlkurnar hafa unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum til þessa. » 4
STÓRLEIKUR Árna
Gauts Arasonar í marki
Odd Grenland í gær
tryggði liðinu 1:1-jafntefli
gegn Bodö/Glimt í
norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu og þar með
4. sæti deildarinnar. Þeg-
ar allt kom til alls skiptu
úrslitin þó ekki máli því
Íslendingaliðinu Brann
tókst ekki að leggja Ros-
enborg að velli og endaði í 5. sætinu.
Nú er sú því staða komin upp að Árni
Gautur og félagar eiga möguleika á að kom-
ast í Evrópudeildina á næstu leiktíð en þeir
þurfa þá að treysta á að Molde, sem endaði í
2. sæti deildarinnar, vinni sigur á Aalesund í
úrslitaleik norsku bikarkeppninnar. Vinni
Aalesund sigur í þeim leik fær liðið sæti í
Evrópudeildinni á kostnað Odd Grenland.
sindris@mbl.is
Árni og félagar
treysta á Molde
Árni Gautur
Arason
STEFÁN Gíslason,
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu og leikmaður
Bröndby í Danmörku,
fór meiddur af velli í leik
liðsins við Vejle í dönsku
bikarkeppninni í nýlið-
inni viku. Hann missti af
þessum sökum af 1:0-
sigri Bröndby á Nor-
dsjælland í gær en reikn-
ar með að vera orðinn
klár í slaginn fyrir vináttulandsleik Íslands
við Lúxemborg hinn 14. nóvember.
„Þetta er tognun aftan í læri en ekkert al-
varleg svo ég reikna með að byrja að æfa í
þessari viku. Ég hefði hugsanlega getað tek-
ið þátt í leiknum í dag [í gær] en ákvað að ná
mér betur fyrst,“ sagði Stefán í samtali við
Morgunblaðið. sindris@mbl.is
Stefán klár í leik-
inn í Lúxemborg
Stefán
Gíslason
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
HVERJU sem um er að kenna þá
má segja að nýafstaðin helgi hafi
verið ansi rauð í knattspyrnu-
heiminum. Þrír Íslendingar fengu að
líta rauða spjaldið í leikjum með lið-
um sínum og í ensku úrvalsdeildinni
fór rauða spjaldið níu sinnum á loft í
tíu leikjum.
Eggert Gunnþór Jónsson var
fyrstur Íslendinganna til að fá rauða
spjaldið þegar hann var rekinn af
velli í leik með liði sínu Hearts gegn
Motherwell. Austfirðingurinn hélst
þó inni á vellinum í 70 mínútur en Ól-
ína G. Viðarsdóttir var öllu fljótari
að koma sér af velli í leik með
Örebro gegn Malmö í sænsku úr-
valsdeildinni. Eftir hálftíma leik
hafði hún náð sér í sitt annað gula
spjald og skildi Eddu Garð-
arsdóttur, unnustu sína, eina eftir á
miðjunni hjá Örebro sem þó náði
jafntefli.
Arnar Darri Pétursson varð svo
þriðji Íslendingurinn til að brjóta
ólöglega af sér þegar hann fékk
beint rautt spjald í leik með Lyn
gegn Garðari Jóhannssyni og fé-
lögum í Fredrikstad í lokaumferð
norsku úrvalsdeildarinnar. Lyn tap-
aði leiknum 0:5 og kvaddi þannig úr-
valsdeildina að sinni.
Í ensku úrvalsdeildinni hljóp
skapið með ófáa leikmenn í gönur
um helgina og fengu alls níu að líta
rauða spjaldið. Sumir dómarnir
þóttu reyndar ansi strangir og
hyggjast Liverpool-menn áfrýja
báðum spjöldum sínum en þeir Ja-
mie Carragher og Philipp Degen
voru reknir af velli í leik gegn Ful-
ham.
Rauð helgi í fótboltanum
Ólína, Eggert og Arnar rekin af velli Níu rauð spjöld í
ensku úrvalsdeildinni Liverpool áfrýjar báðum sínum
Ólína G.
Viðarsdóttir
Jamie
Carragher
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
DAVÍÐ Þór Viðarsson, fyrirliði Ís-
landsmeistara FH í knattspyrnu, á
von á tilboði frá sænska 1. deild-
arliðinu Norrköping. Hann dvaldi
hjá félaginu í nokkra daga en fór
þaðan um helgina. Ferðinni er heit-
ið til Belgíu þar sem Davíð mun
æfa með Roeselare, liðinu sem
Bjarni Þór bróðir hans leikur með í
efstu deild þar í landi.
„Ég var áður búinn að vera í
sambandi við Norrköping og for-
ráðamenn félagsins voru aðallega
að sýna okkur bæinn og aðstæð-
urnar, en ég æfði líka tvisvar með
liðinu. Mér líst að mörgu leyti
ágætlega á félagið, þetta er eitt af
þeim stærri í Svíþjóð þó það sé í 1.
deild núna, er með flottan völl og
fínar aðstæður.
Það gæti verið
spennandi að
spila með því en
það á eftir að
koma í ljós
hvernig tilboð
þeir gera mér en
áhuginn er til
staðar af beggja
hálfu,“ sagði Dav-
íð við Morg-
unblaðið í gær.
Norrköping hafnaði í 11. sæti 1.
deildarinnar í ár og bjargaði sér frá
falli með góðum endaspretti. Gunn-
ar Þór Gunnarsson leikur með lið-
inu og Stefán Þór Þórðarson spilaði
með því seinni hluta tímabilsins en
verður að óbreyttu ekki þar áfram.
Samningur Davíðs Þórs við FH
rennur út um áramótin.
Davíð reiknar með
tilboði frá Norrköping
Davíð Þór
Viðarsson